Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dagskrárgerðamaður birti óskalista yfir hjásvæfur: „Eins og gott vín verður hún betri með aldrinum“

Dagskrárgerðamaður birti óskalista yfir hjásvæfur: „Eins og gott vín verður hún betri með aldrinum“
Myndin er sam­sett

Upp­taln­ing kven­fólks, lýs­ingar á fasi þeirra, útliti og þokka auk mynd- og nafna­birt­ing á kven­fólk­inu undir yfir­skrift­inni: „TÍU KONUR SEM MIG LANGAR AÐ SOFA HJÁ“ Í Helg­ar­póst­inum 11. maí 1995 var rætt við Hjört Howser, dag­skrá­gerð­ar­mann. Var umfjöll­unin um það bil hálf síða og var hún upp­taln­ing á tíu konum sem Hjört lang­aði að sofa hjá. Hjörtur taldi upp kon­urnar frá einum og upp í tíu og gaf útskýr­ingu á hvers vegna konan fékk téð pláss á list­anum hans. Auk fullra nafna voru myndir birtar af and­litum kvenn­anna og voru enni kvenn­anna merkt með rauðum tölu­staf í sam­ræmi við sæti þeirra á list­anum.

„Hjörtur Howser dag­skrár­gerð­ar­maður kvað „hjásof“ vera hið mesta prí­vat­mál en ákvað að láta skeika sköpum og klykkti út með því að fyrir hverja konu sem útvalin yrði til upp­taln­ing­ar­innar, væru þrjár aðrar und­an­skildar. Vildi Hjörtur biðja þær konur afsök­unar sem ekki urðu fyrir val­inu en nefndi þessar til sög­unnar.“

Númer eitt, tvö og þrjú á lista Hjartar var Hanna Valdís. Líkum má leiða að umrædd kona hafi verið kærasta Hjartar.

„HANNA VALDÍS. Hún er stóra ástin í lífi mínu og ég verð eig­in­lega að a setja hana í fyrsta, annað og þriðja sæti vegna þess að hún á hug minn allan. Allar konur sem á vegi mínum verða þurfa þess vegna að þola sam­an­burð við hana.“

Í fjórða sæti var Sigríður Arn­ar­dóttir sem er flestum land­mönnum kunn sem Sirrý.

„SIGRÍÐUR ARNARDÓTTIR, dag­skrár­gerð­ar­maður og þula. Hún er ein­stakt augna­yndi en ég er hræddur um að hann þarna leik­ari, kall­inn hennar, yrði ekki par hrif­inn.“

Fimmta sætið hlaut Unnur Steins­son sem árið 1983 hlaut tit­il­inn feg­urð­ar­drottn­ing Íslands. Hjörtur líkir Unni við vín og segir hana batna með árunum:

„UNNUR STEINS hefur alltaf verið flottasta feg­urð­ar­drottn­ing Íslands. Og eins og gott vín verður hún betri með aldr­inum.“

Sjötta konan á list­anum sem Hirti lang­aði að sænga var:

„INGRID JÓNSDÓTTIR, leik­kona. Hef aldrei séð jafn mik­inn lífs­þrótt og lífs­gleði í hreyf­ingum og fasi hjá nokk­urri konu.“

Sjöunda sætið skip­aði söng- og tón­list­ar­konan Ellen Krist­jáns­dóttir.

„ELLEN KRISTJÁNS. Hef alltaf verið skot­inn í henni. (Sorry, Eyþór!!)“

Áttunda sæti list­ans hlutu hvorki meira né minna en allar stelp­urnar á Sólon Íslandus, en sam­kvæmt útskýr­ing­unni sem fylgdi áttu þær allar eitt sam­eig­in­legt:

„AllAR STELPURNAR á Sólon Íslandus, því þær gera svo gott Cappuchino“

Í níunda sæt­inu var Siv Frið­leifs­dóttir sem sat á þingi fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn árið 1995.

„SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR, kodda­hjalið gæti þá verið um sjáv­ar­út­vegs­stefn­una og afstöðu lopa­flokks­ins.“

Tíunda konan sem Hjörtur lýsir löngun sinni til að sofa hjá er Bryndís Schram eign­kona Jón Baldvins Hanni­bals­sonar:

„BRYNDÍS SCHRAM Nafnið hennar er alltaf rétt svar í Trivial Pursuit, burt­séð frá spurn­ing­unni! Það segir manni nokkuð.
(10. B sæti: Prests­frúin á Kópa­skeri, ef maður skyldi ein­hvern tím­ann verða veð­ur­tepptur!)“

Mynd / Skjáskot af frétt Helg­ar­pósts­ins, tima­rit.is

Óhætt er að full­yrða að tölu­verð fram­þróun hefur átt sér stað í jafn­rétt­is­bar­áttu kynj­anna og alls óvíst að í dag fengi slík umfjöllun með­byr á rit­stjórn­ar­fundum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina