Samfélagsrýnirinn Björn Birgisson úr Grindavík spáir því að fljótlega þurfi Íslendingar að fara hugsa í 500 krónum sem lágmarki þegar kemur að verðlagi hér á landi. Hann telur smámyntina algjört drasl og er löngu hættur að reikna með smápeningunum.Björn segir skoðuna sína í færslu á Facebook þar sem hann segir virðinguna fyrir krónunni vera litla sem enga. Rýrnun hennar sé allt of hröð þannig að smámyntinn sé í raun útilokuð.„Þegar ég reikna út verð á einhverju, til dæmis harðfiski, út frá hefðbundinni viðmiðun, kílóverðinu, hagræði ég nánast alltaf niðurstöðunni, oftast til hækkunar í næsta hundrað, stöku sinnum til lækkunar í næsta hundrað,“ segir Björn harðfisksali og heldur áfram:„Þannig að öll smámynt er útilokuð.Smámynt í þessu sambandi er:1 króna5 krónu peningur10 krónu peningur50 krónu peningur100 krónu peningurinn fær enn að vera með, en með hraðanum á rýrnun krónunnar styttist í að allt hlaupi á 500 krónum og svo áður en langt um líður á 1000 krónum.Það er útilokað að ég nenni að eltast við verðlausa smámynt og ég einfaldlega býð ekki viðskiptavinum mínum að þurfa að reiða slíkt drasl fram!“































Athugasemdir