Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hrafnhildur um dýravelferð á Íslandi: „Af hverju á þetta fólk að fá afslátt á gjörðum sínum?“

Hrafnhildur um dýravelferð á Íslandi: „Af hverju á þetta fólk að fá afslátt á gjörðum sínum?“
Stórhóll Lamb stendur ofan á dauðri á. Mynd tekin um 2009.

Hrafn­hildur P. Þor­steins­dóttir hesta­kona skrif­aði ítar­legan pistil á Mannlíf í dag þar sem hún fer yfir ýmis mál tengdum dýra­níði og mátt­leysi Mast og stjórn­valda í mála­flokknum. Mannlíf ræddi við hana nánar um málið.

Hrafn­hildur P. Þor­steins­dóttir

Óhæfir eftirlitsmenn

„Eft­ir­lits­menn á svæð­unum á Suður og Vest­ur­landi eru kyn­bóta­dóm­arar sem er óásatt­an­legt vegna tengsla. Þetta er mjög óþægi­legt í öllu falli vegna okkar smæðar. Þetta er öllum hesta­mennum ljóst. Enginn þorir að tjá sig. Það er deg­inum ljós­ara að það þarf fólk sem er ótengt sem ann­ast þessi mál. Í þessum mál­efnum ættu að vera fólk sem hafa ekki nein tengsl, bara kerf­is­fólk. Ískalt,“ segir Hrafn­hildur aðspurð um það hvað mætti til dæmis bæta í mál­efnum dýra á Íslandi.

Vill Hrafn­hildur taka fram að lang­flestir bændur fari vel með dýrin sín.

„Bændur um land allt hafa haft sam­band við mig vegna þessa og hafa bent mér á bæi sem hafa allt niðrum sig. Nánast allir bændur eru með sitt á hreinu.“

En af hverju heldur Hrafn­hildur að þó þetta margir fari illa með dýrin sín?

„Það liggur aug­ljóst fyrir að fólk sem fer illa með skepnur á við and­lega erf­ið­leika að stríða.  Þetta er eld­fimt mál en af hverju þurfa skepnur að þurfa að gjalda þess að fólk mis­þyrmi þeim og það á okkar vakt? Við erum með barna­vern­ar­nefnd og fleiri úræði en ekk­ert sem snýr að vel­ferð dýra. Af hverju á þetta fólk að fá afslátt á gjörðum sínum?“

Blákalt mat

„Mast, þessi stofnun hefur tak­mark­aðar aðgerðir til sinna ráða. Logandi hrædd við mál­sóknir. Hér­aðs­dómur snýr málum Mast niður þegar þeir krefj­ast þess að fólk fái ekki að halda skepnum áfram,“ segir Hrafn­hildur um Mat­væla­stofnun Ríkisins sem hefur að und­an­förnu fengið á sig mikla gagn­rýni vegna þess hversu hægt virð­ist ganga hjá stofn­un­inni að leysa dýra­níð­ings­mál. Bætti hún við: „Dags­sektir virka ekki á níð­inga. Það þarf að ráð­ast í alvöru til­tekt. Af hverju eru neyt­endur ekki með á vakt­inni hvað varðar mjólkur­iðnað. Bú sem ekki hleypa kúm sínum út eiga að mínu mati að verða svipt leyfi umsvifar­laust. Ef þú ætlar að með ein­beittum hætti að stunda níð­ings­hátt þá eru dags­sektir bara hjá­kát­leg við­ur­lög.“

Hrafn­hildur telur að innan Mast leyn­ist óhæfir dýra­eft­ir­lits­menn.

„Mast hefur dýra­eft­ir­lits­mann til margra ára sem hefur verið upp­vís af því að sinna ekki skyldum sínum. Honum var treyst fyrir stóð­hest­inum Blæ frá Torfu­nesi á sínum tíma en hann kom frá honum grind­hor­aður. Það mál rataði í frétt­irnar. Þetta er fólkið sem við treystum fyrir að taka út skepnur á bæjum lands­ins. Sá hinn sami er kyn­bóta­dóm­ari. Einnig er starf­andi kyn­bóta­dóm­ari á Vest­ur­landi. Vegna smæðar lands­ins og tengsla ætti þetta ekki að vera líð­andi. Þessir aðilar búa á næstu þúfu við níð­ing­ana. Hesta­menn eru dauð­hræddir og með­virkir í þessum málum eðli­lega. Í þessi störf ætti að velja utan­að­kom­andi fólk sem hefur engar teng­ingar við bæina. Bara blákalt mat.“

Hnífurinn í kúnni

Þá segir hún einnig að Mast sé ekki eina vanda­málið heldur skorti nógu sterkar laga­heim­ildir í mála­flokknum.

„Mast hefur ekki nógu sterkar laga­heim­ildir til þess að svipta fólki skepnum, það kemur í ljós þegar ég hef skoðað gömul mál og ný. Hér­aðs­dómur dæmir alltaf fólk­inu í vil, að halda skepnum áfram þrátt fyrir hræði­lega með­ferð. Þarna stendur hníf­ur­inn í kúnni. Mast hefur tak­mark­aðar heim­ildir. Eft­ir­lits­menn hafa allt of stórt land­svæði að fara yfir. Merki­legt að Sigurður Ingi ráð­herra skuli ekki brenna meira fyrir þessi mál­efni. Hann er dýra­læknir að mennt. Og maður hefði haldið að hann hefði ágæta yfir­sýn yfir þessi mál.“

Skepnuhald skal vera leyfisskylt

Eitt af því sem Hrafn­hildur telur að myndi hjálpa mál­leys­ingj­unum er að gera skepnu­hald leyf­is­skylt.

„Eftir sam­tal mitt við fram­kvæmda­stjóra Bænd­sam­tak­anna þá hefur það verið oft rætt að skepnu­hald skulu vera leyf­is­skylt. Þetta er einmitt punkt­ur­inn sem góður dýra­læknir, Sigurður Sig­urð­ar­son hefur bent á í fjöl­mörg ár en aldrei verið hlustað á. Þeir sem tala gegn því benda á að það muni verða of dýrt og meiri kostn­aður lendi á bændum. Þetta ætti ekki að vera svona flókið með laga­setn­ingu og ein­földum aðgerðum sem yrðu ekki til þess að gjöld myndu falla á ein­stak­linga,“ sagði Hrafn­hildur og bætti við öðru sem myndi hjálpa: „Í Noregi eru menn settir inn fyrir minni brot gegn dýrum en þetta. Einnig eru þau svipt rétti til að halda skepnur til fimm ára.“

Í huga Hrafn­hildar hafa Alþing­is­menn alltof mik­inn frí­tíma:

„Ef ein­hver er með vit í hausnum á Alþingi sér þetta ekki þá er eitt­hvað mikið að. Það er hægt að þvaðra um hvort ÁTVR eigi að vera opið á sunnu­dögum eða hvort fara þurfi að selja vín í mat­vöru­versl­unum. Ég nota orð Georgs Bjarn­freð­ar­sonar, þetta er fólk sem hefur of mik­inn frí­tíma.“

Að lokum vildi Hrafn­hildur koma því á fram­færi hver hennar næstu skref eru í bar­átt­unni fyrir dýra­vel­ferð:

„Ég mun taka mig til að draga saman hvaða bæir hleypa ekki kúnum sínum út að sumri til. Ég er viss um að það muni hreyfa við ein­hverju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina