Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Sláandi að lesa fréttir af aukinni tíðni hatursorðræðu og glæpa hér á landi í garð hinsegin fólks“

„Sláandi að lesa fréttir af aukinni tíðni hatursorðræðu og glæpa hér á landi í garð hinsegin fólks“
Stella Sam­ú­els­dóttir.

Al­var­leg teikn á lofti – á­skorun til ís­lenskra stjórn­valda er yfir­skrift greinar sem Stella Sam­ú­els­dóttir fram­kvæmda­stýra UN Women á Íslandi ritar.

Byrjar svona:

„Stöðugar fréttir af auknu hatri og óþoli í garð hinsegin fólks á Íslandi eru alvar­leg teikn á lofti sem bregð­ast verður við. Í morgun var meðal ann­ars fjallað um áhyggjur Mann­rétt­inda- og ofbeld­is­varn­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borgar af stöðu hinsegin barna og ung­menna sem hafa í auknum mæli verið að segja frá alvar­legum hót­unum og aðkasti innan veggja skóla.“

Stella segir að „mann­rétt­indi eiga undir högg að sækja um allan heim og því gríð­ar­lega mik­il­vægt að spyrna fótum við þeirri þróun. Eitt mik­il­væg­asta vopnið gegn for­dómum og fáfræði er aukin fræðsla, upp­lýst umræða og sam­heldni samé­lags­ins um að standa vörð um ákveðin gildi á borð við jafn­rétti, frelsi og mann­rétt­indi.“

Einnig að „mann­rétt­indi jað­ar­settra hópa hafa sjaldn­ast dottið af himnum ofan, kyn­slóðir eftir kyn­slóðir börð­ust fyrir auk­inni við­ur­kenn­ingu og mann­virð­ingu. Fyrir skiln­ingi á því að við erum ólík. Mörg lönd hafa náð góðum árangri í þessu sam­hengi á meðan önnur eiga enn langt í land. Ísland er eitt þeirra landa sem hefur sett mann­rétt­indi sem leið­ar­stef í inn­an­ríkis- og utan­rík­is­stefnu sinni og náð góðum árangri. Allt frá Vigdísi Finn­boga­dóttur yfir til Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur,“ sem Stella telur að séu „konur sem ruddu svo sann­ar­lega braut­ina á heims­vísu í nafni íslenskrar þjóðar.

Tákn­myndir um mögu­leika, sem ég veit að margar þjóðir líta hýru auga að verði að veru­leika einn dag­inn hjá þeim líka.“

Og bætir við:

„Þess vegna er svo slá­andi að lesa fréttir af auk­inni tíðni hat­urs­orð­ræðu og glæpa hér á landi í garð hinsegin fólks. UN Women á Íslandi ákvað að varpa ljósi á stöðu hinsegin fólks á heims­vísu með Fokk ofbeldi her­ferð­inni sem hófst á dög­unum með sölu FO vett­linga. Allur ágóði af söl­unni mun renna í hinsegin sjóð UN Women sem nú stendur tómur. Við tókum þá ákvörðun að sam­hliða því að safna fjár­munum fyrir fjársveltan sjóð ytra, væri einnig mik­il­vægt að hreyfa við hlut­unum hér heima. Enda hefur umræðan um bakslag verið hávær síð­ustu mán­uði.

Við hófum því und­ir­skrift­ar­á­tak í því skyni að hvetja almenn­ing til að taka skýra afstöðu með rétt­indum hinsegin fólks og skora á íslensk stjórn­völd að bregð­ast við því bakslagi í hinsegin bar­átt­unni sem virð­ist hafa skotið rótum í sam­fé­lag­inu okkar. Íslensk stjórn­völd bera ábyrgð á því að tryggja að lög­gjöf sé vernd­andi fyrir jað­ar­setta hópa ásamt því að stuðla að for­virkum aðgerðum í formi fræðslu og upp­ræt­ingu for­dóma. Að sama skapi hvetjum við stjórn­völd til að beita sér á alþjóða­vett­vangi fyrir því að aðrar þjóðir taki sér Ísland til fyr­ir­myndar og tryggi laga­leg rétt­indi hinsegin fólks. Það hefur aldrei verið jafn mik­il­vægt og núna að Ísland láti mann­réttinda­rödd sína heyr­ast.“

Stella færir í tal að „UN Women á Íslandi hvetur almenn­ing til að skrifa undir þennan und­ir­skrift­ar­lista, taka þannig afstöðu með mann­rétt­indum og þrýsta á íslensk stjórn­völd að tryggja virka hinseg­in­fræðslu á öllum skóla­stigum um allt land um fjöl­breyti­leik­ann og mann­rétt­indi líkt og náms­skrá segir til um og ungt fólk kallar eftir. UN Women á Íslandi mun afhenda Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra, Ásmundi Einari Daðasyni mennta- og barna­mála­ráð­herra, Þórdísi Kolbrúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og Guðmundi Inga Guð­brands­syni félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra und­ir­skrift­ar­list­ann að söfnun lok­inni. Ég hvet þig til að taka afstöðu og skrifa undir hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina