Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Össur minnist Hrafns: „Ég syrgi hann í dag, og alla daga”

Össur minnist Hrafns: „Ég syrgi hann í dag, og alla daga”

Hrafn Jök­uls­son var bor­inn til grafar í dag að við­stöddu fjöl­menni.

Gamli stjórn­mála­skör­ung­ur­inn Össur Skarp­héð­ins­son rit­aði fal­lega grein um Hrafn, sem var öllum þeim er til hans þekktu ógleym­an­legur per­sónu­leiki í alla staði:

SÓLFARARRÆÐA HRAFNS

Ég hitti Hrafn fyrst við tafl í Mela­skól­anum, örlít­inn, kotrosk­inn pjakk. Hann var þá 10-11 ára gam­all. Strax þá var hann orð­inn sá sem við öll þekktum: Ótví­ræður for­ingi, upp­reisn­ar­gjarn, og fullur af þeirri rétt­læt­is­kennd sem ein­kenndi allt hans líf. Nokkrum árum eftir skák­irnar í Meló var ég allt í einu ungur rit­stjóri Þjóð­vilj­ans og réði hann sem blaða­mann. Hann reynd­ist hval­reki; ham­hleypa til verka, eit­ur­skarpur og skrif­aði stíl sem minnti á vor­golu. Jafnvel á Þjóð­vilj­anum, þar sem allir voru Íslands­meist­arar í stíl­snilld, dáð­ust menn að töfrum hans.. Engum kom því á óvart þegar Hrafn – aðeins 21 árs – var gerður að umsjón­ar­manni Helg­ar­blaðs­ins. Það var þá einn helsti vett­vangur menn­ing­ar­um­ræðu í land­inu. Hann beið ekki boð­anna, og leiddi fram á sviðið nýja kyn­slóð lista­manna, fólk einsog Gerði Kristnýju, Jón Gnarr og marga fleiri.

Á þessum dögum var Þjóð­vilj­inn bar­daga­blað sem skaut fast og hik­aði ekki við að draga and­stæð­inga sundur og saman í háði. Þar var Hrafn á heima­velli. Þunga­vigt­ar­menn kveink­uðu sér og sumir gripu til varna með hörðum greinum í Mogganum. Einn ráð­herra sak­aði hann um að æsa upp skríl­inn. Vest­firskur ráð­herra, sem tal­aði klass­íska íslensku, Sverrir Her­manns­son, skrif­aði fræga grein og sagði að ung­ling­ur­inn á Þjóð­vilj­anum hefði étið óðs manns skít.

Þá daga var Hrafn í ess­inu sínu, okkar manni leið best í fremstu víg­línu. Rauði þráð­ur­inn sem rann í gegnum öll hans skrif var þessi: Hrafn var alltaf á bandi lít­il­magn­ans, alltaf fullur af rétt­læt­is­kennd, alltaf í sókn fyrir þá sem áttu undir högg að sækja. Einu gilti hvort það voru fangar, fólk með geð­rask­anir eða börn: -hann var alltaf tals­maður hinna hrjáðu og smáðu, hinna jað­ar­settu, þeirra sem ekki var pláss fyrir. Það var hans fólk.

Síðasti sigur hans var að ná því fram að afleið­ingar ómann­úð­legs aðbún­aðar barna á vöggu­stofum fyrri tíðar yrðu rann­sak­aðar. Sjálfur var hann eitt þeirra barna. Hann taldi að dvölin þar hefði markað óaf­má­an­leg spor í líf hans síðar.

Á Press­unni, hjá Gunnari Smára, skrif­aði hann greina­flokk um aðbúnað fanga, sem síðar varð eitt af temum hans sem rit­stjóra Alþýðu­blaðs­ins. Í það skrif­aði Hrafn sína fræg­ustu grein um rík­is­lög­reglu­sjóra – glæpa­manna­fram­leið­anda rík­is­ins – og var umsvifa­laust kærður fyrir æru­meið­andi ummæli. Skel­eggur hér­aðs­dóm­ari, Guðjón St. Mart­eins­son, sýkn­aði Hrafn. Rík­is­sak­sókn­ari áfrýj­aði fyrir hönd rík­is­lög­reglu­stjór­ans, en sigur Hrafns var stað­festur í Hæsta­rétti. Í kjöl­farið breytti svo Alþingi lögum. Þetta var sögu­leg nið­ur­staða.

Hrafn Jök­uls­son, einn síns liðs og með ekk­ert að vopni nema hið örsmáa Alþýðu­blað, breytti íslenska rétt­ar­kerf­inu og jók mál­frelsi Íslend­inga svo um mun­aði. Á þessu skeiði var hann einnig mjög virkur í stjórn­málum og mark­aði miklu dýpri spor en margir skilja. Á Þjóð­vilj­anum gekk hann inn í ungt sam­fé­lag sem var í upp­reisn gegn for­ystu flokks­ins, Alþýðu­banda­lag­inu – sem átti blaðið – og vildi upp­gjör við for­tíð­ina sem teygði sig aftur í komm­ún­isma Sov­éts­ins og A-Evrópu. Matthías Johann­es­sen, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, kall­aði Þjóð­vilja­hóp­inn „lýð­ræðiskyn­slóð­ina”.

Hrafn varð partur af henni. Hrafn varð lyk­il­maður í stofnun Birt­ingar, sem var upp­reisn­ar­fé­lag sem lýð­ræðiskyn­slóð­inni tengd­ist. Þegar Birting knúði fram upp­gjör á einum harð­asta átaka­fundi í sögu Alþýðu­banda­lags­ins var Hrafn – rétt tví­tugur – helsti tals­maður hóps­ins, og sá, sem flutti til­lög­una, sem átökin snér­ust um. Tíu árum síðar var Alþýðu­banda­lagið ekki til.

Hrafn tók síðan virkan þátt í sam­ein­uðu fram­boði lýð­ræð­is­sinn­aðra jafn­að­ar­manna í Reykja­vík, Nýjum Vett­vangi, sem ruddi braut­ina fyrir Reykja­vík­ur­list­ann. Síðan hafa öfl félags­hyggj­unnar nær óslitið ráðið borg­inni. Hrafn var partur af því ferli. Hann var líka í öðru sæti fyrir Alþýðu­flokk­inn á Suð­ur­landi árið 1995, þar sem hér­aðs­blöð greina frá því að kosn­inga­fundir hafi meira og minna snú­ist um hann, og tók tvisvar sæti á Alþingi.

Jóm­frúræða hans, sem flutt var blað­laus í hita augna­bliks­ins, snérist vita­skuld um mann­rétt­indi. Mér er enn minn­is­stætt að þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra setti dreyrrauðan undir vand­ar­höggum hins unga þing­manns.

Hrók­ur­inn var næsti áfanga­stað­ur­inn á lífs­göng­unni. Þegar félagið hafði sigrað allt sem hægt var að sigra – og orðið Íslands­meist­ari skák­fé­laga þrjú ár í röð – var kvæð­inu vent í kross og kröftum félags­ins beint að útbreiðslu skák­ar­innar, hér á landi og í Græn­landi. Hann skipu­lagði ein­stakt skák­starf meðal eldri borg­ara, fólks með geð­rask­anir, fanga, inn­flytj­enda, og Hrafn heim­sótti alla grunn­skóla á Íslandi og næstum allar byggðir Græn­lands. Frá 2003 fór hann með Hróks­mönnum í viku­legar heim­sóknir á Barna­spít­ala Hrings­ins.

Síðustu 20 árin voru því að heita má helguð vel­ferð barna. Árið 2015 hlaut hann fyrir þau störf við­ur­kenn­ingu Barna­heilla – Save the Children.

En hann átti fleiri strengi því hann var líka skáld svo af bar. Hann gaf út fjórar ljóða­bækur, sem glitr­uðu af ein­hverjum ósýni­legum galdri, flos­mjúkar, ein­faldar en samt djúpar einsog sjálft hafið. Stór­virkið var þó bókin „Þar sem Vegurinn endar” sem allt eins má kalla óð til Árnes­hrepps. Þar lifði hann sínar bestu stundir sem barn og þangað snéri hann aftur og aftur, síð­ast til að hreinsa Kolgraf­ar­vík. „Þar sem Vegurinn endar” er þó ekki bara óður til nyrstu Stranda heldur miklu fremur rann­sókn á honum sjálfum, og því sem hann kall­aði lífs­gát­una. Spurn­ingin -sem þó var hvergi bein­línis skrifuð -var í reynd þessi: Hvers vegna er ég eins og ég er?

Hrafn var alltaf að reyna að skilja orsaka­sam­hengið í lífi sínu, og skilja upp­runa þeirra demóna sem ásóttu hann allt lífið, Bakkus, dep­urð, jafn­vel þung­lyndi, eða það sem hann kjarn­aði í erfiljóði um vin sinn og kall­aði hina „spreng­hlægi­legu ang­ist.”

Hann þjáð­ist yfir því að geta ekki fest rætur, og geta ekki tengst þeim nægi­lega sem hann elskaði. Hann elskaði börnin sín en þjáð­ist af því að hafa van­rækt þau. Hann leit á það sem bölvun sína.

Ópera­sjón Mikaels snérist um að lifa lengur til að bæta fyrir þær syndir.

Við, vinir hans, eigum að muna Hrafn fyrir það sem hann stóð fyrir, það sem hann gerði, fyrir alla gleð­ina sem hann færði, og fyrir það óeig­in­gjarna starf sem hann vann í þágu þeirra sem standa höllum fæti.

Sól­far­ar­ræðu Hrafns er varla hægt að ljúka með öðru en orðum hans sjálfs: Fram til sig­urs!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina