Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Olíufélögin sviku viðskiptavini um milljarða: – „Eins al­var­legt og hægt er að hugsa sér“

Olíufélögin sviku viðskiptavini um milljarða: – „Eins al­var­legt og hægt er að hugsa sér“

Þrjú stærstu olíu­fé­lög Íslands, sem þá gengu undir heit­unum Olíu­fé­lagið Olís, Skelj­ungur og Olíu­fé­lagið, voru fyrir Hæsta­rétti árið 2016 dæmd til að greiða 1,5 millj­arð króna í sekt­ar­greiðslur vegna ólög­legs sam­ráð á olíu­verði hér á landi. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hélt því þá fram að olíu­fé­lögin þrjú hefðu hagn­ast um 6,5 millj­arð króna með sam­ráð­inu.

Olíu­sam­ráðs­málið hófst hins vegar 18. des­em­ber árið 2001 þegar lög­reglan gerði hús­leit í höf­uð­stöðvum Skelj­ungs, Olís og Olíu­fé­lags­ins, ásamt starfs­mönnum sam­keppn­is­stofu, og lögðu þar hald á gögn vegna rann­sóknar á brotum gegn neyt­endum með víð­tæku og ólög­mætu sam­ráði um verð­lagn­ingu.

Rannsókn máls­ins tók þrjú ár og tók til sam­ráðs frá árinu 1993 til 2001. Þremur árum síðar sektaði Sam­keppn­is­ráð olíu­fé­lögum um sam­tals tvo millj­arða og 525 millj­ónir króna en talið var að félögin hefðu hagn­ast um 6,5 millj­arða króna á sam­ráð­inu. Olíu­fé­lögin vís­uðu mál­inu til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála sem úrskurð­aði að sektin skyldi lækkuð í einn og hálfan millj­arð króna.

Olíu­fé­lögin þrjú höfðu meðal ann­ars sam­ráð um verð­lagn­ingu á fljót­andi elds­neyti, gasi, smur­olíu og tengdum vörum.

Sektin felld niður

Í októ­ber 2004 komst Sam­keppn­is­ráð, for­veri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, að því að Olís, Skelj­ungur og Olíu­fé­lagið hefðu framið mjög alvar­leg brot á sam­keppn­is­lögum, með ólög­mætu sam­ráði sín á milli um verð á olíu. Úrskurð­ar­nefnd áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála komst í kjöl­farið að þeirri nið­ur­stöðu að sekta félögin þrjú um 1,5 millj­arð króna.

„Eng­um blöðum er um það að fletta, að þetta var ólög­mætt sam­ráð og eins al­var­legt og hægt er að hugsa sér. Það er ekki hægt að svindla meira á sam­keppni en með sam­ráði,“ sagði Heim­ir Örn Her­berts­son, lög­maður Sam­keppnis­eft­ir­lits­ins, þegar málið var fyrst tekið fyrir í hér­aðs­dómi.

Eftir langa máls­með­ferð var loks­ins úrskurðað fyrir hér­aðs­dómi í mars 2012 að félögin hefður haft með sér ólög­mætt sam­ráð en sekt félag­anna felld úr gildi þar sem brotið hefði veirð á and­mæla­rétti olíu­fé­lag­anna í máls­með­ferð­inni. Lá fyrir að olíu­fé­lögin hefðu haft með sér ólög­legt sam­ráð en ekki hefði verið hægt að sak­fella eða sekta þau þar sem málið hefði bæði verið rann­sakað af lög­reglu og sam­keppn­is­yf­ir­völdum.

Skiptu markaðnum á milli sín

Við þessa nið­ur­stöðu gat Sam­keppn­is­eft­ir­litið ekki unað og skaut mál­inu því til Hæsta­réttar. Málinu var hins vegar aftur vísað til hér­aðs­dóms, vegna veru­legra galla á mála­til­bún­aði og höfð­uðu olíu­fé­lögin þrjú ný dómsmal sem enn mið­uðu að því að fá úrskurði áfrýj­un­ar­nefnd­ar­innar, um 1,5 millj­arða sekt­ar­greiðslu, hnekkt.

Það var svo árið 2016 sem Hæsti­réttur féllst loks á það með sam­keppn­is­yf­ir­völdum að olíu­fé­lögin hafi framið mjög alvar­leg brot á sam­keppn­is­lögum og að hæfi­legar sektir félag­anna skuli nema sam­tals 1,5 millj­örðum króna.

Samráð olíu­fé­lag­anna var margs­konar og stóð yfir að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lit­is­ins frá óslitið frá árinu 1993 til árs­loka 2001. Höfðu þau meðal ann­ars sam­ráð um um verð­lagn­ingu á fljót­andi elds­neyti, gasi, smur­olíu og tengdum vörum. Auk þess höfðu olíu­fé­lögin með sér umfangs­mikið sam­ráð um gerð til­boða í tengslum við form­leg útboð en dæmi um þolendur þessa sam­ráðs olíu­fé­lag­anna voru Reykja­vík­ur­borg, Síminn og Land­helg­is­gæslan.

Olíu­fé­lögin gripu einnig til margs konar aðgerða í því skyni að skipta á milli sín mark­aðnum fyrir olíu­vörur hér á landi. Aðgerð­irnar mið­uðu að því að skipta á milli félag­anna mark­aðnum eftir land­svæðum, við­skipta­vinum eða eft­ir­sölu og magni. Félögin náðu t.d. sam­komu­lagi um að Skelj­ungur myndi sitja einn að bens­ín­sölu í Grinda­vík og þau skiptu með sér við­skiptum, til dæmis á Ísafirði og Stykk­is­hólmi.

„Þetta geta ekki verið tilviljanir“

Í áraraðir höfðu verið uppi ásak­anir um verð­sam­ráð milli olíu­fé­lag­anna á Íslandi. Neyt­enda­sam­tökin kærðu olíu­fé­lögin til Sam­keppn­is­stofn­unar árið 1997 en sú rann­sókn dróst í fjögur ár. „Í minni tíð sem við­skipta­ráð­herra var þessi skipt­ing ekki hafin nema hvað að á stöku stað voru olíu­fé­lögin öll þrjú með eina stöð. Nú virð­ist þetta breytt og aðeins eitt félag ann­ast bens­ín­söl­una á hverjum stað. Og ekki bara það heldur eru allar verð­breyt­ingar hjá olíu­fé­lög­unum ávallt upp á krónu þær sömu og líka tima­setn­ing þeirra,“ sagði Sig­hvatur Björg­vins­son, fyrr­ver­andi við­skipta­ráð­herra, um olíu­sam­ráðs­málið á sínum tíma: „Þetta geta ekki verið til­vilj­anir með verð­lagn­ing­una. Líkurnar fyrir því að um til­vilj­anir sé að ræða eru stjarn­fræði­legar.“

Eins og áður sagði fram­kvæmdi Sam­keppn­is­stofnu hús­leit rétt fyrir jólin árið 2001 hjá skrif­stofum olíu­fé­lag­anna og fjar­lægði ýmis gögn til rann­sóknar. Grunur lék á að olíu­fé­lögin hefðu brotið gegn 10. grein sam­keppn­islag­anna nr. 7/1993 um ólög­mætt sam­ráð. Til leit­ar­innar þurfti heim­ild dóm­ara. Í kjöl­farið kröfð­ust olíu­fé­lögin þess að öllum tölvu­gögnum sem lagt var hald á yrði eytt þar sem leitin hafi verið ólög­leg.

Rann­sókn­inni lauk í októ­ber 2004 með tæp­lega þús­und blað­síðna skýrslu þar sem fram kom „að olíu­fé­lögin hafi frá gild­is­töku sam­keppn­islaga haft með sér yfir­grips­mikið og óslitið sam­ráð um verð, mark­aðs­skipt­ingu og gerð til­boða.“ Samkvæmt nið­ur­stöðnum var­aði sam­ráðið að minnsta kosti frá mars 1993 til des­em­ber 2001 – allan þann tíma sem olíu­fé­lögin höfðu starfað á frjálsum mark­aði. Hagnaður olíu­fé­lag­anna á sam­ráð­inu nam í það minnsta 6,5 millj­örðum að mati Sam­keppn­is­stofn­unar en lík­lega hafi heild­ar­tap sam­fé­lags­ins vegna sam­ráðs­ins hlupið á tugum millj­arða.

Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, fyr­ir­tækin skipt um eig­endur – lykl­stjórn­endur látið af störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina