Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Anna Kristjáns fagnar sigri Fótboltasamvinnufélagi Halifaxhrepps: „Svona getur snobbið leikið mig“

Anna Kristjáns fagnar sigri Fótboltasamvinnufélagi Halifaxhrepps: „Svona getur snobbið leikið mig“
Anna Krist­jáns.

Anna Krist­jáns­dóttir er eins og lands­menn vita, orð­heppin með ein­dæmum og í raun drep­fyndin. Á Facebook heldur hún úti dag­bók en hefur síð­ustu ár búið á Tenerife eða Paradís eins og hún kallar spænsku eyj­una.

Í nýj­ustu færslu sinni er Önnu tíð­rætt um knatt­spyrnu­leiki lið­innar helgar.

„Dagur 1175 – Klaust­ur­bar.

Í gær­morgun var klukk­unni breytt í Paradís. Þegar ég vakn­aði klukkan sex að morgni komst ég að þeirri hræði­legu stað­reynd að klukkan var bara fimm og ég neydd­ist til að eyða klukku­tíma lengur í rúm­inu áður en ég álp­að­ist á fætur.

Ég skrapp á Klaust­ur­bar (Nostal­gíu) í gær, ekki til að slúðra um konur eins og með­limum Mið­alda­flokks­ins er tamt, frekar til að borða pönnu­kökur og drekka gos því ekki má ég drekka bjór þegar ég er á Mjall­hvíti. Þegar á Klaust­ur­bar var komið var allt lokað og læst og ég fór að örvænta. Hvar eru ábót­inn og abbadísin á Klaust­ur­bar? Eftir nokkra stund mættu þau bæði og opn­uðu húsið og mér tókst að óska ábót­anum til ham­ingju með sigur hans manna hjá Sam­ein­uðum Lýðs­verjum (Leeds United) gegn ein­hverju liði í pen­inga­deild­inni. Þau hjónin voru svo ánægð með kveðj­una að ég þurfti nán­ast ekk­ert að borga fyrir pönnu­kök­urnar og kókið.“

Í miðkafla færsl­unnar segir hún frá beiðni sem henni barst á „Klaust­ur­bar“ sem hún mis­skildi illi­lega:

„Eftir smá­stund fyllt­ist allt af fólki. Nágrannar hans Kobba bróður mættu og tvær sem ég man ekki nöfnin á sem og Mummi frændi og Hrafn­hildur (ekki Mummi mein­horn) og var þar fagn­að­ar­fundur og fullt af öðru skemmti­legu fólki. Frábær eft­ir­mið­dags­stund á Klaust­ur­bar.Svo fór ein­hver að tala um að hún vildi taka sel­fie með sér og ein­hverju celebrity og ég stillti mér upp með bros á vör, en í stað þess að taka mynd af okkur saman, hljóp hún út og náði mynd af sér með Mjall­hvíti. Ég fór í rusl, flýtti mér í burtu og heim á Mjall­hvíti og lok­aði hana snar­lega niðri í bíla­geymsl­unni í stæði númer 65. Ég hélt að ég væri celebrity en ekki Mjall­hvít. En svona getur snobbið leikið mig. Ég er alveg miður mín.

Við Helena fengum okkur dýr­indis nauta­steik með bök­uðum og berna­isse en síðan var haldið á Búkkann og felldir nokkrir bjórar með Pétri áður en ég þurfti að halda heim á leið og skrifa pistil morg­un­dags­ins.“

Að lokum skrifar Anna meira um úrslit helg­ar­innar, bæði úr fimmtu deild­inni bresku sem og úrvals­deild­inni:

„Af íþróttum helg­ar­innar er það helst að hetj­urnar okkar í Fót­bolta­sam­vinnu­fé­lagi Hali­fax­hrepps unnu leik­inn sinn með sann­fær­ingu og lyft­ust aðeins upp frá botns­æt­inu. Ég við­ur­kenni að topp­sætið í fimmtu deild fjar­lægist stöðugt, en allt skal samt gert til að forð­ast fall niður í sjöttu deild.Ég held að ég þurfi ekki að ræða frekar leik Lýðs­verja við eitt­hvert botn­lið í pen­inga­deild­inni þótt ég hafi vissu­lega náð að óska Stuart for­stöðu­manni hús­bars­ins til ham­ingju með sig­ur­inn enda einnig Lýðs­verji rétt eins og Sævar ábóti á Klaust­ur­bar. Ég horfði hins­vegar á leik strák­anna hans Nenna gegn strák­unum í Vest­ur­bæj­ar­skin­k­unum og sá leikur fór ljóm­andi vel að mati sumra.Höfum samt hug­fast að ég hefi ekk­ert vit á bolta­sparki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu