Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Dómsmálaráðuneytið um fund Brynjars og Namibíumanna: „Umfjöllunarefnið er í eðli sínu viðkvæmt“

Dómsmálaráðuneytið um fund Brynjars og Namibíumanna: „Umfjöllunarefnið er í eðli sínu viðkvæmt“
Myndin er sam­sett.

Dóms­mála­ráðu­neytið svar­aði kæru blaða­manns Mannlífs vegna synj­unar ráðu­neyt­is­ins á gögnum og upp­lýs­ingum er vörð­uðu fund emb­ætt­is­manna rík­is­stjórnar Namibíu og Brynjars Níels­sonar, aðstoð­ar­manns Dóms­mála­ráð­herra í sumar. Brynjari sagði á Facebook að emb­ætt­is­menn­irnir hafi viljað ræða Sam­herj­a­málið en fékkst ekki til að segja meira.

Fimm spurningar, þrjú svör

Mannlíf sendi upp­runa­lega fimm spurn­ingar og bað um að fá að sjá minn­is­blað frá leyni­fund­inum. Spurn­ing­arnar voru eft­ir­far­andi:

1. Hver var til­gangur fund­ar­ins?
2. Bar mál gegn Samherja á góma á fund­inum?
3. Hverjir voru nákvæm­lega við­staddir fund­inn?
4. Hvernig stóð á að fund­ur­inn var haldin? Hver bað um fund­inn?
5. Hversu lengi stóð hann yfir?

Svarið sem loks­ins barst 13 dögum eftir beiðni um svör, var eft­ir­far­andi:

Dóms­mála­ráðu­neyt­inu barst ósk í gegnum for­sæt­is­ráðu­neytið með litlum fyr­ir­vara, frá emb­ætt­is­mönnum frá Namibíu, um að hitta dóms­mála­ráð­herra. Ráðherra var ekki við­lát­inn þennan dag og því mættu tveir skrif­stofu­stjórar ráðu­neyt­is­ins og einn stað­geng­ill skrif­stofu­stjóra, ásamt aðstoð­ar­manni ráð­herra á fund­inn.  Fund­ur­inn stóð yfir í rúma klukku­stund.
Hvað varðar inni­hald fund­ar­ins og minn­is­blöð af honum er vísað í 10 gr. laga um upp­lýs­inga­mál nr. 140/2012
10. gr. Tak­mark­anir á upp­lýs­inga­rétti vegna almanna­hags­muna.
Heimilt er að tak­marka aðgang almenn­ings að gögnum þegar mik­il­vægir almanna­hags­munir krefj­ast, enda hafi þau að geyma upp­lýs­ingar um: […]    2. sam­skipti við önnur ríki eða fjöl­þjóða­stofn­anir.

Svar við kærunni

Lítur Dóms­mála­ráðu­neytið svo á að það hafi svarað spurn­ingum 3, 4 og 5. Í svar­inu segir ráðu­neytið að mála­til­bún­aður kær­anda sé ekki umfangs­mik­ill en telji þó „skýrt af honum að kær­andi telji það kjarna þessa máls hvort áskiln­aði 10. gr. upp­lýs­inga­laga nr. 40/2021 um mik­il­væga almanna­hags­muni sé full­nægt.“ Segist ráðu­neytið sam­mála þessu en „vísar jafn­framt til trún­að­ar­gagna sem umsögn þess­ari fylgja og umfjöll­unar um þau.“

Enn­fremur segir í svari dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins að í grein­ar­gerð með frum­varpi til upp­lýs­inga­laga er í skýr­ingum með ákvæði 10. gr. sé að finna eft­ir­far­andi texta: Með orða­lag­inu „þegar mik­il­vægir almanna­hags­munir krefj­ast“ er vísað til þess að beiðni um upp­lýs­ingar verður ekki synjað, hvorki í heild né að hluta, nema aðgangur almenn­ings að upp­lýs­ingum muni skaða ein­hverja af þeim almanna­hags­munum sem til­greindir eru í ákvæð­inu. Þessir hags­munir eru tæm­andi taldir, en hver tölu­liður sætir sjálf­stæðri skýr­ingu með til­liti til eðlis þeirra upp­lýs­inga sem um ræðir.

Segist ráðu­neytið hafa haft sam­ráð við Utan­rík­is­ráðu­neytið vegna máls­ins og aflað þaðan upp­lýs­inga um hvernig almennt sé háttað upp­lýs­inga­gjöf um fundi með sendi­mönnum erlendra ríkja. Samkvæmt Dóms­mála­ráðu­neyt­inu leggst Utan­rík­is­ráðu­neytið „afdrátt­ar­laust gegn því að upp­lýst sé um efni funda með sendi­mönnum erlendra ríkja.“

Í nið­ur­lagi svars­ins færir ráðu­neytið rök fyrir ákvörðun sinni að svara ekki öllum spurn­ingum Mannlífs:

„Synj­un­inni til rök­stuðn­ings vís­ast til ákvæðis 2. tölu­liðar 10. gr. upp­lýs­inga­laga. Af ákvæð­inu leiðir að heim­ilt er að tak­marka upp­lýs­inga­rétt almenn­ings þegar mik­il­vægir almanna­hags­munir krefj­ast, enda hafi gögn að geyma upp­lýs­ingar um sam­skipti við önnur ríki eða fjöl­þjóða­stofn­anir. Gögnin sem um ræðir í þessu máli varða sam­skipti stjórn­valda við erlent ríki og umfjöll­un­ar­efnið er í eðli sínu við­kvæmt, ekki síst frá sjón­ar­hóli hins erlenda stjórn­valds. Geti erlendir sendi­menn ekki treyst því að trún­aður um sam­skiptin sé und­an­tekn­ing­ar­laust virtur, stefnir það nauð­syn­legu trún­að­ar­trausti í hættu. Þar með gætu stjórn­völd ekki átt í árang­urs­ríkum sam­skiptum við erlend ríki til að sinna lög­mæltum hlut­verkum sínum í þágu í íslenska rík­is­ins með þeim afleið­ingum að brýnir almanna­hags­munir yrðu fyrir borð bornir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina