Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Páll Vilhjálmsson í ham: „Lára V. skilnaðarlögfræðingur er með öll ráð veiku konunnar í hendi sér“

Páll Vilhjálmsson í ham: „Lára V. skilnaðarlögfræðingur er með öll ráð veiku konunnar í hendi sér“
Páll Vil­hjálms­son. Samsett mynd.

Kenn­ar­inn Páll Vil­hjálms­son bloggar sem aldrei fyrr:

Lára, RSK-miðlar og veika konan er yfir­skrift nýj­ustu færslu Páls, en þar segir meðal ann­ars:

„Í gögnum lög­reglu í RSK-saka­mál­inu er tölvu­póstur frá and­lega veikri konu dag­settur 3. októ­ber í fyrra. Við­tak­endur eru Lára V. Júl­í­us­dóttir lög­fræð­ingur, Þóra Arn­órs­dóttir á RÚV, Aðal­steinn Kjart­ans­son og Ingi Freyr Vil­hjálms­son, báðir á Stund­inni.

Texti tölvu­pósts­ins er eft­ir­far­andi: Sæl Lára. Ég gef hér með Þóru Arn­órs­dóttur og Aðal­steini Kjart­ans­syni umboð til að ná í sím­kortin mín til þín ef þau óska eftir því að fá þau í hendur ásamt öðru efni sem þú kannt að hafa frá mér.

Lára er skiln­að­ar­lög­fræð­ingur veiku kon­unnar. Hversu eðli­legt er að skiln­að­ar­lög­fræð­ingur fái sím­kort skjól­stæð­inga sinna? Sím­kortin eru í fleir­tölu, konan hafði a.m.k. tvo síma, lík­lega sinn eigin og afrit­aðan síma skip­stjór­ans. Hversu algengt er að fólk veiti blaða­mönnum að öllu sínu per­sónu­leg­asta? Hvorki er þetta eðli­legt né algengt. Andleg veik­indi þarf til. Veika konan er eins og leir i höndum RSK-blaða­manna sem fá umboð til að hnýs­ast í einka­gögn kon­unnar, vænt­an­lega til að eyða upp­lýs­ingum fyrri sam­skipti þegar lagt var á ráðin með að byrla Páli skip­stjóra, stela síma hans og afrita.“

Og Páll heldur áfram að skrifa og er hvergi bang­inn:

„Dag­setn­ingin 3. októ­ber er mik­il­væg. Samkvæmt grein­ar­gerð lög­reglu var veika konan í sinni fyrstu yfir­heyrslu tveim dögum síðar, 5. októ­ber. Slíkar yfir­heyrslur eru boð­aðar með minnst tveggja daga fyr­ir­vara. Lára og RSK-miðlar vissu um yfir­heyrsl­una. Inn­köllun Láru á sím­kort­unum átti að girða fyrir að upp­lýs­ingar í saka­máli kæmust til lög­reglu.“

Lára V. Júl­í­us­dóttir lög­maður.

Enn­fremur:

„Blaða­menn­irnir ætl­uðu að mæta á lög­fræði­stofu Láru, allir með umboð, til að fletta upp á fyrri sam­skiptum við veiku kon­una og eyða til að lög­reglan sæi ekki aðild þeirra að byrlun og gagna­stuldi. Án efa var lög­reglan við­búin og vissi hvers kyns yrði, hún hafði verið með málið í rann­sókn frá miðjum maí. Hver var verj­andi veiku kon­unnar í yfir­heyrslu lög­regl­unnar? Jú, skiln­að­ar­lög­fræð­ing­ur­inn Lára V.

Í grein­ar­gerð lög­reglu segir X [veika konan] var yfir­heyrður 5. októ­ber sl. Í þeirri yfir­heyrslu við­ur­kennir X að hafa óskað eftir að fá að skoða síma brota­þola [Páls skip­stjóra] og þegar hann neit­aði því kveðst X hafa snöggreiðst og farið fram og náð í svefn­lyf sem hann vissi ekki hvaða teg­und var og sett út í drykk brota­þola. Þegar þarna var komið í yfir­heyrsl­unni greip verj­and­inn inn í og trufl­aði yfir­heyrsl­una með þeim afleið­ingum að X tjáði sig ekki frekar.“

Páll bætir þessu við orð sín:

„Lára V. skiln­að­ar­lög­fræð­ingur og verj­andi er með öll ráð veiku kon­unnar í hendi sér. Lára er milli­göngu­maður um að afhenda RSK-blaða­mönnum aðgengi að per­sónu­legu lífi skjól­stæð­ings, sím­kort­unum og „öðru efni“, og kemur í veg fyrir að konan tjái sig um nán­ari máls­at­vik eftir að hún byrl­aði Páli skip­stjóra. Það er and­stætt reglum um stöðu verj­enda við yfir­heyrslur sak­born­inga að þeir grípi frammí og stöðvi yfir­heyrslur. En Láru lá á að hylma yfir aðild RSK-blaða­manna. Hér var meira í húfi en æra og orð­spor fjöl­miðla­manna. (Innan sviga: hér að ofan er játn­ing á glæp sem Þórður Snær rit­stjóri segir að hafi ekki verið fram­inn. Rit­stjór­inn er sá veru­leikafirrt­asti norðan Alpa­fjalla, – en mun ekki vera geð­veikur.)

Lára er, eins og áður hefur komið fram, einn af flokks­eig­endum Sam­fylk­ingar. Hún er frá stofnun flokks­ins innsti koppur í búri valda­kjarn­ans.“

Páll nefnir að „þing­menn Sam­fylk­ingar voru í start­hol­unum eftir að veika konan stal síma Páls skip­stjóra og fór með hann til afrit­unar á Efsta­leiti áður en hún skilað tæk­inu aftur á sjúkra­beð skip­stjór­ans – til að hann skyldi ekki gruna neitt mis­jafnt. Um leið og Stundin og Kjarninn fengu fréttir frá Glæpa­leiti, unnar upp úr síma Páls, til að birta sam­tímis þustu þing­menn Sam­fylk­ingar á opin­beran vett­vang til að blása upp málið um meinta deild Samherja. Þingmenn Sam­fylk­ingar höfðu for­skot. Skæru­liða­deildin átti að verða stóra málið í haust­kosn­ing­unum í fyrra.

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ingar var fljót til, „Er þakk­lát fyrir fjöl­miðla­fólk sem þorir,“ skrif­aði hún á Twitter.

Þing­maður sem þakkar glæpi ætti kannski að leita sér að öðru starfi. Ef Helga Vala vill vera í návist við fólk sem hún er þakk­lát gætu verið lausar stöður á Hólms­heiði eða Litla-Hrauni.“

Páll spyr hvort Lára „not­aði aðstöðu sína sem skiln­að­ar­lög­fræð­ingur að koma á sam­bandi milli RSK-miðla og veiku kon­unnar? Lög­reglan hefur enn ekki skilað af sér gögnum sem eru eldri en frá ágúst í fyrra. En það var í apríl og byrjun maí sem atlagan að Páli skip­stjóra var skipu­lögð og fram­kvæmd. Gögn um þá atburða­rás eru enn ekki lögð fram, verða mögu­lega ekki kynnt fyrr en í rétt­ar­sal.“

Párar að lokum:

„Með umboð­inu sem blaða­menn fengu 3. októ­ber til að lús­lesa eldri sam­skipti sín við til­ræð­is­mann­inn er aug­ljóst að þeir voru veru­lega áhyggju­fullir að sann­leik­ur­inn yrði opin­ber­aður; blaða­menn sem ótt­ast sann­leik­ann eru verr settir en þorskur á þurru landi. Enginn spyr þorsk um heið­ar­leika. Stjórn­mála­flokkar geta skipt um nafn. En það verður erf­ið­ara fyrir brota­menn RSK-saka­máls­ins að breiða yfir nafn og númer þegar öll gögn máls­ins verða lögð fram. Um RÚV og hjá­leig­urnar, Stundina og Kjarnann, þarf ekki að hafa mörg orð. Fjöl­miðlar sem stunda skipu­lagða glæp­a­starf­semi eru feigð­inni merktir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina