Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Aldraðir og heilabilaðir geta ekki látið heyra í sér síðar og munu ekki krefjast sanngirnisbóta“

„Aldraðir og heilabilaðir geta ekki látið heyra í sér síðar og munu ekki krefjast sanngirnisbóta“
Ingi­björg Rósa Björns­dóttir.

Ingi­björg Rósa Björns­dóttir, mark­aðs- og vef­stjóri Háskóla­set­urs Vest­fjarða og dóttir heila­bil­aðrar konu, skrifar athygli­verða grein sem ber yfir­skrift­ina: Heyrir ein­hver til mín?  sem byrjar á þessum orðum:

„Fyrir ekki svo löngu síðan var ill með­ferð á börnum á vöggu­stofum uppúr miðri síð­ustu öld afhjúpuð í fjöl­miðlum og, eðli­lega, kraf­ist rann­sóknar og yfir­bóta. Þar áður voru það barna­heim­il­is­málin alræmdu og þá hefur þjóðin stundum verið á inn­sog­inu yfir fréttum af slá­andi atvikum í skólum og leik­skólum lands­ins, enda krefj­umst við þess sem vel­ferð­ar­þjóð að vel sé komið fram við, og hugsað um börnin okkar því þau geta ekki varið sig eða séð um sig sjálf.

En hvað myndi fólk segja ef það frétti af því að nú, árið 2022, væru börn á stofn­unum látin liggja í rúmi í allt upp í klukku­tíma áður en þeim er hjálpað á sal­erni eða klædd í föt? Eða að börn mæti ítrekað í skól­ann í óhreinum fötum, gangi jafn­vel í sömu föt­unum í marga daga, ótann­bur­stuð og ógreidd, með til­heyr­andi lík­ams­lykt?“

Bætir við:

„Hvað finnst ykkur um að barn sem á erfitt með hreyf­ingar sé látið afskipt á mat­ar­tímum, hipsum haps hvort mat­ur­inn er bit­aður niður eða barn­inu hjálpað við að lyfta gaffli eða skeið, og borði því aldrei nægju sína? Hvað með börnin sem eru látin sitja á óþægi­legum stól við mat­ar­borðið upp í tvo tíma eftir að borðið er hreinsað, vegna þess að þau kom­ast ekki sjálf frá borð­inu? Jafnvel látin dotta þar í dágóða stund, meðan starfs­fólkið situr skammt frá á spjalli eða í símunum sínum?“

Og hún spyr einnig:

„Hafið þið heyrt af börnum sem fá ekki nægi­lega mik­inn vökva og eru því alltaf með þurra, flagn­andi húð með til­heyr­andi kláða,eða bjúg og almennt slen? Og vissuð þið að ef stofn­unin sem hýsir börnin ákveður að skipta um lyf eða aðra með­ferð hjá barn­inu, lætur hún nán­ustu aðstand­endur ekki nærri alltaf vita, og að starfs­fólk kynnir sér ekki endi­lega sjúkra­sögu við­kom­andi barns og getur því ekki aðlagað umönnun sína að því?

Þannig veit ég um barn sem rif­beins­brotn­aði í umsjá stofn­un­ar­innar, en þremur dögum síðar var drifið í sturtu af starfs­manni sem hafði ekki hug­mynd um það, sýndi enga aðgætni og ómálga barnið gat ekki látið vita þegar það kenndi til.

Eruð þið ekki orðin hneyksluð? Alveg á inn­sog­inu? Fing­urnir titr­andi því þið ætlið að henda í einn kjarn­yrtan Facebook status og deila þess­ari grein með frösum eins og „SKYLDULESNING“ eða „HEYR HEYR“?

Breytir það ein­hverju þótt ég hafi ekki verið að segja aaaal­veg satt, þar sem ekki er um börn að ræða heldur gam­alt fólk?“

Ingi­björg segir einnig:

„Að öðru leyti er allt hér að ofan­töldu dagsatt, og fleiri slá­andi sögur til, ég læt bara duga það sem snýr að móður minni sem er bæði öldruð og með heila­bilun. Hún fékk pláss á einu fín­asta hjúkr­un­ar­heim­ili lands­ins þar sem húsa­kynnin eru hin glæsi­leg­ustu og aðstaðan til fyr­ir­myndar en eitt­hvað vantar upp á gæða­eft­ir­litið í starf­inu sjálfu. Þar er bæði und­ir­mannað og mikið róterí á almennu starfs­fólki og þau sem eru ráðin virð­ast ekki fá mikla þjálfun og sum virð­ast ekki hafa til að bera það sem þarf til að starfa við umönnun.“

Færir í tal að „það liggur nefni­lega ekki vel fyrir öllum og því mik­il­vægt í ráðn­ing­ar­ferl­inu að sía inn gott fólk með þroska og inn­sæi sem sýnir af sér umhyggju og sjálf­stæða hugsun. Það þarf einnig að fá almenni­lega fræðslu og þjálfun um helstu sjúk­dóma og ein­kenni hjá öldruðum og heila­bil­uðum, hvers sé kraf­ist af þeim og að þau séu ekki yfir­keyrð af vakta­vinnu á svo stuttum tíma og lélegum launum að þau gef­ist upp eftir örfáar vikur.

Það er nefni­lega ekki gott fyrir umhverfi aldr­aðra og heila­bil­aðra að þurfa alltaf að vera að læra ný nöfn og sjá sjaldan kunn­ug­leg and­lit. Eins þarf starfs­fólk að fá tíma til að kynn­ast og læra inn á hvern ein­stak­ling. Þetta er fólkið sem við treystum til þess að hugsa um for­eldra okkar, afa og ömmur, frænkur og frændur. Það er alveg jafn­mik­il­vægt að hlúa vel að þeim hópi og börnum, eini mun­ur­inn á þeim er sá að aldr­aðir og heila­bil­aðir geta ekki látið heyra í sér síðar meir, þau geta ekki afhjúpað slæma með­ferð eftir nokkra ára­tugi með til­heyr­andi fjöl­miðla­fári og munu ekki krefj­ast sann­girn­is­bóta.“

Segir að „þau hafa stritað og borgað skatta og gjöld öll sín full­orð­insár, þau treystu því alla ævi að vel­ferð­ar­sam­fé­lagið á Íslandi myndi sinna þeim almenni­lega á efri árum og að þau fengju mann­úð­lega umönnun ef að heilsan bil­aði. Þau treystu því að þeim yrði sýnd virð­ing um leið og þeim yrði þakkað fyrir fram­lag sitt til sam­fé­lags­ins, að við sem yngri erum myndum gæta að hag þeirra þegar þau yrðu ófær um það sjálf, að við hin myndum ljá þeim rödd þegar þeirra rödd brysti. Hér er mín rödd, er ég að hrópa úti í auðn­inni? Heyrir ein­hver? Getum við virki­lega ekki gert betur?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina