Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var að tilkynna að hún hefði sleppt tveimur mönnum úr varðhaldi; voru handteknir í tengslum við rannsókn á andláti konu í Laugadal um nýliðna helgina:
„Niðurstaða réttarmeinafræðings er sú að áverkar sem voru á hinni látnu hafi ekki leitt til andláts hennar og sé því ekki lengur grunur um að það hafi borið að með refsiverðum hætti,“ segir lögreglan um málið:
„Við skoðun lögreglu og réttarmeinafræðings á vettvangi í upphafi málsins, komu fram margir óljósir þættir sem þörfnuðust frekari skoðunar. Af þeim sökum voru tveir menn handteknir sem höfðu tengsl við hina látnu. Þeir voru síðar úrskurðaðir í gæsluvarðhald til fimmtudagsins 13. október en hafa nú verið látnir lausir.“
Einnig kemur fram að rannsóknin sé enn í gangi, en að ekki verði unnt að veita upplýsingar að svo stöddu um hana.































Athugasemdir