Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri: „Hér eru allir í sjokki og hugur okkar er hjá aðstandendum“

Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri: „Hér eru allir í sjokki og hugur okkar er hjá aðstandendum“
Sigríður Ingv­ars­dóttir frá­far­andi bæj­ar­stjóri Fjalla­byggðar.

„Hér eru allir í sjokki og hugur okkar er hjá aðstand­endum hins látna,“ segir Sigríður Ingv­ars­dóttir bæj­ar­stjóri Fjalla­byggðar, aðspurð um líðan bæj­ar­búa eftir hinn hræði­lega atburð er gerð­ist í nótt, en þá var maður myrtur í Fjalla­byggð, Ólafs­firði nánar til­tekið.

Sigríður var ráðin bæj­ar­stjóri Fjalla­byggðar í júlí síð­ast­liðnum, og segir hún að sorgin sé mikil í svona litlu sam­fé­lagi þar sem nán­ast allir Þekkja alla:

„Þetta er auð­vitað hræði­legt í alla staði, og mikið áfall fyrir lítið bæj­ar­fé­lag – hér eru ein­fald­lega allir harmi slegnir.“

Sigríður segir að fólk í sam­fé­lag­inu litla á Ólafs­firði – og Fjalla­byggð almennt – sé mjög brugðið, enda sé slíkur atburður ávallt hræði­legur og snerti marga, ekki bara Fjalla­byggð, heldur ein­fald­lega íslenskt sam­fé­lag allt:

„Við búum í litlu bæj­ar­fé­lagi og á litlu og fámennu landi og því snertir slíkur voða­at­burður mjög marga, en eins og ég sagði, þá er hugur okkar allra fyrst og fremst hjá aðstand­endum hins látna.“

Sigríður vill koma því á fram­færi að kirkjan í Ólafsvík er opin og allir vel­komnir þangað vilji fólk leita sér stuðn­ings og hjálpar:

„Í kvöld klukkan átta verður svo sam­veru­stund í kirkj­unni, og við erum nú á þess­ari stundu að koma upp áfallateymi fyrir fólk, það er núna í vinnslu, og við hvetjum alla til að koma í kirkj­una, í dag eða í kvöld á sam­veru­stund­inni – en það er einmitt á svona stundum sem lítið sam­fé­lag þarfn­ast stuðn­ings, hjálpar og síst kær­leiks,“ sagði Sigríður Ingv­ars­dóttir bæj­ar­stjóri Fjalla­byggðar í sam­tali við Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina