Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Flosi undir stækkunarglerinu: Dreymir um að fljúga í orrustuþotu

Flosi undir stækkunarglerinu: Dreymir um að fljúga í orrustuþotu
Flosi Þor­geirs­son.

Flosi Þor­geirs­son er eitt­hvert það frum­leg­asta spútnik sem ratað hefur á íslenskan stjörnu­himin.

Hlað­varpið Draugar for­tíðar í umsjón Flosa og Ljóta hálf­vit­ans, Baldurs Ragn­ars­sonar, hefur slegið ræki­lega í gegn og þeim hefur tek­ist það ómögu­lega, að gera mann­kyns­sög­una skemmti­lega. Draug­arnir eru upp­lýsandi eins og ætla mætti, en vin­átta þeirra félaga er ann­ars heims, enda eins og þeir komi hvor úr sínu sól­kerf­inu.

Flosi hefur óhræddur rætt lam­andi kvíða sinn og þung­lyndi og um dag­inn heyrðu hlust­endur þegar Flosi hljóm­aði eins og upp­vakn­ingur, svo Baldur ákvað að slá upp­tök­una af í miðjum inn­gangi og svo var klippt á mun hress­ari Flosa sem tek­inn var upp dögum seinna. Ofan á fróð­leik­inn hafa þeir félagar náð að opna umræðu um líðan og minnt hressi­lega á að drumbs­háttur og jaxla­bit eru mis­skilin karl­mennska þeirra sem kunna ekki að taka á hlutum. Einn hlust­andi orð­aði það svo, að Flosi væri með áferð­ar­fal­legan drunga, því þrátt fyrir mis­jafna daga væri kapp­inn aldrei leið­in­legur. Okkur fýsti að vita meira um þennan Ham-pönk­ara með ótal hatt­ana.

Fjöl­skyldu­hagir? Tví­frá­skil­inn ein­stæð­ingur. Tvö upp­komin börn.

Menntun/atvinna? Sjúkra­liði og fór svo á gam­als aldri í sagn­fræð­ina. Fannst allt í einu gaman í skóla.

Upp­á­halds­sjón­varps­efni? Fawlty Towers, X-Files, Buffy the Vampire Slayer, Breaking Bad, The Wire, Dark, Rick & Morty, Star Trek TNG, Firefly, The Expanse, The Boys, Bottom, South Park, The Prisoner, What We Do in the Shadows.

Leikari? Vincent Price, Christopher Lee, Toni Collette, Matti Pellon­pää, Marcia Gay Harden, Toshiro Mifune.

Rit­höf­undur? Phillip K. Dick, Frank Herbert, Ursula K. Le Guin, Halldór Laxness, Sjón, Dan Simmons, Stephen King, Iain Banks, Richard Matheson.

Bók eða bíó? Bók. Bíó er dautt og búið, en ég er svo hepp­inn að ég fékk að kynn­ast töfrum þess.

Besti matur? Hákarl.

Kók eða pepsí? Kók og enn betra sé þess neytt í hófi.

Fal­leg­asti stað­ur­inn? Rauða­sandur, Askja, Ásbyrgi, Monument Valley í Arizona, White Sands í New Mexico, Grand Canyon, list­inn er enda­laus enda er þetta fal­leg pláneta… ennþá. 

Hvað er skemmti­legt? Að hlæja og gráta með skemmti­legu fólki.

Hvað er leið­in­legt? Að þurfa að umgang­ast leið­in­legt fólk sem dregur úr manni lífs­kraft­inn.

Hvaða flokkur? Er þetta um stjórn­mál? Hef kosið alla flokka. Fer bara eftir fram­bjóð­endum og stefnu­málum hverju sinni. Fólk sem heldur með stjórn­mála­flokki eins og sumir halda með Liverpool, er ekki heilt á geði.

Hvaða skemmti­staður? Stofan mín. Þar er La-Z-Boy, 65 tomma sjón­varp, stór bóka­hilla, tölva, gítar og gít­armagn­ari. Þarf eitt­hvað meira?

Kostir? Fróður, ágæt­lega greindur, með kímni­gáfu, kann að segja frá hlutum svo fólk hlusti, þol­in­móður, má ekk­ert aumt sjá.

Lestir? Þung­lyndur og kvíð­inn, mis­lyndur, stundum með stuttan þráð, for­dóma­fullur og læt gremju stjórna mér of oft.

Hver er fynd­inn? Hef sankað að mér vinum og kunn­ingjum sem allir eru óstjórn­lega fyndnir. Félagar mínir HAM koma mér oft til að grenja úr hlátri.

Hver er leið­in­legur? Hefur tek­ist að losna við flest þannig fólk úr lífi mínu. Lífið er of stutt til að umgang­ast leið­in­legt fólk.

Trúir þú á til­vist drauga? Nei, en mér finnst þeir æðis­legir.

Stærsta augna­blikið? Sjá börnin mín fæð­ast, útskrif­ast úr sagn­fræði í HÍ og að gefa út fyrstu sóló­plöt­una.

Mestu von­brigðin? Ég held með Liverpool, svo af þeim er meira en nóg…

Hver er draum­ur­inn? Að ferð­ast meira og halda áfram að gera tón­list (eða aðra list) með hæfi­leik­a­ríku fólki. Líka að fljúga í orr­ustu­þotu.

Mesta afrek sem þú hefur unnið á þessu ári? Halda mér á lífi? Nei, ókei… það er lík­lega að gefa plöt­una mína út á vínyl. 

Ertu búinn að ná öllum þínum mark­miðum? Ég set mér eig­in­lega aldrei mark­mið, það endar bara með skelf­ingu.

Manstu eftir ein­hverjum brand­ara? Ég var í barna­skóla með strák sem hét Brandur Ari. Ég man alveg eftir honum.

Vand­ræða­leg­asta augna­blikið? Að kalla á kærust­una, en nota nafn fyrr­ver­andi. Svo prump­aði ég í jóga­tíma. Það var fer­legt.

Sorg­leg­asta stundin? Að sjá á bak föður mínum og bróður var vont. Ég hefði viljað meiri tíma með þeim. Þeir voru góðir menn.

Mesta gleðin? Að sjá krakk­ana mína verða að góðu fólki með ríka rétt­læt­is­kennd og mik­inn húmor. 

Mik­il­væg­ast í líf­inu? Standa með sjálfum sér og ekki rífa sig niður. Þetta er mitt líf og ég lifi því eins og ég vil.

Stækk­un­ar­glerið birt­ist í nýjasta tíma­riti Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina