Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Helga Vala svarar Þorsteini Pálssyni fullum hálsi: „Réttlætismál og þarna stöndum við föstum fótum“

Helga Vala svarar Þorsteini Pálssyni fullum hálsi: „Réttlætismál og þarna stöndum við föstum fótum“
Helga Vala Helga­dóttir.

Helga Vala Helga­dóttir þver­tekur fyrir það að Sam­fylk­ingin hafi tekið ESB-aðild af dag­skrá líkt og Þor­steinn Pálsson heldur fram.

Þor­steinn Pálsson, fyrrum ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, veltir fyrir sér næstu rík­is­stjórn Íslands í pistli í Frétta­blað­inu í dag. Þar segir hann að Sam­fylk­ingin geti gengið inn í rík­is­stjórn­ina sem nú er til staðar, í stað Vinstri grænna sem virð­ist vera að fjar­lægj­ast rík­is­stjórn­ina, miðað við lands­fund­inn sem hald­inn var á dög­unum. Segir hann meðal ann­ars að svo virð­ist sem Sam­fylk­ingin ætli sér að kjósa Kristrúnu Frosta­dóttur sem nýjan leið­toga flokks­ins. „Hún ætlar að sigla Sam­fylk­ing­unni eftir nýju striki,“ segir Þor­steinn og bætir við að flokk­ur­inn muni nú „tala um færri mál en áður.“ Á hann þá meðal ann­ars við Evr­ópu­sam­bands­málið sem Sam­fylk­ingin hefur verið hvað þekkt­ust fyrir frá stofnun.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn yrði þó vænt­an­lega að gefa meira eftir í útgjöldum til heil­brigð­is­mála. Á móti þyrfti hann ekki að hafa áhyggjur af sjáv­ar­út­vegs­málum, Evr­ópu­málum og stjórn­ar­skrá,“ skrifar Þor­steinn í pistl­inum.

Helga Vala Helga­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar svar­aði í morgun Þor­steini Pálssyni á Facebook-síðu sinni þar sem hún þver­tekur fyrir það að flokk­ur­inn hafi tekið ESB-aðild af dag­skrá.

„Vegna orða (ósk­heita?) Þor­steins Páls­sonar í frétta­blað­inu í dag þá get ég full­yrt að stefna Sam­fylk­ing­ar­innar er skýr hvort tveggja er varðar mik­il­vægi ESB aðildar sem og nýrrar stjórn­ar­skráar enda er það grund­völlur jöfn­uðar og gagn­sæis meðal ann­ars er varðar nýt­ingu auð­linda okkar. Stefnan hefur verið sam­þykkt af flokks­fólki á Lands­fundi og hef ég engar hug­myndir heyrt um að breyta henni hjá gras­rót flokks­ins. Við hófum, í rík­is­stjórn Jóhönnu, aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu, eitt­hvað sem flokkur Þor­steins gerði ekki að umræðu­efni í sínu skamm­lífa stjórn­ar­sam­starfi árið 2017. Þá lögðum við í félagi við flokk Þor­steins á Alþingi fram þing­mál síð­asta vor um að fram færi þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um ESB aðild­ina enda hefur hin nýja heims­mynd okkar eftir inn­rás Rússa í Úkraínu aukið nauð­syn Evr­ópu­sam­vinnu til muna. Þá var það for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, sem hóf leið­ang­ur­inn um nýju stjórn­ar­skrána sem for­maður flokks Þor­steins tók þátt í að koma í veg fyrir að yrði að veru­leika með mál­þófi vikum saman í lok þess kjör­tíma­bils. Við í Sam­fylk­ing­unni leggjum áherslu á nýja stjórn­ar­skrá en því miður hafa ekki allir flokkar á þingi eða í stjórn­ar­and­stöðu verið jafn áhuga­söm um það verk. Það er lyk­il­at­riði að við eign­umst nýja stjórn­ar­skrá sem miðar að íslenskum veru­leika en ekki dönskum frá þar­síð­ustu öld. Ég skora á Þorstein að hvetja sinn flokk til dáða í þessum bar­áttu­málum okkar, þarna er fram­tíðin, þetta er rétt­læt­is­mál og þarna stöndum við föstum fótum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við