Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Bryndís Haraldsdóttir: „Mikið var um sjálfsvíg“

Bryndís Haraldsdóttir: „Mikið var um sjálfsvíg“
Bryndís Har­alds­dóttir

„Ég hef starfað í Sjálf­stæð­is­flokknum í um 20 ár, fyrst á vett­vangi sveit­ar­stjórnar og svo nú á þing­inu. Ég hef trölla­trú á flokknum bæði grunn­stefnu hans – sem ég tel bestu stefn­una fyrir Ísland og íslenska þjóð, enda hefur það einmitt sýnt sig að fram­farir okkar á síð­ustu 100 árum hafa leitt íslensku þjóð­ina úr sárri fát­tækt í að vera það sam­fé­lag í heim­inum þar sem vel­sæld er hvað mest – en ég hef líka svo mikla trú á gras­rót­inni og flokks­starf­inu, enda flokk­ur­inn stór og hefur á að skipa öfl­ugu fólki um land allt sem vinnur undir merkjum flokks­ins í sínu sam­fé­lagi,“ segir Bryndís Har­alds­dóttir alþing­is­maður sem hefur gefið kost á sér sem rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „Ég hef líka lengi verið á þeirri skoðun að við getum gert enn betur. Starf rit­ara snýr fyrst og síð­ast að innra starfi flokks­ins. Ég hef ýmsar hug­myndir um hvernig hægt er að tengja betur saman full­trúa okkar í sveit­ar­stjórnum um land allt og hvernig hægt sé að styðja þetta fólk betur og tengja okkur öll sem á vett­vangi flokks­ins vinnum.“

Á COP 26 í Glasgow.

Horft sé til hagsmuna barnsins

Hvers vegna fór Bryndís upp­haf­lega í stjórn­mál?

„Upp­haf­lega fór ég í stjórn­mál í sveit­ar­fé­lag­inu mínu, Mos­fellsbæ, vegna þess að ég brann fyrir leik­skóla­málum og skóla­málum; og geri það að sjálf­sögðu enn. En sem ung móðir fann ég fyrir því gati sem til staðar var frá því fæð­ing­ar­or­lofi sleppti, dag­for­eldrar og svo leik­skóli. Það hefur margt batnað í þessum mála­flokki síðan þá en dóttir mín er 22 ára. En því miður heyrum við enn sögur af því hversu margar fjöl­skyldur eru í vanda og á það þá sér­stak­lega við um Reykja­vík.

Hér er um stærsta jafn­rétt­is­mál kynj­anna að ræða.

Fáir orlofs­dagar ungs fólks og svo margir skipu­lags­dagar og lok­anir leik­skóla á sumrin eru þættir sem mér fannst algjör­lega ótækir. Ég veit að mörg sveit­ar­fé­lög eru að standa sig vel í þessum efnum en önnur ekki en svo hefur fæð­ing­ar­or­lofið auð­vitað verið lengt. En þrátt fyrir að margt sé vel gert horfum við enn fram á að verk­efnin eru ærin. Þekk­ingin á mik­il­vægi leik­skóla­stigs­ins hefur líka auk­ist mikið og það eru krefj­andi og spenn­andi verk­efni fram undan í upp­bygg­ingu leik­skóla­stigs­ins fyrir yngri börn. Við þurfum að tryggja að ávallt sé horft til hags­muna barns­ins og að þau njóti sem mestra sam­vista við báða for­eldra og að for­eldrar fái þjón­ustu við hæfi. Öflug og góð þjón­usta við börn á þessum aldri er bæði mik­il­væg fyrir þau og þroska þeirra en líka fyrir fjöl­skyld­urnar og hér er um stærsta jafn­rétt­is­mál kynj­anna að ræða.“

Hvers vegna kaus Bryndís að ganga í og vinna fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn?

„Ég setti mig vel inn í málin áður en ég skráði mig í flokk­inn. Ég skoð­aði stefnur þeirra flokka sem þá voru til og komst fljótt að því að grunn­stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins talar til hjarta míns. Trú flokks­ins á ein­stak­ling­inn er lík­lega það sem mér finnst mik­il­væg­ast; það að trúa á mark­að­inn og tak­mörkuð rík­is­af­skipti er það sem talar til hjarta míns vegna þess að ég trúi því að sú leið sé best til að tryggja hér öfl­ugt vel­ferð­ar­ríki.“

Á þingi þing­for­seta smá­ríkja í Svart­fjalla­landi.

Loftslagsbreytingar

16 ára reynsla úr sveit­ar­stjórn­ar­málum, hún var bæj­ar­full­trúi í Mos­fellsbæ í átta ár og vara­bæj­ar­full­trúi í átta ár þar á undan.

„Ég var lengst af for­maður skipu­lags­nefndar á mesta upp­bygg­ing­ar­skeiði í bæj­ar­fé­lag­inu. Ég var jafn­framt for­maður bæj­ar­ráðs, sat sem for­seti bæj­ar­stjórnar, var stjórn­ar­for­maður Strætó, sat í svæð­is­skipu­lags­nefnd og hef gegnt ýmsum trún­að­ar­störfum á vett­vangi sveit­ar­fé­lag­anna. Árið 2016 varð ég svo þing­maður, en ég hafði reyndar verið vara­þing­maður á árunum 2005-2007, ég er for­maður alls­herjar og mennta­mála­nefndar og sit í fjár­laga­nefnd. Áður hef ég setið í efna­hags- og við­skipta­nefnd, utan­rík­is­mála­nefnd og verið vara­for­seti þings. Í þing­stör­f­unum hefur dýr­mæt reynsla mín úr sveit­ar­stjórn nýst vel.“

Bryndís seg­ist lengi hafa haft mik­inn áhuga á umhverf­is­málum. „Á vett­vangi sveita­stjórna átt­aði ég mig fljótt á því hvað skipu­lags­málin skipta miklu máli þegar kemur að umhverf­is­málum. Ég held að því miður höfum við of seint farið að horfa til aðlög­unar að lofts­lags­breyt­ingum. En á sama tíma og við þurfum að minnka útblástur og áhrif okkar á nátt­úr­una þá þurfum við líka að sætta okkur við þær breyt­ingar sem orðnar eru og munu verða. Við verðum að hugsa í öllu skipu­lagi og inn­viða­upp­bygg­ingu um það hvernig við tryggjum öryggi okkar. Líklega eru lofts­lags­breyt­ingar okkar helsta vá.

Við þurfum að verj­ast ógn­inni og nýta tæki­færin.

Ísland er norð­ur­slóða­ríki og á norð­ur­slóðum sjást best þær gríð­ar­legu breyt­ingar sem eru að verða. Þar hlýnar þrisvar sinnum hraðar en ann­ars staðar á jörð­inni og áhrifin eru eftir því. Þessar breyt­ingar eru ógn­vekj­andi en í þeim geta líka falist ákveðin tæki­færi. Við þurfum að verj­ast ógn­inni og nýta tæki­færin,“ segir Bryndís sem leiddi þverpóli­tíska nefnd sem vann að end­ur­skoð­aðri norð­ur­slóða­stefnu sem þingið sam­þykkti á síð­asta kjör­tíma­bili.

Á hlaupum á Fimmvörðuhálsi.

Elskar fjallahlaup

Bryndís er þriggja barna móðir úr Mos­fells­bænum en þar hefur hún búið frá því hún flutti frá Akureyri 10 ára gömul. „Ég ein­fald­lega elska Mosó. Þetta átti að vera stutt stopp hjá for­eldrum mínum sem leit­uðu að íbúð í Reykja­vík en ég var fljót að finna mig í fal­legu Mos­fells­sveit­inni og fékk að ráða. Og hér er ég enn og þau reyndar líka.“

Hvað með menntun og fyrri störf?

„Ég fór í Verzló og svo í gamla Tækni­skól­ann og útskrif­að­ist þaðan með B.sc í alþjóða­mark­aðs­fræði. Síðar hef ég svo lært opin­bera stjórn­sýslu en ég skulda enn rit­gerð­ina þar. Ég starf­aði lengi hjá Nýsköp­un­ar­mið­stöð við að aðstoða frum­kvöðla og nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki meðal ann­ars í að leita sam­starfs­mögu­leika og styrkja hjá Evr­ópu­sam­band­inu. Ég hef líka staðið í atvinnu­rekstri sjálf en stjórn­málin hafa átt hug minn allan í nokkuð langan tíma.“

Hef hlaupið Lauga­veg­inn, klárað Land­vætt­inn og alla tind­anna í Mosó.

Hvað með áhug­mál þegar vinn­unni og stjórn­mála­vaf­stri sleppir?

„Ég fædd­ist árið 1976 og er því með réttu mið­aldra, eitt­hvað sem ég er enn að ná utan um en áhuga­málin eru alla­vega mjög mið­aldra. Ég elska fjalla­hlaup og úti­vist og skrái mig í alls konar vit­leysu og hef hlaupið Lauga­veg­inn, klárað Land­vætt­inn og alla tind­anna í Mosó og er því stoltur tinda­höfð­ingi. Núna leita ég að næstu áskorun.“

Verzló, gamli Tækni­skól­inn og opin­ber stjórn­sýsla. Og alþing­is­maður í dag. Hverjir voru draum­arnir áður fyrr?

„Ég hefði aldrei spáð því að ég myndi starfa á vett­vangi stjórn­mála; ég sá frekar fyrir mér að vera í atvinnu­líf­inu og helst í eigin atvinnu­rekstri en vonum að ég eigi eftir að láta þá drauma líka ræt­ast. Ég hef lengi sagst vilja verða prestur þegar ég verð stór. Annar afi minn, Rúnar Guð­bjarts­son, er mér mikil fyr­ir­mynd en hann var flug­stjóri sem á seinni árum fór svo að læra sál­fræði og end­aði starfs­fer­il­inn sem sál­fræð­ingur. Hver veit nema draumar mínir um að verða prestur á Snæ­fells­nesi verði að veru­leika einn dag­inn.“

Dansað við afa á 85 ára afmæli hans.

Njóta lífsins

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað alþing­is­mann­inn?

„Ég held að lífs­reynsla mín á ung­lings­ár­unum þegar mikið var um and­lát ungs fólks í kringum mig sé lík­lega það sem hafi hvað mest markerað mig. Mikið var um sjálfs­víg og það er sár­ara en tárum tekur að ein­hver nákom­inn telji það vera best að kveðja þennan heim. Það er bitur og sár reynsla og eitt­hvað sem án ef hefur haft áhrif á mig og mótað mig sem per­sónu. Mér er umhugað um fólkið í kringum mig og vil leggja mitt af mörkum til að fólk­inu mínu líði vel og vera aðili sem hægt er að leita til ef eitt­hvað bjátar á. Stundum tekst það vel en örugg­lega ekki alltaf.

Annars held ég að mik­il­væg­ast lexían sé að njóta lífs­ins þegar hægt er því það eina sem er öruggt í þessum heimi er að við munum öll deyja. Sem betur fer vitum við ekki hvenær við verðum kölluð til ann­arra starfa og þurfum því að standa okkur þar til að því kemur og muna að njóta á meðan.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina