Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ormarnir í gulli verkafólksins

Ormarnir í gulli verkafólksins
Drífa Snædal og Sólveig Anna hafa staðið í lillindum.

Uppnámið á þingi Alþýðu­sam­bands Íslands vekur til umhugs­unar um það gagns­leysi sem er af verka­lýðs­fé­lögum. Þre­menn­ing­arnir sem klufu sam­bandið hafa vænt­an­lega talið það vera óþarft og jafn­vel til óþurftar. Þeir horfa til þess að hvert og eitt félag geri meira gang en sam­einað afl.

Laun­þegar og atvinnu­rek­endur leggja verka­lýðs­fé­lög­unum til gríð­ar­legt fjár­magn. Aðild að verka­lýðs­fé­lagi er íþyngj­andi í þeim skiln­ingi að háar upp­hæðir eru dregnar af launum fólks til að halda kerf­inu gang­andi. Félögin eru ekki aðeins að gæta hags­muna sinna félags­manna, heldur einnig að leigja þeim aðgang að orlofs­húsum, hjálpa til við tann­við­gerðir og jafn­vel aðstoða við að jarð­syngja félags­menn. Minnsti þátt­ur­inn er sá að gera kjara­samn­inga eða gæta kjara félags­manna. Tekjur til félag­anna hlað­ast gjarnan upp í sjóði sem gefa færi á því að beita afli á ýmsum sviðum.

Verka­lýðs­for­ingjar eru gjarnan að ásæl­ast völd

Verka­lýðs­fé­lögin í land­inu eru sum hver gegn­sýrð af þeirri spill­ingu sem felst í valda­tafli af ýmsu tagi. Pólitík er eins og rauður þráður í sam­tökum þeirra og jafn­vel stofn­aðir stjórn­mála­flokkar sem nýta sér það afl sem liggur í verka­lýðs­fé­lögum. For­kólfar félag­anna taka sér laun sem í flestum til­vikum eru langt yfir launum félags­manna þeirra. Þannig er for­maður í stærri verka­lýðs­fé­lögum með laun sem eru yfir milljón á mán­uði. Hæstu heild­ar­laun verka­lýðs­for­ingja eru nær tveimur millj­ónum króna mán­að­ar­lega. Það eru fjór­föld laun þeirra skjól­stæð­inga sem hafa lægstu launin. Með réttu ætti verka­lýðs­for­ingi að vera með tekjur sem nema með­al­launum í félagi hans. Annað lyktar af sjálftöku.

Verka­lýðs­for­ingjar eru gjarnan að ásæl­ast völd. Oft er það sam­tvinnað við líf­eyr­is­sjóð­ina sem er annað risa­vaxið bákn sem fjar­lægst hefur félags­menn sína. Sjóðum er safnað og orm­arnir í gull­inu hagn­ast á braski með almannafé. Völdin í líf­eyr­is­sjóð­unum og verka­lýðs­hreyf­ing­unni sam­tvinn­ast síðan og spill­ingin mynd­ger­ist. Hags­munir fólks­ins verða auka­at­riði en völdin aðal­at­riði.

Það er vand­séð hvað óbreyttur félagi í verka­lýðs­fé­lag­inu Eflingu græðir á því að leggja til langt yfir 10 pró­sent af launum sínum til líf­eyr­is­sjóðs og verka­lýðs­fé­lags. Ofsa­gróði líf­eyr­is­sjóð­anna fer gjarnan í það að næra sjálft kerfið og leita leiða til þess að skerða útborg­anir til eig­enda líf­eyr­is­ins eða að minnsta kosti tryggja að þær hækki ekki. Raunin er gjarnan sú að þegar lág­launa­fólk kemst á aldur er elli­líf­eyrir rík­is­ins gjarnan hærri en sú upp­hæð sem líf­eyr­is­sjóðir reikna ein­sak­ling­unum. Líf­eyr­is­greiðslur falla því óbættar niður og starfs­mað­ur­inn hefur borgað til einskis alla sína starfsævi.

Árangur verka­lýðs­fé­lag­anna und­an­farna ára­tugi er afskap­lega dapur. Reglu­lega er stig­inn stríðs­dans og kröfur settar fram um háar kjara­bætur. Lyktir eru gjarnan moð­suða sem felur í sér kyrr­stöðu eða jafn­vel aft­ur­för. Þetta á við um flest verka­lýðs­fé­lög.

Barátta þre­menn­ing­anna sem klufu Alþýðu­sam­bandið ætti að verða fólki hvatn­ing til þess að sið­væða verka­lýðs­fé­lög og líf­eyr­is­sjóði í því skyni að létta laun­þegum lífið. Lækka þarf útgjöld félag­anna og sjóð­anna og auka þannig tekjur laun­þega. Hófsemi ætti að vera leið­ar­ljósið í þeim efnum. Eig­end­urnir verða að rísa upp gegn óþurft­ar­fólk­inu.

Nýtt hefti Mannlífs kemur út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina