Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Stripparinn sem hvarf – Fannst látin á Búrfelli tíu dögum seinna

Stripparinn sem hvarf – Fannst látin á Búrfelli tíu dögum seinna

Eitt dul­ar­fyllsta manns­hvarf og and­lát erlends rík­is­borg­ara hér á landi verður að telja hvarf og and­lát eró­tíska dans­ar­ans frá Ung­verja­landi, hennar Angelu Cseho árið 1996.

Angela dó alltof ung

Angela Cseho starf­aði sem eró­tískur dans­ari í Reykja­vík en þann 3. maí 1996 heyrð­ist síð­ast frá henni. Hún hafði verið stödd á Selfossi í stuttri ferð austur yfir fjall. Umfangs­mikil leit að stúlkunni bar fyrst um sig ekki árangur en Morg­un­blaðið sagði svo frá leit­inni:

Umfangs­mikil en árang­urs­laus leit

UMFANGSMIKIL leit fjölda manna að ung­versku stúlkunni Angelu Cseho bar engan árangur um helg­ina. Leitað var á landi og úr lofti um svæðið frá Gils­firði í vestri og að Horna­firði. í gær var unnið að því að draga saman og meta fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar um málið, og í fram­haldi af því verður ákveðið hvaða með­ferð málið hlýtur, að sögn Geirs Jóns Þór­is­sonar, aðal­varð­stjóra hjá lög­regl­unni í Reykja­vík, sem stjórnað hefur leit að kon­unni. Geir Jón segir að Rann­sókn­ar­lög­regla rík­is­ins hafi fylgst með gangi máls­ins til þessa. Ekkert liggi hins vegar fyrir um að af brot hafi verið framið. Í gær var ekki leitað en dregnar voru saman upp­lýs­ingar og skýrslur og unnið að und­ir­bún­ingi þess að ákveða næstu skref í leit­inni. Ekkert hefur spurst til Angelu Cseho síðan að kvöldi föstu­dags­ins 3. maí, þegar hún var stödd við Selfoss og hafði þá ætlað stutta ferð austur yfir fjall. Í leit­inni um helg­ina yoru eknir allir helstu vegir á leið­inni frá Gils­firði að Horna­firði í leit að bif­reið­inni sem Angela sást síð­ast á. Það er rauður Nissan Sunny 1985, með skrán­ing­ar­núm­erið Y-15733. Auk þess var leitað árang­urs­laust úr lofti í þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar.

Billinn sem Angela var á

Breytt lýs­ing

Geir Jón Þórisson sagði að í ljós væri komið að Angela Cseho hafi ekki verið eins klædd og segir í þeim Lýsingum, sem gefnar hafa verið út. Buxur, sem talið var að hún hafi verið í, hafa fund­ist á heim­ili hennar og nú liggur fyrir að hún var klædd í skræp­óttar bláar stretch-buxur.

Nokkrum dögum síðar fannst lík Angelu á furðu­legum stað. Í hlíðum Búrfells lá lík hennar í tíu daga en var talið að hún hefði hrapað í fjall­inu og lát­ist sam­stundis. Ekki er þó vitað hvers vegna hún var stödd á Búrfelli sem var ill kleift að sögn sér­fræð­inga. Svo virð­ist sem hún hafi ætlað að ganga á fjallið en til þess var hún vel búin. Morg­un­blaðið sagði frá fund­inum: 

Fannst látin í hlíðum Búrfells

LÍK ung­versku stúlkunnar Angelu Cseho, sem leitað hefur verið und­an­farna daga, fannst í suð­vest­ur­hlíðum Búrfells í fyrr­inótt. Talið er að hún hafi hrapað í fjall­inu og lát­ist sam­stundis. Lík kon­unnar var flutt til Selfoss. Starfs­menn í Búr­fells­virkjun fundu bíl Angelu fastan í aur­bleytu á veg­ar­slóða í Búr­fells­skógi í Þjórs­ár­dal. Lög­reglan í Reykja­vík til­kynnti lög­regl­unni á Selfossi um fund­inn kl. 19.30 í fyrra­kvöld. Veg­ar­slóð­inn liggur vestur með Búrfelli og suður fyrir fjallið og er vart fær öðrum bílum en jeppum. Slóðinn er lítið ekinn og er illa far­inn eftir vet­ur­inn. Starfs­menn­irnir voru á eft­ir­lits­ferð þegar þeir óku fram á rauða Nissan Sunny-bif­reið Angelu tæpa fjóra km frá Búr­fells­virkjun. Þar hafði hann verið spólaður niður í ræsi og sat þar fastur. Að sögn lög­regl­unnar voru engin spor á svæð­inu né önnur ummerki enda er slóðin lík­lega um tíu daga gömul. Bíllinn var læstur og eðli­lega frá honum gengið. í honum var ýmis­legt sem til­heyrði Angelu. Kallaðar voru út þrjár björg­un­ar­sveitir úr Rang­ár­valla­sýslu og fleiri björg­un­ar­sveitir ann­ars staðar af land­inu tóku þátt í leit­inni. í fyrstu var leitað með spor­hundi frá bílnum í átt að Búr­fells­virkjun og var það svæði fín­kembt, að sögn lög­reglu.

Klukkan 4.05 til­kynnti félagi í Hjálp­ar­sveit skáta í Hafn­ar­firði, sem hafði spor­hund með­ferðis, að konan hefði fund­ist mjög ofar­lega í Búrfelli í suð- vest­ur­enda fjalls­ins. Hún var látin þegar að var komið. Fjallið nán­ast ókleift á þessu svæði Stað­ur­inn þar sem hún gekk upp í fjallið er um 900 m frá þeim stað sem hún yfir­gaf bíl­inn. Þar gekk hún upp brattan gil­skorn­ing og segir lög­regla að hún virð­ist hafa ætlað að kom­ast upp á fjall­stopp­inn um hann. Svo virð­ist sem hún hafí hætt við það og leitað upp­göngu örlítið sunnar þar sem mikið kletta­belti stendur út úr fjall­inu. Þar er talið að hún hafi hrapað um 300 metra í stór­grýti og miklum bratta. Við rann­sókn máls­ins fékk lög­reglan á Selfossi vana fjall­göngu­menn í lið með sér til þess að athuga hvort fjallið væri kleift á þessu svæði en svo reynd­ist varla vera. Lög­reglan dregur þá ályktun af því að konan hafi ætlað að klifra upp kletta­beltið en fallið áður en hún komst upp á fjallið. Konan var mjög vel búin til fjallaklif­urs, í góðum skóm og kuldagalla. GSM-far­sími fannst á kon­unni og er talið hugs­an­legt að hún hafi ætlað upp á fjallið til þess að ná síma­sam­bandi og láta vita af sér. Lög­reglan telur af ummerkjum að dæma að slysið gæti hafa gerst fyrir um tíu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina