Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Biggi lögga segir foreldra ekkert skárri í netheimum: „Við elskum að vera reið“

Biggi lögga segir foreldra ekkert skárri í netheimum: „Við elskum að vera reið“

Birgir Örn Guð­jóns­son, lög­reglu­maður í Hafn­ar­firði, betur þekktur sem Biggi lögga, bendir á að við full­orðna fólkið séum oft ekk­ert skárri en börn og ung­lingar þegar kemur að ein­elti og ofbeld­is­fullri hegðun í netheimum. Biggi tjáir hug sinn á Facebook þar sem hann tók saman ummæli net­verja undir fréttum af hræði­legu ofbeld­is­máli gegn 12 ára stúlku í Hafn­ar­firði, líkt og Mannlíf greindi frá.

Tólf ára dóttir Sædísar Hrannar Sam­ú­els­dóttur dvelur nú á sjúkra­húsi eftir að hafa reynt að svipta sig lífi. Hún hefur orðið fyrir langvar­andi ein­elti í Hafn­ar­firði og ofbeldi af hálfu jafn­aldra sinna og hefur stúlkan unga ekki mætt í skól­ann lengi.

Sjá einnig: Dóttir Sædísar reyndi að svipta sig lífi eftir ein­elti í Hafn­ar­firði:„Hún er enn þá uppi á spít­ala“

„Hún er enn þá uppi á spít­ala. Hún reyndi að taka sitt eigið líf. […] Hún fer ekki í skól­ann lengur. […] Náms­ráð­gjafi á að hitta hana einu sinni á dag. Kenn­ar­inn var búinn að tala um að hitta hana einu sinni í viku. Hún hefur ekk­ert farið í skól­ann í meira en hálfan mánuð núna,“ sagði Sædís Hrönn.

Líkt og flestum Íslend­ingum var Birgi mjög brugðið vegna máls­ins. „Þetta mál er sorg­legra en tárum tekur og óþol­andi að börn skuli upp­lifa slíkt. Þetta mál er samt langt frá því að vera eitt­hvað eins­dæmi. Svona mál koma reglu­lega upp og mörg þeirra sjáum við aldrei vegna þess að þau eru föst inni í snjall­heimi barn­anna okkar,“ segir Birgir og heldur áfram:

„Við elskum að vera reið og viljum taka öll mál í okkar hendur. Börnin okkar eru fyrsta kyn­slóðin sem elst upp með sam­fé­lags­miðlum og það erum við hin full­orðnu lögðum stik­urnar með­fram veg­inum sem þau eru að reyna að feta. Hvernig hefur okkur gengið? Hvað hafa þau lært af okkur.“

Pistil­inn á Facebook endar Biggi á því að birta fjölda ummæla net­verja undir fréttum af mál­inu hræði­lega í Hafn­ar­firð­inum. Hann segir þetta aðeins brot af umræð­unni en þetta sýni að full­orðna fólkið er stundum lítið skárra. Ummælin frá Birgi eru hér fyrir neðan:

„Hef aldrei skilið hvernig hægt er að skapa svona við­bjóðs­leg kvik­indi. Þetta er versta sort af öllu ógeðs­legu.“

„birta myndir af ger­endum á almennum áber­andi stöðum mis­kunn­ar­laust, mætti hafa myndir af for­ræð­is­mönnum með“

„dæma þá eins og um FULLORÐNA EINSTAKLINGA sé að ræða !“

„Berja þessa ves­al­inga fyrir framan alla í skól­anum.“

„Það á að draga öll þessi börn í sjón­varpið og vita hvað þau hafa að segja og hvort ekki lækk­aði í þeim kjaft­ur­inn.“

„Taka þessa krakka ANDSKOTA og löðr­unga þá, djöf­uls­ins við­bjóður er þessi krakka líður„

„Það vantar hérna ung­linga­dóm­stól og ung­linga*fang­elsi*“

„Helvítis aumk­un­ar­verðu og illa inn­rættu börn.“

„Þetta eru heila­lausir aum­ingjar eins og for­eldr­arnir.“

„Það þarf ekki að raskella þessi börn, það þarf að lemja mann­dóm í for­eld­rana líka, sóunn á súr­efni þetta pakk.“

„Krakkar þurfa ađ finna þađ međ mjög skýrum hætti ađ ofbeldi hefur afleiđingar og afleiđing­arnar þurfa ađ bìta hressi­lega helst mjög mikiđ.“

„Skítt með per­sónu­vernd, nöfn þess­ara krakka og for­eldra þeirra upp á borðið strax.“

„Name and shame þessa krakka og for­eldra þeirra. Eina ráðið“

„Ógeðs­legur skóli eru for­eldrar eitt­hvað skrýtnir að leyfa þessu að við­gang­ast.“

„Setja upp opna Facebooksíðu með myndum af þessum ógeðis krakka­fíflum.“

„Það þarf auð­vitað fyrst og fremst að taka þessa ger­endur ÚR UMFERÐ og það und­ir­eins. Það er ekki hægt að hafa svona villi­dýr í sam­fé­lag­inu“

„Helvítis við­ur­styggi­lega drullu­hyski“

„Fara heim til þeirra og murka lífið úr pabba þeirra fyrir framan börnin“

„Guð minn góður hvað er að loka þessum skóla og taka börnin af for­eldr­unum“

„Meira ruglið…ég væri búin að senda hrotta á eitt og hvert þeirra og for­eldra“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina