Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Herdís Stefánsdótir: Semur tónlistina við kvikmynd í leikstjórn leikstjóra The Sixth Sense

Herdís Stefánsdótir: Semur tónlistina við kvikmynd í leikstjórn leikstjóra The Sixth Sense
Herdís Stef­áns­dóttir

„Ég samdi í fyrra tón­list­ina við sjón­varps­s­er­í­una Y The Last Man sem var sýnd á Hulu og í tón­list­arteym­inu var Sue Jacobs, „music supervisor“, sem er búin að vera lengi í þessum bransa og fékk hún Emmy-verð­laun á sínum tíma. Hún hefur til dæmis unnið með leik­stjór­anum M. Night Shyamalan í 20 ár. Svo klárað­ist þetta verk­efni í fyrra­haust og í októ­ber hringdi umboðs­mað­ur­inn minn í mig og spurði hvort ég vissi hver leik­stjór­inn N. Night Shyamalan væri. Ég sagð­ist auð­vitað vita það og sagði að ég væri búin að vera mik­ill aðdá­andi hans síðan ég var lítil og sá The Sixth Sense í fyrsta skipti. Þá sagði umboðs­mað­ur­inn að Shyamalan vildi tala við mig eins fljótt og hægt er og spurði hvenær ég gæti talað við hann á Zoom-fundi. Þá vissi ég ekki að Sue Jacobs hafi sagt honum frá mér og hann var þá byrj­aður að leggja drög að hand­rit­inu fyrir þessa mynd, Knock at the Cabin. Hann hafði þá verið að hlusta á tón­list eftir mig og notað hana sem inn­blástur við að skrifa hand­ritið að mynd­inni. Hann er einmitt að hringja í mig núna. Má ég hringja í þig eftir eina mín­útu?,“ segir Herdís.

Hlé er gert á við­tal­inu en svo heldur það áfram eftir sím­talið á milli Herdísar og Shyamalan.

„Við erum í miklu síma­sam­bandi; við tölum mikið saman í síma um allar sen­urnar.“

Hún segir þó að að um sé að ræða thriller. Thriller hor­ror.

Herdís talar svo um Zoom-fund­inn sem þau Shyamalan héldu í fyrra. „Svo var ég ráðin strax í verk­efnið. Myndin var svo tekin upp í vor og þá kom ég inn í verk­efnið.“

Herdís má ekki enn segja um hvað myndin er. Hún segir þó að að um sé að ræða thriller. Thriller hor­ror.

Innblástur frá 1950´s Hollywood

Herdís er spurð hvernig tón­list hún semji við thriller hor­ror.

„Myndin er lag­skipt. Þetta er ekki ein­föld flétta þar sem er bara thriller. Í kjarn­anum eru miklu fleiri víddir af til­finn­ingum; tón­listin spannar því margar til­finn­inga­legar víddir. Ég þurfti að fara í smá­rann­sókn­ar­vinnu og ég get ekki sagt þér alveg hvernig rann­sókn­ar­vinnu ég þurfti að fara í til að semja af því að ég má ekki gefa það upp. En ég get sagt að það sem ég er að gera í þessu soundrakki er að ég er að taka svo­lítið inn­blástur frá 1950´s Hollywood. Ég er búin að vera að skoða Hitchock-myndir þar sem er tón­list frá tón­skáldum eins og Bernard Hermann sem ég elska og er eitt af mínum upp­á­halds­kvik­mynda­tón­skáldum. Í raun og veru er ég að sækja inn­blástur þangað. Það eina sem ég ætla að segja um mynd­ina án þess að gefa upp um hvað hún er að það er verið að vísa í bæði mynd­heim og sim­bolísma sem við þekkjum svo­lítið frá upp­haf­inu á hor­ror- og thriller-myndum. Og þess vegna fékk ég áhuga á að skoða þessar myndir sem voru að ger­ast á 6. ára­tugnum í Hollywood sem eru mjög flottar eins og til dæmis Vertigo eftir Hitchock. Þannig að ég er svo­lítið inn­blásin af því tíma­bili. Tón­listin verður tekin upp með stórri hljóm­sveit í London í nóv­em­ber. Þetta er stórt „orchestral soundtrak“. Engin eletróník.“

Magnað

Herdís segir að þegar hún semji tón­list fyrir kvik­myndir þá sé hún sögu­maður. „Það sem maður þarf að gera er að kafa mjög djúpt ofan í sög­una og ofan í per­són­urnar og þú ert í raun og veru að bæta við þess­ari fimmtu vídd í mynd­ina og í sög­una. Þá ertu oft að segja þá hluti sem ekki er beint verið að segja í sam­tal­inu heldur ert þú að bæta við ein­hverju auka­lega. Aukavídd. Þannig að í fyrsta lagi þarf maður að kafa djúpt ofan í sög­una og maður þarf eig­in­lega að fara lengra en það af því að maður þarf að fara í bak­sög­una og maður þarf að túlka þetta og fara í ein­hvern veg­inn hver er kjarn­inn í sög­unni, hver er kjarn­inn í mynd­inni og hvað erum við að segja með þessu öllu. Þannig að það er stærsti inn­blást­ur­inn að því hvernig maður byrjar að skrifa inn þemu og mótív. Svo er það fag­ur­fræðin í kvik­mynda­stílnum og mynda­tök­unni, lit­irnir og leik­ur­inn og allt það hefur í raun og veru áhrif á fag­ur­fræði­lega útsetn­ingu tón­list­ar­innar; hvernig tón­list passar inn í þennan heim. Er þetta líf­rænn heimur, er hann svo­lítið org­anískur eða er ég að fara út í elektróník? Þannig að allir þessir hlutir hafa áhrif á það þegar maður er að byrja hvernig tón­litin þró­ast og hvernig tón­list maður byrjar að semja fyrir hvert verk­efni.“

Herdís hafði lagt áhrif á að semja raf­tón­list áður en hún fór að semja kvik­mynda­tón­list og segir hún að hún hafi gaman af að skora á sjálfa sig í að gera eitt­hvað sem hún þekkir ekki alveg. „Og það er svo­lítið nýtt fyrir mig að fara í svona stórt hljóm­sveit­ar­verk þar sem ég er líka að fara í ákveðna hljóm­fræði sem ég hef ekki notað áður. Og það er þegar ég er að tala um inn­blástur frá Bernard Hermann; þetta er ákveðin tón­smíða­tækni, tón­smíða­að­ferðir, sem ég hef aldrei notað áður. Þannig að ég er búin að vera að stúd­era gömul skor og nótur og sjá hvernig þetta var skrifað á þessum tíma og í raun og veru er þetta ákveðið ferli við að læra og stækka sem tón­list­ar­maður.“

Þetta er algert ævin­týri fyrir mig að fá að fara inn í þennan heim.

Herdís er spurð hvað það þýði fyrir fer­il­inn og fram­tíð­ina að semja tón­list fyrir kvik­mynd í leik­stjórn M. Night Shyamalan.

„Þetta var svo­lítið stökk fyrir mig. Hann er búinn að vinna með mjög flottum tón­skáldum eins og með James Newton Howard í The Sixth Sense sem var eitt stærsta tón­skáldið í Hollywood á þeim tíma. Þannig að þetta er mikið tæki­færi og mangað að fá að vinna með ein­hverjum sem er með allan þennan feril og þessa reynslu. Þetta er algert ævin­týri fyrir mig að fá að fara inn í þennan heim,“ segir Herdís sem gerir ráð fyrir að ljúka við þetta verk­fni í lok nóv­em­ber.

Hún segir svo að kvik­myndin verði sýnd í um 8000 kvik­mynda­húsum víða um heim en hún verður frum­sýnd í Banda­ríkj­unum 3. febr­úar á næsta ári. „Þetta er alveg stórt.“

Mikil pressa

Herdís seg­ist lítið frí hafa tekið sér síð­ast­liðin fjögur ár en að hún ætli að taka sér frí þegar þessu verk­efni lýkur en hún á við að hún ætli sér þá ekki að taka að sér nein ný verk­efni í tvo til þrjá mán­uði heldur vinna í eigin tón­list og und­ir­búa plötu.

„Ég er í raun og veru ekki búin að stoppa í fjögur ár í þessu og það er komin tími á örlítið frí. Þetta er ekki beint hefð­bundin vinna og maður verður svo rosa­lega þreyttur. Maður er stundum að næstum því alla daga vik­unnar og það er mikil pressa þannig að maður er svo­lítið búinn á því eftir svona (verk­efni). Þetta eru sjö mán­uðir án þess að stoppa og þar sem maður er alveg á fullu. Lúxusinn við þetta og sem ég hef ekki leyft mér hingað til er að geta kannski tekið tvo þrjá mán­uði bara til að anda aðeins á milli.“

Hún sem er að brill­era í kvik­mynda­heim­inum með tón­list­inni sinni byrj­aði átta ára gömul að læra á píanó hjá píanó­kenn­ara sem bjó í sömu götu og þetta gerði hún af og til til 17 ára ald­urs. Hún fór aldrei í tón­list­ar­skóla og lærði aldrei tón­fræði eða hljóm­fræði. Hún var á nátt­úru­fræði­braut í Mennta­skól­anum í Reykja­vík og skráði sig svo í lög­fræði við Háskóla Íslands.

Mér fannst það vera fjar­stæðu­kennt að ég gæti samið tón­list.

„Ég var svo hræði­lega óánægð í lög­fræði­nám­inu. Það átti svo illa við mig. Mér leið ekki vel og vissi ekki hver ég var eða hvað ég átti að gera. Ég fór svo að spila á píanóið þegar heim kom úr skól­anum og fór að búa til mín eigin lög. Mér fannst það vera fjar­stæðu­kennt að ég gæti samið tón­list; mér fannst það ekki vera raun­veru­legt. En svo fór ég virki­lega að hafa áhuga á því. Með fram lög­fræði­nám­inu fór ég í einaktíma í hljóm­fræði og svo fór ég að útsetja fyrir kór og strengja­kvar­tett.“

Það end­aði með því að Herdís hætti í lög­fræði­nám­inu. Hún útskrif­að­ist frá tón­smíða­deild Lista­há­skóla Íslands árið 2013 og lauk síðan árið 2017 meist­ara­námi í tón­smíðum með áherslu á kvik­mynda­tón­list frá New York Uni­versity. Hún bjó svo um tíma í Los Angeles en flutti svo heim til Íslands árið 2020.

Herdís býr með Dustin O’Halloran, píanó­leik­ara og tón­skáldi, og eiga þau þriggja og hálfs árs gamla dóttur og býr fjöl­skyldan í Reykja­vík. Þess má geta að Dustin var á sínum tíma til­nefndur til BAFTA, Óskars- og Golden Globe-verð­launa fyrir tón­list­ina í kvik­mynd­inni Lion.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina