Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Siðmennt sækir á Kirkjuna: „Brauðhleifar Palestínumannsins til forna duguðu yfirnáttúrulega vel“

Siðmennt sækir á Kirkjuna: „Brauðhleifar Palestínumannsins til forna duguðu yfirnáttúrulega vel“
Inga Auðbjörg K. Straum­land for­maður Sið­menntar.

„Í Nýja Testa­ment­inu segir frá því þegar Jesús fóðr­aði 5000 manns (og þegar ég segi manns, þá voru það víst 5000 karlar, því konur og börn virt­ist óþarfi að telja) með aðeins fimm brauðum og tveimur fiskum. Það var meira að segja nóg eftir og söfn­uðu læri­svein­arnir afgöngum í heilar 12 körfur. Það er ansi ljóst að brauð­hleifar Palest­ínu­manns­ins til forna dug­uðu yfir­nátt­úru­lega vel, en jafn­vel þó við tökum krafta­verkin út úr jöfn­unni mætti gjarnan spyrja sig: Hvað er eitt brauð og hvað er einn fiskur?“ spyr Inga Auðbjörg K. Straum­land for­maður Sið­menntar, sið­rænna húman­ista á Íslandi í nýrri grein.

Hún bendir á að „Siðmennt stekkur yfir 5000 félaga. Þjóðskrá Íslands gaf í gær út reglu­legt frétta­bréf sitt, þar sem fjallað er um upp­færðar tölur úr skrá yfir trú­fé­lags­að­ild Íslend­inga.

Samkvæmt nýj­ustu tölum hefur Siðmennt, félag sið­rænna húman­ista á Íslandi, nú farið yfir 5000 félaga í fyrsta skipti. Það er stór­felld aukn­ing á stuttum tíma, en þegar Siðmennt var fyrst sett á skrá yfir lífs­skoð­un­ar­fé­lög lands­ins árið 2013 voru um 300 með­limir á félaga­tali félags­ins.

Þetta er því tæp sautján­földun á aðeins 9 árum,“ segir Inga og bætir við:

„Á sama tíma­bili hefur Þjóð­kirkja Íslands farið úr því að vera and­legt heim­ili 76% Íslend­inga, í það að hafa aðeins 60% þjóð­ar­innar á félaga­skrá sinni. Það er því nokkuð ljóst að annað félagið hlýtur að vera í þó nokk­urri til­vist­ar­kreppu, á meðan hitt félagið blómstrar og sópar til sín nýjum félögum sem líta á húmanísk gildi sem sín lífs­við­horf.

Það er þó auð­vitað gígantískur munur á milli félaga; annað hefur í sögu­legu sam­hengi talið meiri­hluta þjóð­ar­innar, á meðan hitt er nýskriðið yfir 1%. En tölur Þjóð­skrár um félags­að­ild þess­ara tveggja lífs­skoð­un­ar­fé­laga, ann­ars kristi­legs og hins ver­ald­legs, byggj­ast þó einnig á göll­uðum gögnum sem bera þess merki að kerf­is­læg for­rétt­indi hafi skekkt þau í áraraðir. Þegar börn fæð­ast eru þau skráð, án heim­ildar for­eldra, í það félag sem for­eldr­arnir til­heyra. Áður voru börn skráð lóð­beint í trú­fé­lag móður, án þess að spyrja kóng, né prest, móður né barn. Þetta þýðir að ára­tugum saman hefur fólk verið skráð í það trú­fé­lag fyrri kyn­slóða í fjöl­skyldu sinni án heim­ildar fólks­ins sjálfs, og það er aðal­lega eitt trú­fé­lag sem græðir á því: Trú­fé­lagið sem var algeng­ast hjá téðum fyrri kyn­slóðum.“

Hún nefnir að „margt bendir þó til þess að töl­urnar end­ur­spegli ekki raun­veru­leg við­horf land­ans. Siðmennt, með sitt staka pró­sent þjóð­ar­innar á félaga­tali sínu, sinnti 18% allra hjóna­vígsla sem fram fóru hjá trú- eða lífs­skoð­un­ar­fé­lögum árið 2019 (upp­færð­ari tölur því miður ekki aðgengi­legar hjá Hag­stof­unni).

Sum gætu haldið að þetta skipti litlu máli. Að skrán­ing Þjóð­skrár á þessum við­kvæmu per­sónu­upp­lýs­ingum sé nú fyrst og fremst upp­lýs­inga­söfnun. En það er ekki alveg svo­leiðis, því að skipt­ing fjár­muna bygg­ist á þessum upp­lýs­ingum. Og af því að gögnin eru gölluð getum við ekki verið viss um að skipt­ing þess­ara sam­eig­in­legu sjóða þjóð­ar­innar sé raun­veru­lega rétt­lát og sam­kvæmt vilja fólks­ins.“

Inga segir líka að „flestar kann­anir sýna nefni­lega að í gögn­unum sé tals­verð skekkja – að ekki öll sem til­heyra stærsta félag­inu, Þjóð­kirkj­unni, vilji endi­lega vera þar, eða séu yfir­höfuð með­vituð um það að þau til­heyri því félagi. Þannig væri á allan máta langrétt­lát­ast að núlla bara skrán­ing­una á einu bretti og óska eftir því að fólk skrái sig aftur. Aðeins þannig myndi skrán­ingin end­ur­spegla raun­veru­legan vilja ein­stak­lings­ins – og þannig þjóð­ar­innar allrar.“

Og hún spyr:

„En hvað koma fisk­arnir mál­inu við?“

Svarar:

„Jú, Jesús fóðr­aði fullt af fólki með fáeinum brauðum og fiskap­ari. Það er því ljóst að brauðin hans duga betur en önnur brauð. Og það sama á við þau brauð og fiska sem dreift er úr bast­körfum rík­is­sjóðs til lífs­skoð­un­ar­fé­lag­anna. Flest fá félögin brauð og fiska í hlut­falli við stærð þess sem telur sig eiga sam­leið með félag­inu. Öll nema eitt. Eitt félagið fær nefni­lega nán­ast tvö­földa úthlutun; ekki bara sókn­ar­gjöld, heldur auka­fram­lag sem telur millj­arða, sem bygg­ist á versta samn­ingi sem ríkið hefur nokk­urn­tíman gert og allar líkur á að sé í raun löngu búið að greiða upp.

Það er því nokkuð ljós að rétt eins og fyrir tvö þús­und árum, þá eru enn í dag sum brauð stærri en önnur brauð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina