Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þessi kona væri drottning Íslands hefðum við tekið upp konungsveldi

Þessi kona væri drottning Íslands hefðum við tekið upp konungsveldi

Um tíma stóð til að Ísland yrði kon­ung­veldi en ekki lýð­veldi. Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur fer á Facebook yfir afleið­ingar þess en sam­kvæmt honum þá væri konan á mynd­inni hér fyrir ofan lík­lega drottn­ing Íslands um þessar mundir.

„Hér sjáum við glað­beitta fjöl­skyldu á leið­inni í bíó fyrir fáeinum árum. Móðirin, Jósefína, er í miðj­unni. Kærast­inn hennar til tveggja ára þegar myndin var tekin, Kenneth Schmidt, er þessi vörpu­legi maður í fína vest­inu. Þau eiga núna eitt barn saman. Hinir krakk­arnir eru börn Jósefínu frá fyrra hjóna­bandi. Takið sér­stak­lega eftir tán­ings­pilt­inum Júlíusi. Núna er hann 21 árs gam­all,“ skrifar Stefán.

Hann heldur svo áfram:  „Á sínum tíma datt ein­hverjum í hug að snið­ugt væri að sjálf­stætt Ísland yrði ekki lýð­veldi heldur kon­ungs­veldi. Fyrsti þjóð­höfð­ingi kon­ungs­veld­is­ins Íslands hefði sam­kvæmt þessum plönum orðið Knútur prins, sem hefði orðið kon­ungur Dan­merkur ef erfða­regl­unum hefði ekki verið breytt til að hleypa Margréti Þórhildi að þrátt fyrir að vera kona. Þessi breyt­ing var öðrum þræði gerð vegna þess að Dönum leist alveg mátu­lega á Knút, sem þótt m.a. óþarf­lega áhuga­samur um mál­efni slökkvi­liðs­ins. Knútur mun hafa verið skot­inn í hug­mynd­inni um að drottna yfir Íslandi. Hann hafði gefið elsta syni sínum nafnið Ingólfur. Flestum ber saman um að Ingólfur sé föð­ur­betr­ungur.“

Miðað við þetta þá hefði Knútur orðið kon­ungur til árs­ins 1976. „Gerum okkur nú í hug­ar­lund að Knútur hefði fengið giggið. Bessa­stöðum hefði verið breytt í kon­ungs­höll og Knútur kon­ungur hefði ríkt hér á landi frá stríðslokum til dauða­dags árið 1976. Líklegt má telja að Íslend­ingar hefðu fylgt for­dæmi Dana og látið krún­una erf­ast til elsta barns óháð kyni. Þá hefði Elísabet prinsessa tekið við valda­taumunum og í stað þess að vinna í dönsku utan­rík­is­þjón­ust­unni hefði hún verið drottn­ing Íslands til dauða­dags 2018, þá 83 ára gömul.“

Hann gefur sér að þetta fólk hefði hagað sér nokkuð veg­inn eins og í alvör­unni. „Þar sem við gefum okkur í þess­ari tíma­línu að fjöl­skyldu­hagir per­sóna og leik­enda hefðu þró­ast nákvæm­lega eins og í raun­veru­leik­anum, þá deyr Elísabet fyrsta af Íslandi barn­laus. Þá er loks­ins komið að Ingólfi. Drengnum sem fædd­ist annar að rík­is­erfðum í Danmörku en var svo svik­inn um völdin. Ingólfur fyrsti kon­ungur var kom­inn fast að átt­ræðu þegar hann var krýndur og lík­lega þótti honum tómt vesen að þurfa að flytja til Bessa­staða á gam­als aldri, en hér átti hann svo sem marga vini og pass­aði sig á að halda íslensk­unni við ef svona kynni að fara,“ segir Stefán.

Flókin erfða­röð hefði svo valdið því að konan á mynd­inni hefði orðið drottn­ing. „Ingólfur kon­ungur er hins vegar barn­laus og þegar þetta er ritað, í sept­em­ber 2022, er hann orð­inn 82 ára gam­all og þótt hann sé nokkuð sprækur þá verður hann tæp­ast eilífur. Bless­un­ar­lega áttu barn­leys­in­gj­arnir Elísabet fyrsta og Ingólfur fyrsti þó bróður sem eign­að­ist erf­ingja. Það var Kristján greifi sem lifði það ekki að sjá Ingó bróður taka við af Betu systur. Kristján náði þó að koma erfða­efn­inu áfram sem fyrr segir. Eign­að­ist þrjár dætur.

Elst er Jósefína, konan á mynd­inni. Þegar Ingólfur fellur frá verður hún Jósefína drottn­ing Íslands. Þetta gerir það að verkum að hún ratar stundum í slúð­ur­dálk­ana í Hjemmet. Júlíus sonur hennar og vænt­an­legur arf­taki í fyll­ingu tím­ans kemst hins vegar reglu­lega á lista yfir álit­leg­ustu pip­ar­svein­ana í slúð­ur­press­unni enda ekki margir verð­andi rík­is­ar­far á lausu.

…segið svo að það væri ekki gaman að hafa kon­ungs­veldi á Íslandi!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina