Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Neytandi vikunnar: Geirdís býr í hjólhýsi í Laugardalnum og dreymir um að rækta sitt eigið grænmeti

Neytandi vikunnar: Geirdís býr í hjólhýsi í Laugardalnum og dreymir um að rækta sitt eigið grænmeti
Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir

Neytandi vik­unnar heitir Geirdís Hanna Krist­jáns­dóttir og er 48 ára öryrki móðir dásam­legra drengja og eig­andi Tinnu sem er tæp­lega fjagra ára blanda af Border Collie og Íslenskum fjár­hundi.  Hún sinnir hinum ýmsu félaga­störfum auk þess að vera í námi til við­ur­kennds bók­ara.  Hefur félags­starfið sem hún sinnir haft gríð­ar­lega jákvæð áhrif á líðan hennar þrátt fyrir bága fjár­hags­stöðu.  Því félags­leg ein­angrun er fylgi­fiskur þess að búa við fátækt.

Hvernig ferðu að ná endum saman?

Það er frekar erfitt og yfir­leitt í lok mán­aðar eru allir reikn­ingar tómir og búið að selja þær flöskur sem safn­ast hafa saman yfir mán­uð­inn til að geta keypt nauð­synjar.

Hvað gerir þú þegar neyðin er stærst?

Það sem hefur hjálpað mér mest er að hafa Pepp í Arn­ar­bakka, þar get ég komið
og fengið frítt brauð og kaffi, eins er boðið upp á heitan mat í hádeg­inu á
mið­viku­dögum. Ég er líka ein­stak­lega heppin með fólkið í kringum mig sem er
boðið og búið til að rétta mér hjálp­ar­hönd þegar sem mest þrengir að.

Telur þú álagn­ingu versl­ana sann­gjarna og gerir þú verð­sam­an­burð á vörum
og þjón­ustu?

Mér finnst álagn­ing hafa hækkað langt umfram það sem eðli­legt getur talist
und­an­farið og ég geri reglu­lega verð­sam­an­burð á þeim vörum sem ég nota hvað mest.

Hvað með sparnað í matarinnkaupum og hverju vilt þú breyta sem neytandi?

Ég sker allt við nögl þegar kemur að mat­ar­inn­kaupum, sem þýðir að ég fæ alls ekki eins nær­inga­ríkan mat og ég helst þyrfti.
Það mætti oftar bjóða uppá hærri afslætti á nauð­synja­vörum, það sem Krónan
hefur verið að gera er mjög flott fram­tak en betur má ef duga skal, sér­stak­lega
fyrir þá sem þurfa að skrapa saman klinki eftir aðra viku mán­að­ar­ins.

Leggur þú fyrir, og hvaða leiðir notar þú ef svo er?

Ég er með sam­eig­in­legan sparn­að­ar­reikn­ing með vin­konu minni og legg fyrir 5 þús­und krónur á mán­uði. En ef mig langar í ferða­lög erlendis þá dugar það frekar skammt og tekur langan tíma að safna fyrir því. Seinasta ferð sem ég fór í tók mig tvö ár að safna fyrir og dugði þó ekki til að dekka allan kostnað. Ef ekki hefði verið fyrir góða vini hefði ég ekki kom­ist í þessa ferð.

Hve miklu eyðir fjölskyldan í mat og aðrar rekstrarvörur heimilisins á mánuði?

Ég er ein í heim­ili með hund og eyði að með­al­tali 50 þús­und krónur í mat og rekstr­ar­vörur á mán­uði. Sem myndi telj­ast frekar lág upp­hæð?

Umhverfisvernd, skiptir hún þig máli ?

Já hún gerir það. Minn draumur er að geta verið sjálf­bær að mestu leiti, að geta ræktað mitt eigið græn­meti án mik­ils auka­kostn­aðar, en þeir reitir sem boðið er uppá eru fáir og yfir­leitt þó nokkur spotti að ferð­ast þangað, sem getur reynst þeim sem ekki hafa bíl til umráða frekar erfitt.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað, gjafir?

Ég reyni að versla alltaf sem ódýr­ast inn þar sem ekki er mikið úr að moða af 270 þús­und króna  ráð­stöf­un­ar­tekjum. Gjafir eru ævin­lega eitt­hvað sem situr á hak­anum og skorið við nögl. Fatnað fæ ég yfir­leitt not­aðan eða kaupi erlendis þegar ég hef haft tök á að ferð­ast.

Endurnýtir þú?

Ég end­ur­nýti allt sem hægt er, not­aðan fatnað sem enn er heill kem ég áfram til ann­arra sem gætu nýtt hann.

Hvaða ráð hefur þú til annarra?

Það er mjög erfitt að gefa öðrum ráð í svona aðstæðum, flestir eru orðnir lang­þreyttir og upp­gjöfin algjör. En mér finnst mjög mik­il­vægt að fólk í fátækt skili skömminni því þetta er ekki sjálf­skap­ar­víti, heldur afleið­ing af póli­tískum ákvörð­unum. Til dæmis hefur örorku­líf­eyrir dreg­ist veru­lega aftur úr lág­marks­launum og er bilið núna að minnsta kosti 100 þús­und krónur á mán­uði. Eins hafa frí­tekju­mörk ekki hækkað í 14 ár sem gerir það að verkum að þeir sem reyna að bæta kjör sín með vinnu verða fyrir gríð­ar­legum skerð­ingum og nán­ast eng­inn ávinn­ingur er af því að fara út á vinnu­mark­að­inn.
Þetta þarf að laga!

Annað sem þú vilt taka fram?

Ég bý í hjól­hýsi í Laug­ar­dalnum og höfum við sem kjósum að búa á þennan hátt verið að reyna fá borg­ina til að útvega okkur svæði til lang­tíma upp­bygg­ingar. Við erum venju­legt fólk sem kjósum að búa á óhefð­bund­inn hátt í okkar eigin heim­ilum. En þar sem við erum núna getum við ekki skráð heim­ils­fang heima hjá okkur og ég sem öryrki fæ þar af leið­andi ekki heim­il­is­upp­bót, en það eitt og sér myndi auka ráð­stöf­un­ar­tekjur mínar tölu­vert í hverjum mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina