Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðjón og samsæriskenningarnar: ,,Ég öskraði í símann í þessu viðtali og var alveg brjálaður“

Guðjón og samsæriskenningarnar: ,,Ég öskraði í símann í þessu viðtali og var alveg brjálaður“
Guðjón Heiðar Val­garðs­son Mynd: Aðsend

Guðjón Heiðar Val­garðs­son er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar. Guðjón hefur lengi verið eins konar and­lit sam­sær­is­kenn­inga á Íslandi. Hann talar í þætt­inum hvernig það sé að vera í því hlut­verki:

,,Það er mis­mikið hversu vel ég ber þann titil eftir því hversu hávær ég er. En þetta byrj­aði lík­lega þegar árásin í Sýrlandi var í gangi og ég fór í við­tal í Harma­geddon. Það hafði verið ein­hver frétt þarna um morg­un­inn á for­síðu Frétta­blaðs­ins um að Assad hafi verið að festa börn á skrið­drek­ana sínan til að það yrði ekki skotið á þá. Mér fannst þetta svo öfga­full lyga­saga að ég átti ekki til orð. Máni spurði mig út í frétt­ina og hvort ég væri til í að tala um hana. Ég sagð­ist alveg vera til í það, en sagði honum að ég kæmi til með að vera brjál­aður og svo ákvað ég að vera brjál­aður í þessu við­tali. Þannig að það var á ein­hvern hátt með­vituð ákvörðun hjá mér.,“ segir Guðjón og bætir við:

„Ég var búinn að mæta í nokkur önnur við­töl að tala um Sýrland, en eng­inn sýndi því áhuga. Ég öskr­aði í sím­ann í þessu við­tali og var alveg brjál­aður og ég gekk mjög langt. Þetta vakti mikla athygli og flestir sögðu það sama: ,,Þú hefur alveg eitt­hvað til þíns máls, en af hverju varstu ekki rólegri?”. Þá benti ég fólki á að ég væri búinn að reyna það, en eng­inn hefði tekið eftir því.”

Hann seg­ist hafa verið mjög hefð­bund­inn í skoð­unum langt fram eftir aldri. Gekk vel í skóla og keppti í Morfís og var alls ekki langt út fyrir boxið í skoð­unum:

,,Ég er alinn upp í fjöl­skyldu sem er frekar íhalds­söm að mörgu leyti, þó að pabbi minni hafi verið pönk­ari í gamla daga. Ég hafði það gott sem krakki og gekk vel í skóla og fór frekar hefð­bundnar leiðir fram eftir aldri. Ég var í Morfís lið­inu í skól­anum og var ekk­ert mikið að efast um hluti almennt og kaus meira að segja Sjálf­stæð­is­flokk­inn fyrst þegar ég fékk kosn­inga­rétt. Ég man eftir til­viki þar sem ég var að keppa í Morfís akkúrat þegar Íraks­stríðið var í gangi og dóm­ar­inn gerði óform­lega könnun um hver væri með inn­rásinni í Írak og hver væri á móti. Ég man vel að ég gat ekki ákveðið mig og gat ein­hvern vegin ekki tekið neina ákvörðun, þó að þeir sem væru með mér í liði væru á móti. Þó að auð­vitað sé ég á móti stríði var búið að segja manni svo margt slæmt um Saddam Hussein að ég var ekki viss. En frekar stuttu eftir þetta byrj­aði ég að sjá hlut­ina í öðru ljósi. Fyrst í gegnum heim­ild­ar­myndir Michael Moore og svo fór ég að skoða meira tengt því.”

Eftir að hafa haft frekar hefð­bundnar skoð­anir á unga aldri varð kúvend­ing eftir atburð­ina 11. sept­em­ber 2001. Guðjón man vel eftir því hvað það var sem fékk hann til að breyt­ast:

,,Ég var að spila á tón­leikum á Menn­ing­arnótt og á Aust­ur­velli var ein­hver náungi að dreifa DVD mynddiskum sem hétu ,,Confronting the evidence” og fjöll­uðu um 11. sept­em­ber. Ég tók hjá honum disk og hugs­aði með mér að ég væri til í að gefa þessu séns. Svo fór ég á svaka fyll­erí, sem end­aði með því að ég og félagi minn vorum vaktir af 5 lög­reglu­mönnum af því að hann hafði lagt bílnum sínum uppi á túni hjá lög­reglu­stöð­inni við Hlemm. Þannig að bíllyk­illin var tek­inn af honum og við urðum að rölta heim til mín og ákváðum að horfa saman á þessa mynd. Ég var í sjokki eftir hana og fannst það sem sett var þar fram vera hafið yfir allan vafa í mörgum til­vikum. Eftir þetta gat ég ekki lokað aug­unum lengur.”

Í þætt­inum ræða Sölvi og Heiðar um 11. sept­em­ber, Jeffrey Epstein og margt fleira sem Guðjón hefur sterkar skoð­anir á.

Hægt er að nálg­ast við­talið við Guðjón Heiðar og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á www:sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við