Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sigrún Birgisdóttir: „Einhverfir verða fyrir töluverðum fordómum“

Sigrún Birgisdóttir: „Einhverfir verða fyrir töluverðum fordómum“
(Mynd: Bjarney Lúð­víks­dóttir.)

„Það er talið að yfir 2% fólks séu á ein­hverfu­róf­inu og ég yrði ekki hissa ef það væru fleiri. Ég fæ fimm til sex beiðnir á viku frá full­orðnu fólki sem leitar til sam­tak­anna um hvar það getur farið í ein­hverfu­grein­ingu,“ segir Sigrún Birg­is­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Ein­hverfu­sam­tak­anna. Sigrún segir að erfðir séu taldar aðal­á­stæða ein­hverfu eða um 80%. „Þetta gengur í ættir. Það er mjög algengt að í kjöl­far þess að börn fái grein­ingu að annað for­eldrið komi einnig í grein­ingu. Það sér maður nokkuð oft.“

Sigrún segir að áherslur Ein­hverfu­sam­tak­anna snú­ist um ein­hverfu­vænna sam­fé­lag fyrir alla og þjón­ustu við hæfi. „Bar­áttu­málin snú­ast um að upp­fræða fólk og sam­fé­lagið. Það vantar betri heil­brigð­is­þjón­ustu; okkar fólk fær mjög gjarnan synjun ef það sæk­ist eftir þjón­ustu geð­heilsuteyma og það er ekki þekk­ing til staðar til að sinna því. Margir sál­fræð­ingar treysta sér ekki til að taka við ein­hverfu fólki og það er skortur á þekk­ingu á spít­öl­unum, í skóla­kerf­inu, félags­þjón­ust­unni og í raun­inni bara alls staðar.“

Það eru for­dómar í kerf­inu og það eru í raun­inni for­dómar alls staðar.

Sigrún segir að vegna þessa sé fólk á ein­hverfu­róf­inu oft ansi brotið. „Það er mikið talað um að fólk lendi í kulnun því það er stöðugt að reka sig á veggi. Það skortir skiln­ing; ein­hverfir eiga mjög oft erfitt með að skipu­leggja sig. Stýri­færnin er kannski ekki nógu góð eða ekki til staðar og það er oft litið á ein­hverfar konur sem sóða eða druslur af því að heim­ili þeirra eru kannski ekki eins og hjá fólki almennt af því að þær ráða ein­fald­lega ekki við að skipu­leggja verkin og fram­kvæma. Það eru for­dómar í kerf­inu og það eru í raun­inni for­dómar alls staðar. Og fólk er stöðugt að reka sig á. Þetta brýtur fólk niður.“

Sigrún segir að draum­ur­inn sé að sett verði á fót þjón­ustu- og þekk­ing­ar­mið­stöð fyrir fólk á ein­hverfu­rófi sem og fyrir fólk með þroska­hömlun og bendir hún á að aðstæður þess fólks séu kannski litlu skárri. „Það þarf að byggja upp þekk­ing­arteymi sem geta stutt til dæmis við geð­heilsu­batt­er­íið. Við vitum að við höfum ekki það marga sér­fræð­inga að það sé hægt að byggja upp full­komna þjón­ustu á öllum stöðum en það gæti verið farteymi til aðstoðar ef á þyrfti að halda svo fólki væri ekki vísað frá. Það væri einnig hægt að vera með þekk­ing­ar­hóp varð­andi til dæmis atvinnu­mál og skóla­mál sem gæti farið með fræðslu á við­kom­andi staði eftir þörfum.“

(Mynd: Ljós­myndir Rutar og Silju.)

Frábær eins og þau eru

Sigrún á tvo upp­komin börn sem bæði eru á ein­hverfu­róf­inu.

Þau eru bara með öðru­vísi tauga­þroska og eru frá­bær eins og þau eru.

„Kannski var kerfið að sumu leyti mann­legra og að öðru leyti ekki þegar þau voru börn en þá beið maður ekki í tvö til þrjú ár eftir grein­ingu eins og staðan er í dag. Þá voru þetta kannski nokkrir mán­uðir. Að því leyt­inu til var það mun skárra. Það sama átti við um þjón­ustu til dæmis tal­meina­fræð­inga en þar var nokk­urra mán­aða bið en núna er hún yfir ár og jafn­vel tvö ár. Það er ýmis­legt sem var skárra en þekk­ingin var nátt­úr­lega ekki næstum því eins mikil og hún er í dag. Á þeim tíma mið­að­ist allt við að reyna að breyta börn­unum þannig að þau yrðu sem mest „normal“. En við vitum í dag að það er ekki rétta nálg­unin og getur bein­línis verið skað­legt fyrir börnin; við viljum að þau öðlist færni til sjálfs­hjálpar og geti sem mest bjargað sér sjálf og liðið sem best í sínu hvað svo sem þau taka sér fyrir hendur. Þau eru bara með öðru­vísi tauga­þroska og eru frá­bær eins og þau eru. Það þarf ekki að breyta neinu. Við erum öll mis­jöfn. Við eigum ekki að vera öll eins. Það er eig­in­lega bara málið.“

Varð umburðarlyndari

Sigrún seg­ist hafa dottið út af vinnu­mark­aði eftir að hún eign­að­ist börnin og hafði það fjár­hags­leg áhrif á heim­ilið. „Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn minn er hverf­andi lít­ill. Þetta er ekki óal­gengt þegar mæður fatl­aðra barna eru ann­ars vegar. Það var í raun­inni börn­unum fyrir bestu að ég væri heima­vinn­andi og ég sökkti mér ofan í fræðin og las allt sem ég gat til þess að reyna að koma þeim sem lengst áleiðis í líf­inu og það tókst bara bæri­lega; senni­lega betur heldur en ef ég hefði treyst ein­göngu á skóla­kerfið þegar kom að kennsl­unni.“

Það var margt á þeim tíma í grein­ing­ar­ferl­inu sem var í raun­inni óhollt and­legri heilsu manns.

Sigrún segir að þar sem þekk­ingin á málum ein­hverfra hafi á þessum tíma ekki verið eins mikil og hún er í dag þá hafi þeim for­eldr­unum ekki verið gefin sú von að börnin myndu ná nærri því eins langt og raunin varð. „Það var margt á þeim tíma í grein­ing­ar­ferl­inu sem var í raun­inni óhollt and­legri heilsu manns því manni var stöðugt bent á veik­leika barn­anna og hvað við mættum gera ráð fyrir að þau gætu ekki lært eða ráðið við. Ég veit að þetta hefur skánað en ég get ekki sagt að þetta sé full­komið. Það er langt í land. En von­andi lag­ast það með auk­inni fræðslu. Við þurfum að hætta að horfa á börnin út frá með­al­kúrfum og stað­al­frá­vikum því hvert og eitt er ein­stakt.“

Sigrún hefur ýmis­legt lært af því að eiga börn á ein­hverfu­róf­inu. „Ég lærði fljótt umburð­ar­lyndi gagn­vart öllu fólki. Áður fyrr þegar maður var kannski í verslun og sá ein­hvern taka kast eða eitt­hvað var í gangi þá hugs­aði maður með sér hvað við­kom­andi væri illa upp alinn eða hvað gengi að þessum manni. Núna hugsa ég ekki á þann hátt. Núna hugsa ég með þér að við­kom­andi eigi erfitt. Ég hef kynnst alls kyns frá­bæru fólki í gegnum þetta starf. Alveg ótrú­lega flottu fólki. Þannig að þetta gefur manni virki­lega mikið.“

Töluverðir fordómar

Sigrún segir að fólk á ein­hverfu­róf­inu verði fyrir tölu­verðum for­dómum. „Samfélag okkar byggir á því að setja alla í box. Þegar fólk sker sig úr þá er það oft litið horn­auga. Og það tekur gríð­ar­lega á ein­stak­ling­inn að vera svona í jað­ar­hópi. Það eiga allir að vera eins og skóla­kerfið er byggt þannig upp.“

Hvað finnst Sigrúnu um skóla án aðgrein­ingar?

„Skóli án aðgrein­ingar er gríð­ar­lega fal­leg hugsun en þá þarf skóla­hús­næðið að bjóða upp á það og taka til­lit til skynj­unar og þarfa allra og ég tala nú ekki um mönnun, þar vantar mikið upp á að dæmið gangi upp. Risarými fyrir 60-70 börn er ekki fyrir nein börn og það skiptir ekki máli hvort þau séu ein­hverf eða ekki. Það á ekki að bjóða neinum upp á þetta svo sem með til­liti til hávaða. Skóli án aðgrein­ingar er fal­leg hugsun eins og ég sagði en hún gengur ekki upp ef hvortki hús­næði né mann­afli býður upp á það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina