Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ingunn sú eina sem stoppaði þegar tvær konur slösuðust í bílveltu: „Nístingskuldi og ömurlegheit“

Ingunn sú eina sem stoppaði þegar tvær konur slösuðust í bílveltu: „Nístingskuldi og ömurlegheit“

Ingunn Bylgja Ein­ars­dóttir er undr­andi á þeim sem keyrðu fram­hjá slæmri bíl­veltu án þess að stoppa í gær.

Ingunn Bylgja var að keyra á Möðru­dalsör­æfum í gær þegar hún kom að bílslysi en bíll hafði oltið illa. Var bíll­inn að hennar sögn í klessu og tvær konur skríð­andi í kringum hann þegar hana bar að. Ingunn stökk út úr bílnum og hringdi strax á 112. Nokkrir bílar keyrðu fram­hjá slys­staðnum án þess að stoppa. „Þar sem ég var að hlaupa flug­hálan slakk­ann, með 112 í eyr­unum, heyrði ég og fann að það keyrði bíll fram­hjá. Á þess­ari sömu stundu lá önnur konan í jörð­inni og hin að ham­ast við bíl­inn. Ég bara skildi þetta ekki. Fleiri bílar fóru hjá meðan ég mataði 112 og reyndi að sinna báðum kon­unum sem voru bæði slas­aðar og í miklu áfalli. Níst­ings­kuldi og ömur­leg­heit,“ sagði Ingunn í sam­tali við Mannlíf.

Byrjaði Ingunn á að taka þær upp í bíl­inn sinn og keyra að gatna­mótum við Vopna­fjörð þar sem þær biðu eftir sjúkra­bíl. „Þegar þeim var orðið heitt, tók ég þær út í ástands­skoðun og allt nokkuð gott miðað við allar velt­urnar. Bar samt á minnis­leysi og panikki,“ sagði Ingunn og bætti við að vegna þess að eng­inn stopp­aði, hefði hún þurft gert þetta allt ein, ástands­skoða þær, spyrja þær spjör­unum úr varð­andi slysið, áverka, líðan og miðla á 112. „Þegar það tókst, stopp­aði loks fyrsti bíll­inn. Og auð­vitað voru það útlend­ingar.“

Að lokum sagði hún að þrátt fyrir allt hafi stærsti ótti þeirra þó ekki snúið að heils­unni: „Þetta voru sam­býl­is­konur frá Georgíu og þær voru svo hræddar um að geta ekki borgað lög­reglu, sjúkra­bíl eða lækn­is­þjón­ustu. Grétu bara og grétu útaf því. Ég bað þær lengstra orða að hafa ekki áhyggjur af því. Önnur var ferða­tryggð og hin búin að borga skatta í sirka fimm mán­uði hérna,“ sagði Ingunn og vildi bæta við í lok sam­tals­ins þakk­læt­inu til við­bragðs­að­il­anna: „Elsku fólkið í lög­regl­unni og sjúkra­bílnum voru til fyr­ir­myndar.“

Þess ber að geta að hver sá sem kemur að slysi og veit að fólk er í neyð, ber skylda sam­kvæmt íslenskum lögum að veita hjálp. Samkvæmt Sam­göngu­stofu eru eft­ir­far­andi atriði réttu við­brögðin komi maður að slysi og í þess­ari röð:

1. Tryggja öryggi á slys­stað og koma í veg fyrir meiri skaða.

2. Meta umfang slyss­ins og veita neyð­ar­hjálp sé þess þörf.

3. Tilkynna um slys í 112 og kalla eftir nauð­syn­legri hjálp.

4. Að veita skyndi­hjálp

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina