Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Segir fráleitt að Ísidór hafi verið að undirbúa hryðjuverk: „Þetta mál er hvorki fugl né fiskur“

Segir fráleitt að Ísidór hafi verið að undirbúa hryðjuverk: „Þetta mál er hvorki fugl né fiskur“

Einar Oddur Sig­urðs­son lög­maður er verj­andi Ísidórs Nathans­sonar, sem ásamt Sindra Snæ Birg­is­syni, situr nú í gæslu­varð­haldi vegna rann­sóknar lög­reglu á vopna­laga­broti og meintum áformum um hryðju­verk.

Hann segir – í grein á dv.is – að málið sé skjól­stæð­ingi hans afar erfitt:

„Þetta yfir­bragð sem málið hefur tekið á sig hefur komið mjög illa við hann og þeim sem honum tengj­ast, dvölin í gæslu­varð­haldi er alltaf erfið og málið mjög þung­bært fyrir hann og hans aðstand­endur.“

Einar Oddur Sig­urðs­son.

Einar er á sama máli og verj­andi Sindra Snæs, Sveinn Andri Sveins­son, að lög­reglan hafi alls ekki getað sýnt fram á með óyggj­andi hætti að ungu menn­irnir tveir hafi verið að und­ir­búa hryðju­verk; þrátt fyrir afar gal­goba­legt tal þeirra á spjall­for­riti um slík áform.

„Þetta mál er hvorki fugl né fiskur – snýst um til­tekin sam­skipti og hvaða túlkun eigi að leggja í þau, ég er sam­mála þeim röddum sem sagt hafa lög­regl­una fara offari í þessu máli og þá sér­stak­lega í tengslum við þessa blaða­manna­fundi sem haldnir voru í upp­hafi,“ segir Einar og bætir við að efn­is­at­riði rann­sókn­ar­innar sem lekið hafi verið til fjöl­miðla hafi verið skjól­stæð­ingi hans afar þung­bær; nefnd hafa verið ýmis hræði­leg meint áform drengj­anna um hryðju­verk, sem verj­endur þeirra, Sveinn Andri og Einar, hafna alfarið að hafi verið í und­ir­bún­ingi:

„Ef þessi heim­færsla á að ganga upp þá þarf að sýna fram á ein­hvers konar und­ir­bún­ings­at­hafnir eða að ásetn­ingur hafi verið sýndur í verki.“

Einar segir það algjör­lega frá­leitt að Ísidór hafi verið að und­ir­búa hryðju­verk á Íslandi:

„Ég hafna því algjör­lega. Það eru ýmsar ávirð­ingar uppi sem ekki er hægt að segja að eigi við nein rök að styðj­ast en vopna­laga­brotin eru kannski frekar borð­liggj­andi,“ segir hann; en komið hefur fram að þeir félagar Sindri Snær og Ísidór séu sak­aðir um að hafa verið að búa til stór­hættu­leg skot­vopn með þrí­vídd­ar­prent­ara.

„Almennt séð er ekki til bóta að reka mál í fjöl­miðlum en fyrst umfjöll­unin fór af stað og málið var lagt upp með þessum hætti þá eru verj­endur nauð­beygðir til að bera hönd fyrir höfuð skjól­stæð­inga sinna.“

Sindri Snær og Ísidór hafa setið í gæslu­varð­haldi síðan 21. sept­em­ber; rennur gæslu­varð­halds­úr­skurður yfir þeim út þann 10. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Staðan á Íslandi er sú að ekki er hægt að halda sak­born­ingum lengur í gæslu­varð­haldi en í þrjá mán­uði án þess að leggja fram kæru gegn þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina