Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Yfirlýsing frá Öfgum: „Enn einn meinti nauðgarinn sem kemst upp með það í skjóli for­réttinda“

Yfirlýsing frá Öfgum: „Enn einn meinti nauðgarinn sem kemst upp með það í skjóli for­réttinda“
Aron Einar Gunn­ars­son.

Öfgar sendu frá sér yfir­lýs­ingu eftir að ljóst varð að Aron Einar Gunn­ars­son hefði á ný verið val­inn til að leika fyrir Íslands hönd í fót­bolta, en hann fékk einnig fyr­ir­liða­bandið aftur.

Bar­áttu­hóp­ur­inn Öfgar

Svona hljómar yfir­lýs­ing Öfga:

Í ljósi þess að Aron Einar hefur verið val­inn aftur í lands­liðið.

Fólk veltir því fyrir sér hvaða á­hrif þetta hefur á bar­átt­una. Þetta hefur í fyrsta lagi á­hrif á þol­endur og þannig hefur þetta á­hrif á okkur en þetta hefur engin sér­stök á­hrif á bar­átt­una. Bar­áttan rís ekki og fellur með fót­bolta­mönnum. Aron Einar er bara enn einn meinti nauð­gar­inn sem kemst upp með það í skjóli for­rétt­inda af því hann stundar tuðru­spark.

Þetta kemur okkur ekk­ert á ó­vart, við vorum búnar að búa okkur undir þetta. Við höldum bara á­fram okkar striki og ef eitt­hvað er þá kyndir þetta undir eld­móð okkar, enda mikil stað­fest­ing á öllu sem við höfum sagt síð­ustu 15 mán­uði og viljum berj­ast gegn. Þetta undir­strikar að mann­orðs­morð eru ekki til, slauf­unar­menn­ing á ein­ungis við þol­endur og fólk getur því hætt að öskra ,,á að taka menn af lífi án dóms og laga”. Það er ekki slaufun að taka pásu í nokkrar vikur eða mán­uði og koma síðan til baka án þess að þurfa svo mikið sem að líta í eigin barm eða axla á­byrgð.

Þetta stað­festir bara að við erum komin stutt og að á bar­átt­unni sé þörf. Þetta stað­festir orð okkar um að lífs­viður­væri karla liggur ekki undir þó þeir séu sak­aðir um of­beldi. Þetta stað­festir að nauðg­unar­menn­ing þrífst innan KSÍ og að þol­endum er ekki trúað. Við sjáum núna skýra af­stöðu karla­lands­liðs­ins og lands­liðs­þjálf­ara og okkur finnst þá sann­gjarnt að velta hér upp sið­ferðis­kennd þeirra.

Af hverju trúa þeir ekki þol­endum? Af hverju skiptir fót­bolta­frami og góður árangur í fót­bolta meira máli en að trúa og standa með þol­endum? Hvað með þá innan liðs­ins sem vilja ekk­ert með of­beldi hafa, þeir hljóta að vera ein­hverjir? Hvernig á­hrif mun þetta hafa á móral­inn? Er mórall­inn ekki líka ein­hvers virði?

Ætlum við virki­lega að sýna ungum iðk­endum sem dreymir um að spila fyrir lands­liðið að Aron Einar, sem kærður var fyrir hóp­nauðgun, sé fyrir­mynd? Hvaða skila­boð sendir það?

Þessi á­kvörðun mun fæla aðra þol­endur frá því að skila skömminni og leita réttar síns. Þetta mun vekja upp efa­semdir þess efnis að KSÍ standi með þol­endum. Það er enn­þá langt í land að jafna kynja­hall­ann innan KSÍ og þessi á­kvörðun hjálpar ekki að kven­kyns iðk­endur upp­lifi öryggi innan fé­lags­ins þegar stað­reyndin er sú að flestir þol­endur eru konur. Konur innan hreyf­ing­ar­innar eiga rétt á því að vera séðar og að á þær hlustað sem og þol­endur í heild sinni.

Þetta er stærsta æsku­lýðs­stofnun lands­ins.

For­gangs­röð­unin ætti að vera önnur, þar sem öryggi og rödd þol­enda ætti að vega hærra en að moka inn pen­ingum frá FIFA út á vel­gengni meintra of­beldis­manna.

Af hverju er lið­inu og þjálf­ar­anum meira annt um að vernda orð­spor lúins Aron Einars á kostnað þol­anda? KSÍ seg­ist standa með þol­endum, sýnið það þá í verki. Hér er til­valið tæki­færi fyrir KSÍ að móta reglur varð­andi endur­komu og endur­hæf­ingu. Fyrsta skrefið á þó alltaf að vera að meintur ger­andi viður­kenni brot sín, biðj­ist af­sök­unar og bæti sig. Fyrir­myndir unga fólks­ins okkar eiga að sýna sam­fé­lags­lega á­byrgð.

Við þurfum sér­stak­lega betri reglu­gerð utan um niður­felld mál þar sem við vitum að niður­fell­ing er ekki það sama og sak­leysi. Munum að ein­ungis lág pró­senta mála er byggð á röngum sökum, svo lág að við getum gefið okkur að 95-99% mála séu sönn. Munum að þrátt fyrir þá töl­fræði eru flest mál felld niður og því endur­speglar réttar­kerfið á engan hátt sak­leysi meintra ger­enda.

Að mál séu niður­felld þýðir ekki að meintir ger­endur séu sak­lausir. Það þýðir ein­ungis að ekki hafi verið hægt að sanna sekt meints ger­anda fyrir dóm­stólum. Niður­fell­ing er ekki sýknun. Niður­fell­ing er ekki efi á því sem gerð­ist, niður­fell­ing þýðir ekki að við eigum ekki að trúa þol­endum.

Sönnunar­byrði í nauðg­unar­málum er mjög þung og því er mjög al­gengt að mál eru felld niður, kyn­ferðis­brot fara fram á bak­við luktar dyr þar sem sjaldan eru vitni.

En réttar­kerfið okkar vegur orð meintra ger­enda alltaf þyngra en orð þeirra sem brotið er á.

Kveðja, Öfgar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við