„Ég er ekki viss um að íbúar í Kópavogi verði ánægðir með þessa þjónustuskerðingu. Það hefur verið gríðarleg umferð um þessa stöð,“ segir Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu í samtali við mbl.is.

Nýráðinn bæjarstjóri Kópavogs, Ásdís Kristjánsdóttir, tilkynnti stjórnendum Sorpu bréfleiðis í byrjun síðasta mánaðar að loka þyrfti móttökustöð Sorpu við Dalveg 1 í Kópavogi; skila þurfi lóðinni til bæjarins fyrir 1. september árið 2024.

Í bréfi Ásdísar, sem er fyrsta konan í sögu Sjálfstæðisflokksins sem gegnir embætti bæjarstjóra í Kópavogi, segir að ekki sé í gildi samningur um leigu lóðarinnar sem hafi verið úthlutað til bráðabirgða fyrir 31 ári síðan:

„Samkvæmt aðalskipulagi Kópavogs er svæðið ætlað verslun og þjónustustarfsemi og samræmist starfsemi Sorpu ekki því núgildandi skipulagi.“































Athugasemdir