Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sláandi verðmunur á íslenskum náttúrulaugum: Bláa lónið er langdýrast og Fontana ódýrast

Sláandi verðmunur á íslenskum náttúrulaugum: Bláa lónið er langdýrast og Fontana ódýrast
Sjóböðin Hvamms­vík

Eitt af því sem við Íslend­ingar erum rík af er vatnið, heitt og kalt. Það heillar jafnt lands­menn sem erlenda ferða­menn sem hingað koma.  Á síð­ustu árum hefur auk­ist mjög fram­boð á ýmsum, mann­gerðum, nátt­úru­laugum. Umfjöllun um þessi mál eru í nýjasta hefti Mannlífs.

En það er ekki ókeypis að heim­sækja þessa staði og verð­munur er slá­andi. Ódýrast er að heim­sækja Laug­ar­vatn Fontana eða 4500 krónur á mann. Dýrast er að heim­sækja Bláa lónið eða 11990* krónur á mann.

En það er ekki á allra færi að njóta þess­ara nátt­úru­lauga.  Mannlíf tók sem dæmi fimm manna fjöl­skyldu sem saman stóð af tveimur full­orðnum, þremur börnum fimm, tíu og fjórtán ára.  Ef fjöl­skyldan heim­sækir Gilja­böðin þá kostar það 24090 krónur. En ef þau heim­sækja Kraumu kostar það 14300 krónur. En ef fjöl­skyldan vill gera vel við sig og fara í Bláa lónið þá kostar það fjöl­skyld­una 35970 krónur.

Nokkrir staðir bjóða sér­verð fyrir aldr­aða og öryrkja, til dæmis Sjóböðin GeoSea, Jarð­böðin Mývatni og Laug­ar­vatn Fontana. Einnig er í boði á sumum stöðum vetr­ar­kort og 10 skipti. Vert er að skoða þann mögu­leika ef þú býrð nálægt og vilt njóta hag­stæð­ustu kjara. Einnig er mis­jafnt verð fyrir börn og ald­urs­bil á skil­grein­ingu barna.

Þess ber þó að geta að erfitt er að bera saman verð þar sem munur er á því hvað inni­falið er í verði. Til dæmis er göngu­ferð með leið­sögn inni­falið í heim­sókn í Gilja­böðin. Virka daga er ódýr­ara að heim­sækja Sjóböðin í Hvamms­vík en þá kostar það 6900 krónur en 7900 krónur um helgar.

Nýjasti bað­stað­ur­inn eru Sjóböðin í Hvamms­vík. Þar fær nátt­úran að njóta sín í öllu sínu veldi og Hval­fjörð­ur­inn rammar stað­inn full­komn­lega inn. Sjóböðin í Hvamms­vík sam­an­standa af átta mis­stórum og heitum laugum í fjöru­borð­inu, gufu og úti­svæðum til slök­unar. Neðstu laug­arnar birt­ast og hverfa til skiptis á flóði og fjöru og er upp­lifunin því síbreyti­leg eftir tíma dags. Reka­viður er áber­andi í hönnun stað­ar­ins.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er Sky lagoon í Kópavogi sem opn­aði 2021 er annað upp á ten­ingnum. Þar er til­bú­inn drauma­heimur og heill­andi heilsu­lón sem sem er smekk­lega hannað inn í nátt­úru­legt umhverfi á Kárs­nes­inu. Þar fer saman slökun og end­ur­nær­ing þar sem him­inn og haf renna saman.

Úr Kópa­vog­inum höldum við á Laug­ar­vatn. Þar er að finna Fontana við Laug­ar­vatn og þú upp­lifir ein­staka fjalla­sýn á meðan þú end­ur­nær­ist. Einnig er í boði ein­stök gufa sem er beint yfir nátt­úru­legum gufu­hverum.

Frá Laug­ar­vatni er til­valið að skreppa upp í Borg­ar­fjörð. Þar er að finna Kraumu og Gilja­böðin. Skammt norðan við Deild­ar­tungu­hver stendur Krauma nátt­úru­laug. Nátt­úru­laug­arnar inni­halda hreint og tært vatn beint úr Deild­ar­tungu­hver sem kælt er með vatni undan öxlum Oks. Laug­arnar eru sjö tals­ins, sex heitar og ein köld.

Gilja­böðin við Húsafell bjóða upp á ein­staka upp­lifun í mann­gerðum laugum með nátt­úru­steinum úr nágrenn­inu. Þar eru í boði tvær heitar laugar auk kaldrar upp­sprettu. Húsafell Giljaböð bjóða upp á ferðir með leið­sögn í full­komna hálend­is­slökun í ein­stökum gilja­böðum.

Næst höldum við norður yfir heiðar og er stefnan tekin á Skóg­ar­böðin sem eru stað­sett í Vaðla­heiði gegnt Akureyri.  Skóg­ar­böðin eru nátt­úru­laugar  sem njóta sín ein­stak­lega vel inn í þétt­vöxnum skóg­inum með útsýni yfir Eyja­fjörð­inn. Auk heitu laug­anna er hægt að baða sig í kaldri laug og fara í þurrsána.  Einstök upp­lifun sem hægt er að mæla með.

Áfram höldum við og nú tökum við krók að Mývatni en þar eru Jarð­böðin stað­sett. Böðin er stað­sett í Jarð­baðs­hólum en þar hafa verið stundið heit jarð­böð til heilsu­bótar allt frá land­náms­öld. Jarð­böðin eru fyrir alla sem vilja njóta þess að vera í beinni snert­ingu við nátt­úr­una, slaka á og end­ur­næra lík­ama og sál. Boðið er upp á nátt­úru­leg gufu­böð, bað­lón með heitu hvera­vatni og heitan pott.

Næst er það Húsavík. Þar er að finna Sjóböðin GeoSea. Í sjó­böð­unum nýtur þú nátt­úr­unnar á ein­stakan hátt. Hitinn í iðrum jarðar sér um að sjór­inn í böð­unum sé hlýr og góður og stein­efna­ríkt vatnið gælir við hör­undið. Á meðan hlýr sjór­inn vinnur sín krafta­verk nýtur þú útsýnis yfir fjall­garð­inn í vestri, Skjálf­anda­fló­ann fyrir neðan klettana og sjálfan Norður-heim­skauts­baug­inn handan við sjón­deild­ar­hring.

Frá Húsavík höldum við til Egils­staða. Við Urriða­vatn sem er fimm kíló­metra frá Egils­stöðum er að finna Vök Baths sem eru heitar nátt­úru­laugar. Laug­arnar eru full­kom­inn áninga­staður fyrir þá sem vilja upp­lifa beina snert­ingu við nátt­úr­una og næra um leið lík­ama og sál.  Fyrir þá sem það vilja og treysta sér til er einnig hægt að taka nokkur sund­tök í ísköldu Urriða­vatni.

Nú förum við þvert yfir landið og endum þessa umfjöllun okkar við Grinda­vík. Bláa lónið þarf varla að kynna fyrir nokkrum manni en þar hefur verið rekið bað­lón frá 1987. Bláa lónið er nú ein­hver fjöl­sótt­asti ferða­manna­staður á Íslandi bæði af inn­lendum og erlendum ferða­mönnum og er talið eitt af 25 undrum ver­aldar. Fyrir utan ein­staka upp­lifun af því að baða sig í lón­inu þá hefur böðun jákvæð áhrif á húð­sjúk­dóm­inn psorisasis. Einnig er boðið upp á hreins­andi og nær­andi kís­ilmaska í lón­inu sem er inn­falið í verði.

*Ódýrasti aðgangur í Bláa lónið er svo­kall­aður Comfort aðgangur en þar er inni­falið kís­ilmaski, hand­klæði og drykkur að eigin vali. Einnig getur verð verið mis­mun­andi eftir því hvað þú pantar með löngum fyr­ir­vara en þetta er það verð sem oft­ast kom upp ef þú ætl­aði að panta á næstu vikum. Aldraðir og öryrkjar greiða það verð sem er ódýr­ast hverju sinni en þar er ekki hægt að gefa upp neina ákveðna krónu­tölu. Börn fjórtán ára og eldri greiða sama gjald og full­orðnir en börn tveggja til þrettán ára greiða ekk­ert gjald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina