Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Smám saman eru netverjar að ná tökum á samfélaginu og dómskerfinu“

„Smám saman eru netverjar að ná tökum á samfélaginu og dómskerfinu“
Óttar Guð­munds­son á túni. Myndin er sam­sett.

Óttar Guð­munds­son geð­læknir segir að nettröll verði smátt og smátt valda­meiri í sam­fé­lag­inu. Hann gerir grín að net­verjum í pistli sem hann birtir á vefnum Lifðu núna, en undir niðri virð­ist hann ugg­andi yfir stöð­unni. Hann segir stjórn­sýslu Íslands beygja sig og bukta fyrir kommenta­kerf­inu.

„Í frægri og umdeildri bók sinni Ástir sam­lyndra hjóna segir Guð­bergur Bergsson frá fólki sem sitji með rass­inn í prump­stöðu til­búið að tjá sig um stór og smá tíð­indi. Bókin kom út fyrir rúm­lega hálfri öld og mikið hefur breyst síðan í sam­fé­lag­inu. Netið hefur opnað þessu mál­þola fólki áður óþekkta mögu­leika. Það situr þol­in­mótt og álútt við tölv­una og bíður færis til að láta ljós sitt skína,“ skrifar Óttar.

Hann segir það hálf­gerða ráð­gátu að átta sig á því hvað muni fara öfugt ofan í fólkið á inter­net­inu. „Ólík­leg­ustu atvik leiða til heift­ar­legra við­bragða á net­inu. Á dög­unum kvart­aði þjóðin undan illa búnum ferða­löngum á eld­stöðv­unum með ung börn í fang­inu. Löggan tak­mark­aði þá aðgengi barna að gos­inu. Við­brögðin með miklum látum létu ekki á sér standa. Þessar tak­mark­anir voru á auga­bragði orðnar stór­hættu­legar fyrir þroska barna og sam­heldni í fjöl­skyldum. Lögregla og björg­un­ar­sveitir fóru í vörn og hrökt­ust undan vind­gangi háværra álits­gjafa. Málið leyst­ist sem betur fer af sjálfu sér þegar gosið hætti öllum á óvörum. Enginn þurfti lengur að hafa áhyggjur af grát­andi og svöngum börnum við hraunjað­ar­inn,“ segir Óttar.

Hann rifjar svo upp mál Helga Magnúsar Gunn­ars­sonar vara­rík­is­sak­sókn­ara sem sagði nóg af hommum á Íslandi. „Stóra aðstoð­ar­sak­sókn­ara­málið hleypti miklu lífi í þrá­setu­menn við tölv­una. Margir gengu framaf sjálfum sér í kröfu­gerð­inni um afsögn og refs­ingar þessa óheppna emb­ætt­is­manns. Stjórn­kerfið skalf og nötr­aði vegna hávað­ans.  Aðstoð­ar­sak­sókn­ar­inn hefur ekki tjáð sig síðan og emb­ættið veitti honum áminn­ingu fyrir stór­karla­legar athuga­semdir,“ segir Óttar.

Annað dæmi sé svo glæ­nýtt. „Elísabet Eng­lands­drottn­ing dó fyrir skemmstu. Viðbrögð og sorg­ar­fretur nets­ins voru svo ofsa­fengin að ókunn­ugum hefði ekki komið annað í hug en Ísland til­heyrði Breska Heims­veld­inu. Ólík­leg­asta fólk lýsti yfir djúpum harmi vegna frá­falls þess­arar ald­ur­hnignu konu. Myndir voru dregnar fram af Betu úr Íslands­heim­sókn­inni með þekktum net­verjum. Frétta­þulir Rík­is­sjón­varps­ins klædd­ust svörtu í til­efni dags­ins yfir­komnir af sorg. Sjálfur reyndi ég að brosa gegnum tárin og gladd­ist fyrir  hönd jafn­aldra míns, Karls prins sem loks­ins er kom­inn í vinnu. Ég vil votta öllum þessum syrgj­endum samúð mína vegna frá­falls Breta­drottn­ingar,“ segir Óttar.

Hann lýkur pistl­inum svo á alvar­legri nótum: „Mig langar til að lýsa yfir djúpu þakk­læti og aðdáun á þessu nafn­lausa og fórn­fúsa fólki sem situr mán­uðum saman á öðrum þjó­hnapp­inum við tölv­una. Konur og karlar sem  standa vakt­ina í blíðu og stríðu til­búin að leysa vind. Ekkert er þeim óvið­kom­andi og þau vita alltaf best!

Smám saman eru net­verjar að ná tökum á sam­fé­lag­inu og dóms­kerf­inu. Þeim hefur tek­ist að gera netið að opin­berum gapa­stokk sem áhrifa­mönnum stendur stuggur af. Dómstóll göt­unnar birtir nið­ur­stöður sínar á net­inu og úrskurði hans verður ekki áfrýjað. Stjórn­kerfið er smám saman að lam­ast gagn­vart áhrifa­mætti nets­ins og ein­stakir emb­ætt­is­menn þora sig ekki að hreyfa af ótta við við­brögð áhrifa­mik­illa netprumpara.

Enginn vill nefni­lega sitja uppi með svarta-pétur eins og aðstoð­ar­sak­sókn­ari gerði á dög­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina