Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Árni Þórður sonur Sigga storms loksins útskrifaður: „Dásamleg og ólýsanleg tilfinning“

Árni Þórður sonur Sigga storms loksins útskrifaður: „Dásamleg og ólýsanleg tilfinning“
Flottir feðgar.

Eins og kemur fram í Frétta­blað­inu er Árni Þórður, sonur Sigga Storms, nú útskrif­aður eftir heila tíu mán­aða dvöl á Land­spít­al­anum, þar sem hann barð­ist hetju­lega fyrir lífi sínu eftir alvar­lega líf­færa­bilun. Og hafði betur.

Siggi stormur og fjöl­skylda eru því eðli­lega í skýj­unum:

„Þetta eru vissu­lega stór­kost­leg kafla­skil og er dásam­legt,“ segir Siggi Stormur.

Árni Þórður veikt­ist af alvar­legri líf­færa­bilun rétt fyrir síð­ustu jól; var vart hugað líf, og hans bíður nú eft­ir­lit, tímar hjá melt­ing­ar­sér­fræð­inum; blóðprufur og sneið­mynda­tökur:

„Fyrir okkur for­eld­rana og fjöl­skyld­una er þetta hálf­gert krafta­verk. Það er eig­in­lega ekk­ert hægt að lýsa því öðru­vísi. Hann var svo svaka­lega veikur og það leist ekki öllum á blik­una á tíma­bili,“ segir Siggi sem er þakk­látur Guði og mönnum fyrir bata sonar síns:

„Það var dásam­leg og ólýs­an­leg til­finn­ing hvað svona góðar kveðjur geta stutt mann þegar öll sund virð­ast lokuð. Ég get aldrei þakkað þeim sem með einum eða öðrum hætti sýndu styrk og góðan hug. Þegar svona kemur upp þá er maður svo aleinn í eyði­mörk­inni, maður er alveg hjálp­ar­laus því maður kann auð­vitað ekk­ert í lækn­is­fræðum. Getur ekk­ert gert og þarf að treysta á Guð og lukk­una, góða lækna og hjúkr­un­ar­fólk. En ég fann að ég var ekki einn.

Það voru svo margir sem sendu hlýja strauma og ég fann það stand­andi einn í myrkr­inu. Það voru margir sem hringdu, sendu mér skila­boð og gáfu mér góð ráð og sendu góðar hugs­anir. Nokkuð sem ég varð mjög meyr yfir.

Þetta var hryll­ingur. Þetta stóð yfir svo lengi og hann varð svo veikur svo lengi.

Ég verð að koma ítr­ustu þökkum til þeirra sem hjálp­uðu okkur í gegnum þetta. Við stöndum í mik­illi og ævar­andi þakk­ar­skuld, hvort sem það eru heil­brigð­is­starfs­menn eða fólkið í land­inu. Takk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina