Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Segir Svandísi nákvæmlega sama: „Þá var hann laminn í hálftíma og líklega er skepnan bara dauð“

Segir Svandísi nákvæmlega sama: „Þá var hann laminn í hálftíma og líklega er skepnan bara dauð“
Illa farið með fal­legar skepnur. Mynd: Steinunn Árnadóttir

Steinunn Árna­dóttir hesta­kona segir Mat­væla­stofnun algjör­lega van­hæfa en hún kom hrossa­níð­ings­mál­inu í Borg­ar­nesi á hreyf­ingu. Það gerði Steinunn með því að birta ljós­myndir af illa förnum hross­unum sem um var rætt.

Steinunn Árna­dóttir

„Þetta er mjög sorg­legt. Kerfið er algjör­lega að bregð­ast enda tók Rík­is­end­ur­skoðun þá afdríf­a­ríku afstöðu eftir að málið kom upp, að þeir myndu fara yfir þessa verk­ferla hjá þeim,“ sagði Steinunn í sam­tali við Mannlíf.

Hefur áhyggjur af vetrinum

Aðspurð hvort hún vissi hvað væri að frétta um hrossin og hvar þau séu stödd sagði Steinunn að hrossin væru ekki komin aftur á sinn stað eftir að hafa verið færð í skjóli nætur. „Þetta eru um 28 hestar sem þessir ein­stak­lingar eru með rétt fyrir ofan Borg­ar­nes og þar eru þau enn. En það er ekk­ert verið að fylgj­ast með þeim. Og nú stefni í vet­ur­inn og kulda en ég var þarna einmitt í morgun [fyrir helgi, inn­skot blaða­manns] og vegna þess að það var fínt veður þá var þetta í lagi en manni lýst ekk­ert á blik­una þegar það fer að kólna því þau eru búin að vera inni í heilt ár.“ Aðspurð um hold­ar­farið á hross­unum segir Steinunn að þau séu útþanin og bætti við „þau voru auð­vitað svo svöng og eru útþanin núna en það er ekk­ert að marka fyrr en maður kemur nær og snertir þau, til að sjá hvernig þau hafa bragg­ast. En það lýtur ekk­ert vel út með þau, þau eru ekki und­ir­búin fyrir vet­ur­inn og ef þau verða sett inn af þessu sömu aðilum þá nátt­úru­lega er þetta áfram svona hor­fóðrun, þannig að það myndi ekki vera neitt líf. Það sýnir sig nátt­úru­lega með þessum hætti, eins og hvernig þessi trippi voru að þessir ein­stak­lingar eru alls ekki hæfir til að vera með skepnur. Það ætti að vera deg­inum ljós­ara með þessum myndum og maður er bara argur yfir því að það sé ekki búið að taka þessar skepnur af þeim.“ Steinunn segir að fyrri eig­endur hest­anna vilji fá þá aftur til baka. „Það eru nokkrir aðilar sem hafa haft sam­band við mig, fólk sem er að reyna að fá þessi trippi til baka, þau vilja ekki sjá þau í þess­ari nið­ur­læg­ingu. Það ætti að vera búið að svipta þessum ein­stak­lingum umráðum yfir þessum skepnum. Maður er mjög svekktur að það sé ekki búið.“

Illa farið með fal­lega skepnu.

Kerfið virkar ekki

Steinunn segir að vegna fjöl­miðlaum­fjall­anna og birt­ingu ljós­mynd­anna af hross­unum hafi ein­stak­ling­arnir verið mál­aðir út í horn og því fjar­lægt hrossin „í skjóli næt­urs“. Segir hún einnig að Mat­væla­stofn­unin hafi vitað af mál­inu í langan tíma en ekki aðhafst neitt. „Það voru bara engin svör. Ég hringdi í Guðlaug Ant­ons­son sem er eft­ir­lits­maður en hann svar­aði ekki. Ég hringdi held ég þrisvar sinnu í hann en hann svar­aði aldrei. Og ég sendi pósta en þetta er þannig tölvu­póst­kerfi hjá MAST að þú færð aldrei senda stað­fest­ingu á að tölvu­póst­ur­inn hafi verið mót­tek­inn, þannig að þeir geta alveg sagt að það sé eng­inn póstur hjá þeim. Ég þekki fjöldan allan af fólki sem segir mér að það hafi látið MAST vita af þessu. En MAST er ekki að virka, það er algjör­lega búið að sanna sig.“

Illa farið með fal­legar skepnur.

„Svandísi er nákvæmlega sama“

Steinunn seg­ist ótt­ast að ekk­ert verði gert í mál­inu: „Maður ótt­ast bara að þetta fólk fái að hafa skepn­urnar áfram og það er búið að sýna fram á að það er ekki í lagi að þau séu með skepnur undir höndum.“ Nefnir Steinunn að hún hafði sent Svandísi Svav­ars­dóttur bréf á dög­unum þar sem hún sagði henni frá mis­þyrm­ingu á kú sem fest­ist í skurði hjá þessum sömu ein­stak­lingum. „Ég sendi henni þetta á mið­viku­dag­inn því það hringdi í mig nágranni þeirra sem horfði á mann­inn mis­þyrma naut­grip sem hafði dottið út í skurð og var hjálpað upp úr skurð­inum en stóð þá ekki í fæt­urnar. Þá var hann lam­inn í um hálf­tíma og lík­lega er skepnan bara dauð. Þau voru svo miður sín, þessir nágrannar að þau hringdu í mig og þau hringdu í lög­regl­una og ég sendi þetta bréf á Svan­hildi. Ég hef ekki fengið eitt ein­asta svar frá Svandísi, henni er svo nákvæm­lega sama. Ég minnti hana á það í bréf­inu að sem mat­væla­ráð­herra hafi hún yfir­um­sjón með vel­ferð dýra. En það á sýni­lega ekki upp á pall­borðið núna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina