Í færslu sem Gunnar Smári birti í gær á Facebook-síðu Sósíalistaflokks Íslands, má sjá lista yfir verðbólgu í júlí samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu.
„Verðbólga í júlí samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs á Evrópska efnahagssvæðinu. Ég merki inn lönd með evru eða sem hafa gjaldmiðil sinn bundinn við evru. Að meðaltali er verðbólga á Evrusvæðinu 8,5% en hún er frá 6,1% til 22,0% eftir löndum. Þið getið rétt ímyndað ykkur álagið á Eystrasaltslöndin þar sem verðbólga er um og yfir 20% en stýrivextir 0,5%, taka mið af þörfum og pólitík þýskra stjórnvalda.“

Þá talar Gunnar Smári um að þegar búið sé að taka húsnæðisbóluna út úr dæminu sé ástandið ekki svo slæmt hér á landi, í samanburði við meginland Evrópu.
„Annars sýnir grafið að þegar búið að er taka húsnæðisbóluna út úr vísitölunni þá er verðbólga á Íslandi ekki mikið vandamál í samanburði við meginlandið. Eftir sem áður eru stýrivextir íslenska Seðlabankans 5,5% en þess evrópska 0,5%. Raunvextir íslenska seðlabankans eru nú jákvæðir um 0,1% á meðan raunvextir evrópska seðlabankans eru að meðaltali neikvæðir um 7,5% – en í raun neikvæðir frá 5,9% upp í 18,4%. Til að ná meðaltalsástandi evru þyrfti íslenski seðlabankinn að lækka stýrivexti niður í -2,5%.Vextir íslenska seðlabankans er lang hæstir miðað við verðbólgu. Raunvextir svissneska bankans eru neikvæðir um 3,3% og þess norska um 4,9%, svo dæmi séu tekin af hinum EES-löndunum.“Í lokaorðum sínum skítur Gunnar Smári á Seðlabanka Íslands.
Þórbergur nokkur skrifar athugasemd við færsluna og gefur Gunnari Smára ekkert eftir í gagnrýni sinni á stjórnvöldum.
„Hér beita stjórnvöld hinni einu skotheldu aðferð til að auðmenn geti grætt sem aldrei fyrr. Allt verður þeim að féþúfu. Er það ekki alveg dæmalaust að stríð tveggja ríkja langt í burtu verði til þess að moldríkir íslenskir verktakar og heildsalar mokgræði á tá og fingri nótt og dag allan ársins hring einfaldlega vegna þess að stjórnvöld vilja hafa hlutina þannig.
Segið svo að íslensk stjórnvöld viti ekki hvert beina eigi fjárstreyminu.“































Athugasemdir