Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Karl Ágúst minnist látins vinar: „Ég kveð þig döprum augum, en með hlýju í hjarta“

Karl Ágúst minnist látins vinar: „Ég kveð þig döprum augum, en með hlýju í hjarta“
Karl Ágúst Úlfsson Mynd: Þjóðleikhúsið

Leik­ar­inn ást­sæli, Karl Ágúst Úlfsson skrif­aði í kvöld afar fal­lega færslu á Facebook til minn­ingar um kæran vin hans, Guðmund Ásmunds­son sem lést nýverið.

Eins og við var að búast af Karli Ágústi er færslan afar vel skrifuð og fal­leg. Gaf hann Mannlífi góð­fús­legt leyfi til að birta færsl­una í heild sinni:

„Elsku Gummi. Nú eru nákvæm­lega þrjá­tíu ár frá því við hitt­umst fyrst. Og í dag varð ég að kveðja þig í síð­asta sinn. Samt ekki minn­ing­una um þig – hana kveð ég aldrei.

Við tók­umst í hendur í fyrsta sinn í vín­búð­inni í Aþenu, Ohio. Ég og fjöl­skylda mín vorum nýja fólkið í bænum, komin til að hefja nám bæði við háskól­ann og grunn­skól­ann, en þar voru nokkrir Íslend­ingar fyrir. Við gengum inn í þennan hóp og nutum góðs af reynsl­unni og þekk­ing­unni sem þar hafði safn­ast upp, gátum alltaf leitað ráða og leið­bein­inga í þessu nýja umhverfi sem við þekktum varla nema af afspurn. Þar reynd­ist þú aldeilis haukur í horni – og við urðum vinir.

Reyndar var varla hægt að umgang­ast þig, Gummi, án þess að tengj­ast þér vin­áttu­böndum. Þú varst skemmti­legur, glað­vær, glöggur, greið­vik­inn – og traustur. Já, alltaf varstu traustur og vilj­ugur að leysa allan vanda sem upp gat komið.Það var ómet­an­legt að kynn­ast þessum hópi íslenskra náms­manna og fjöl­skyldum þeirra. Minn­ing­arnar um allt það sam­krull vekja ennþá bros, jafn­vel skelli­hlátra og stöku tár. Og alltaf ertu þú fram­ar­lega á öllum þeim myndum sem hug­ur­inn fram­kallar, þú og Helga og Hildur, sem þá var bara pínu­lítið spons og upp­á­hald allra. Þessar minn­ingar herja á mig í dag, hvort sem um er að ræða grill­veislur, spila­kvöld, sam­kvæm­is­leiki eða sögur – já, enda­lausar sögur, skemmti­legar og jafn­vel grát­bros­legar af skakka­föllum nákom­inna ætt­ingja á leið í heim­sóknir á þennan afskekkta og lítt þekkta heimabæ okkar á miðjum korna­kri í miðjum Banda­ríkjum Norður-Ameríku.Ó, já, það var mikið hlegið. Og nú sit ég hér og er ekki hlátur í hug. Það er sárt að þurfa að kveðja alltof snemma. Líklega eru það ein­ungis góðar minn­ingar sem geta hjálpað manni á slíkum stundum. Hér er ein, elsku Gummi, ein sem ég held mikið uppá og skrifa nú mér til hjálpar.Við héldum stundum spila­kvöld, þar sem við bjuggum hlið við hlið í Myllu­stræti. Þessi minn­ing er um pókerkvöld heima hjá mér, þar sem Íslend­inga­klíkan kom saman til að spila. Þegar við höfðum spilað nokkra hringi kom í ljós að bjór­bigðir heim­il­is­ins voru á þrotum, svo það varð úr að tveir af spila­mönnum voru sendir út í hverf­is­búð­ina til að afla fanga. Þegar þeir voru farnir stakk Gummi uppá hrekk, sem við hin féllum fyrir og hrintum í fram­kvæmd. Þegar sendi­menn­irnir komu aftur var gefið í nýtt spil. Þá vildi svo maka­laust til að þeir fengu báðir fullt hús upp í hend­urnar. Þessir tveir voru alveg örugg­lega mestu keppn­is­menn­irnir í hópnum og þó að allir rembd­ust við að halda í sitt pókerfés tókst hrekklausum bjór­burð­ar­mönnum ekki með góðu móti að leyna því að nú væri eitt­hvað stórt í aðsigi. Ástæðan fyrir þess­ari ótrú­legu heppni félaga okkar var vita­skuld sú að Gummi hafði raðað rétt í spila­stokk­inn á meðan þeir voru fjar­ver­andi, svo þeir gátu ekki annað en fengið fullt hús. Aðrir spil­arar tóku að pakka hver á fætur öðrum, enda allir með hunda á hendi, og að lokum voru þeir sem höfðu hús­fylli einir eftir. Og hvor­ugur vildi gefa sig, svo pott­ur­inn hækk­aði og hækk­aði, það var dob­blað og dob­blað og dob­blað enn og aftur. Við sem sátum hjá þurftum að bíta okkur í kinn­arnar, nudda á okkur auga­brúnir, jafn­vel reita á okkur hnakka­hárin til að springa ekki úr hlátri og þegar pott­ur­inn var sprung­inn og hrekk­ur­inn afhjúp­aður varð hlát­ur­inn í íbúð­inni svo hávær að hann rúm­að­ist varla innan fjög­urra veggja og sumir urðu að ganga út á tún og emja þar.Elsku Gummi. Ég þakka þér fyrir vin­átt­una, fyrir þetta þétta hand­tak í vín­búð­inni um árið, fyrir gleð­ina og fyrir þær góðu og skemmti­legu minn­ingar sem ég á um þig og sam­skipti okkar. Ég kveð þig döprum augum, en með hlýju í hjarta og ljós í höfð­inu sem allt það fal­lega sem ég man um þig hefur gefið mér. Farðu vel, bróðir og vinur.

Elsku Helga, Hildur og Ásgrímur – og þið hin sem þekktuð Gumma og elskuðuð – hjart­ans samúð og kær­leikur til ykkar allra.“

Mannlíf sendir sam­úð­ar­kveðjur til Karls Ágústar og aðstand­enda Guð­mundar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við