Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Biggi lögga segir ofbeldi unglinga okkur að kenna: „Nærumst á því sem samfélag að vera reið“

Biggi lögga segir ofbeldi unglinga okkur að kenna: „Nærumst á því sem samfélag að vera reið“
Biggi lögga

Lög­reglu­mað­ur­inn Birgir Örn Guð­jóns­son, gjarnan kall­aður Biggi lögga, seg­ist hafa fylgst með sívax­andi ofbeldi ung­linga um nokk­urt skeið. Í pistli sem hann birtir á Facebook kemur hann með nokkuð ferska og frum­lega ástæðu fyrir auknu ofbeldi meðal ung­menna. Hann segir að þegar ung­lingar, líkt og full­orðnir, upp­lifa nið­ur­læg­ingu þá sé eina skýra svarið hefnd. Svo margt í sam­tím­anum kalli á rétt­láta reiði og hún smiti út frá sér. Aukið ofbeldi ung­linga sé því ekki ofbeldi í kvik­myndum eða tölvu­leikjum að kenna heldur hnignun sam­fé­lags­ins.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Bigga í heild sinni

Í nokkur ár núna hef ég haft áhyggjur af auknu ofbeldi meðal ung­menna. Ég hef áður talað um áhyggjur mínar t.d. af auknum vopna­burði og svoköll­uðum ofbeld­is­mynd­böndum sem hafa gengið um sam­fé­lags­miðla. Ég vinn mjög mikið í þessum málum og því miður hafa þessar áhyggjur bara auk­ist.

Ég gæti skrifað heilu grein­arnar um hvað ég tel lík­legar ástæður fyrir þess­ari þróun en ég ætla ekki út í það hér. Ég held að við þurfum bara að fara að opna svo­lítið augun og með sam­taka mætti sam­fé­lags­ins að grípa inn í þessa þróun. Ég geri ekki ráð fyrir því að mörg ung­menni lesi pistil sem þennan og því vil ég hér frekar tala til okkar sem eldri eru. Foreldra, fjöl­skyldu­með­lima, kenn­ara, þjálf­ara og í raun allra sem eru í þeirri stöðu að leiða og hafa per­sónu­leg sam­skipti við ungt fólk. Við berum ábyrgð og við getum hjálpað. Við getum alla­vega gert allt annað en að standa hjá og krossa bara fingur.

Þegar við ræðum þessi mál kemur gjarnan upp það tal að ung­lingar hafi alltaf verið ung­lingar. Það hefur alltaf verið sleg­ist og tek­ist á. Það er rétt en engu að síður er umhverfið í dag svo ótrú­lega breytt, m.a. með til­komu sam­fé­lags­miðla sem ung­lingar dags­ins í dag hafa alist upp með. Sú staða hefur aldrei áður komið upp í mann­kyns­sög­unni. Þetta er risa bylt­ing og við höfum ein­hvern veg­inn bara flotið með og ekki kunnað að bregð­ast við, fyrr en of seint.

Þessir sam­fé­lags­miðlar hafa minnkað heim­inn í eitt óaf­markað svæði. Götur hafa orðið að hverfum sem hafa orðið að sveita­fé­lögum sem hafa orðið að lands­hlutum sem hafa orðið að löndum sem hafa orðið að heim­inum öllum. Svæð­is­skipt­ingin er farin og mörkin afmáð. Tíminn er einnig orð­inn hug­lægur og áreitið og pressan ólíkt öllu sem við höfum kynnst. Þetta er ótrú­leg áskorun sem við erum því miður smá að missa úr hönd­unum. Allt á kostnað öryggis, vel­ferðar og ham­ingju þeirra sem skipta okkur mestu máli.

Við flestir for­eldrar vitum svo rosa­lega lítið um þann heim sem börnin okkar búa í. Við vitum ekki við hverja þeir tala, hvað þeir skoða, hvað þeir læra og hvaða áskor­unum þeir standa frammi fyrir. Ég hef rætt við ótrú­lega marga for­eldra sem vita ekki sitt rjúk­andi ráð eftir að barn­inu þeirra var hótað, það lamið eða lít­ils­virt. Eða þá að það var ger­andi í slíku máli. Stundum er aðdrag­and­inn sýni­legur en alls ekki alltaf. Þegar eitt­hvað kemur upp þá eru lík­urnar á keðju­verkun miklar og reynslan sýnir að mörgum finnst þær óum­flýj­an­legar. Einhver gerir ein­hverjum eitt­hvað og vegna sam­fé­lags­miðla þá breið­ist sú frétt út til endi­markar veru­leika ung­lings­ins, sem er eins og áður sagði stærri en þeir ráða við.

Það verður nið­ur­lægj­andi að vera í stöðu þess sem varð undir og hefndin verður skyn­sem­inni yfir­sterk­ari. Það er allt gert til að halda stöð­unni í hópnum. Það er ekk­ert nýtt. Ákveðnir hópar eru í dag jafn­vel farnir að við­halda sinni stöðu með því að hefna fyrir aðra. Þeir ala á ótta. Og hvar læra þau þetta? Meðal ann­ars af okkur. Ekki vegna þess að við förum um allt og lemjum fólk eða ógnum, heldur vegna þess að við nærumst á því sem sam­fé­lag að vera reið. Hin nauð­syn­lega rétt­læt­is­kennd nærir sjálfs­mynd sam­fé­lags­ins með reiði. Það er auð­veld­ast að safna liði með „rétt­látri reiði“ og við viljum sjálf geta gripið inn í og ráðið ferð­inni. Þetta er vanda­samur vegur að feta. Sér­stak­lega þegar reiðin smit­ast inn í stétt­ar­bar­áttu leit­andi ung­linga í glæ­nýjum star­frænum heimi. Þá er skilj­an­legt að ein­hverjir villist af leið og mis­skilji rétt sinn og til­gang.

Ef þú hefur áhyggjur af ung­lingi í þínu umhverfi þá er fyrsta skrefið að ræða málin. Ef hann er að lenda í slags­málum eða hót­unum þá eru líkur á að hann sé fastur í vef sem hann þarf aðstoð við að losna úr. Hann þarf að vita að þér sé ekki sama og að það séu hægt að losa hann. Það er líka aldrei nein lausn fólgin í því að bara á sér hníf eða ann­ars­konar vopn. Nánast allir sem ég hef rætt við og eru með slík vopn segj­ast bara hafa það til að verja sig. En hvað ætla þeir að gera? Ætla þeir í alvör­unni að taka hníf­inn upp og stinga ein­hvern? Hugsunin nær yfir­leitt ekki þangað. Þetta er bara eins og villta vestrið. Það er orðið eðli­legt að vera með vopn „ef“ eitt­hvað ger­ist. Þetta þurfum við að þora að ræða við ung­ling­inn og fylgj­ast með. Þarna berum við ábyrgð.

Miðað við það hversu margir bara á sér hnífa þá er borð­leggj­andi að það er fullt af for­eldrum þarna úti sem hafa ekki hug­mynd um að barnið þeirra beri hann á sér og sé þar að leið­andi að setja sig í gíf­ur­lega hættu á að lenda í atburði sem gæti haft hræði­leg og óaft­ur­kræf áhrif á lífið. Ef þið fréttið af slags­málum eða verðið vitni að þeim þá þurfið þið líka að grípa inn í ef þið treystið ykkur til eða láta lög­regl­una vita í 112. Það er til þess að við getum gripið inn í áður en að eitt­hvað ger­ist og fáum tæki­færi til að aðstoða þá sem eiga hlut að máli og eru mögu­lega komnir í stöðu sem þeir kunna ekki að losa sig úr. Þarna þurfum við öll að standa sama. Lög­reglan, skól­arnir, íþrótta­fé­lögin, félags­mið­stöðv­arnar, barna­vernd, for­eldrar og fjöl­skyldur.

Og að lokum, þorið að leita ykkur aðstoðar ef þið vitið ekki hvað þið eigið að gera. Þið getið leitað til lög­regl­unnar, hringt í 112, haft sam­band við Bergið headspece, hringt í 1717, rætt við skól­ann, haft sam­band við heilsu­gæslu­stöð­ina og fleira. Það eru til lausnir. Bæði fyrir ung­mennin okkar og okkur sjálf. Við getum ekki verið áhorf­endur lengur. Börnin okkar eiga betra skilið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina