Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnheiður með þrjú lítil börn þegar veiktist: „Er sannarlega sjokk að fá lífshættulegan sjúkdóm“

Ragnheiður með þrjú lítil börn þegar veiktist: „Er sannarlega sjokk að fá lífshættulegan sjúkdóm“
Ragn­heiður Lár­us­dóttir

„Hug­myndin er eld­gömul. Alveg frá því ég var lítil stelpa var ég alltaf að reka mig á hvað kven­fólkið, bæði stelpur og konur, var ein­hvern veg­inn horn­reka í þessu sam­fé­lagi karla. Ég var kannski ekk­ert að hugsa eins og ein­hver femínisti þegar ég var sex til sjö ára en samt sem áður rak ég mig á að ég hafði ekki sama rétt og strák­arnir og konur höfðu ekki sama rétt og karlar; þær höfðu ein­hvern veg­inn ekki sama erindi,“ segir Ragn­heiður Lár­us­dóttir en út er komin hennar þriðja bók, Kona/Spendýr, sem hún segir að fjalli um kven­hlut­verkið í hinum ýmsu myndum og teng­ist það til dæmis jafn­rétt­isum­ræðu, MeToo, móð­ur­hlut­verk­inu og hvað það er gaman að vera kona.

Hún ólst upp fyrir vestan. Í Önund­ar­firði.

„Það voru alls staðar skil í umhverf­inu á milli karla og kvenna. Ég held það hafi ekki verið nein sér­stök karl­rembusvín í minni sveit; tíð­ar­and­inn var bara svona. Ég man til dæmis þegar fyrsti kven­prest­ur­inn tók til starfa og maður heyrði fólk tala um að það ætl­aði ekki að láta ein­hverja kerl­ingu jarða sig eða mann­inn sinn.

Pabbi var prestur og ég var mikið í messum og í kirkj­unni,“ segir Ragn­heiður og nefnir hina heilögu þrenn­ingu; föður, son og heilagan anda. „Það var engin kven­per­sóna í þessu nema María mey og hún var ekk­ert mikið til umtals. Það var meira þessi heilaga þrenn­ing sem var byggð upp á karl­kyni. Og svo voru það post­ul­arnir. Þegar ég varð ung­lingur var ég eins og aðrar stelpur að berja af mér eða slíta af mér ein­hverjar gráð­ugar hendur sem maður vildi ekki hafa á sér. Ég var eina stelpan í stráka­bekk um tíma og vann svo mikið á karla­vinnu­stöðum svo sem í vega­vinnu og ég var stráka­stelpa en ég sá þetta samt alveg.

Þá var ég algjör­lega komin í þetta spen­dýrs­hlut­verk og var eins og belja á bás.

Svo var það að vera ólétt, eign­ast barn og hafa barn á brjósti. Þá var ég algjör­lega komin í þetta spen­dýrs­hlut­verk og var eins og belja á bás og það var ekk­ert mikið verið að tala við mann. Ég var hanteruð eins og ein­hver gripur. Mér fannst ég vera sett á bás með dýr­unum þegar ég var ólétt. Það var ekk­ert mikið talað við mann. Það var bara verið að troða fingrum inn í mann og verið á þreifa á manni og ekk­ert verið að hlusta á það sem maður hafði sjálfur að segja. Þeta var auð­vitað ekki illa hugsað en þetta var oft nið­ur­lægj­andi fram­koma.“

Hún talar líka um óorð­aða verka­skipt­ingu á heim­il­inu þegar börnin voru lítil. „Verka­skipt­ingin var svo­lítið kven- og karllæg.“

Ragn­heiður segir að bókin sé ekki hugsuð sem ein­hver brjál­æð­is­leg femínísk bar­áttu­bók. „Ég er bara að segja frá minni upp­lifun og það að vera kona í heimi karla.“

Að grafa ljóð

Ragn­heiður, sem er íslensku­kenn­ari í mennta­skóla og er auk þess söng­kenn­ari, seg­ist hafa átt sér skálda­drauma en að eng­inn hafi mátt vita það. Hún faldi það sem hún skrif­aði. Svo dreymdi hana um að verða söng­kona.

„Ég var alltaf að skrifa. Aðallega ljóð. Ég skrif­aði stundum sögur en ljóðið hefur alltaf verið mitt form.“

Um hvað skrif­aði hún?

„Bara um allt mögu­legt. Um sjó­inn og fjöl­skyld­una mína. Ég á ekk­ert af þessu. Ég henti þessu öllu.“

Nei, Ragn­heiður faldi ekki bara það sem hún skrif­aði.

Ég jarð­aði þau af því að ég vildi ekki að neinn sæi þau af því að stelpur áttu ekk­ert að vera að skrifa ljóð.

„Ég gróf ljóðin. Um leið og þau urðu til þá jarð­aði ég þau ein­hvers staðar í grennd­inni. Ég bjó bara til holu og gróf þetta. Ég jarð­aði þau af því að ég vildi ekki að neinn sæi þau af því að stelpur áttu ekk­ert að vera að skrifa ljóð. Þetta var fyrir karl­ana. Ég skrif­aði ekki hefð­bundin ljóð. Ég skrif­aði alltaf óhefð­bundin ljóð. Það þótti nú ekk­ert flott í sveit­inni. Ég sýndi aldrei neinum mín ljóð en ég vissi að maður ætti að skrifa hefð­bundið með stuðlum og höf­uð­stöfum og láta ríma.“

Svo fór hún í heima­vist­ar­skóla 13 ára gömul. Síðan lá leiðin í Lýð­há­skól­ann í Skál­holti, þá í Mennta­skól­ann við Hamra­hlíð og loks í Háskóla Íslands og Söng­skól­ann í Reykja­vík.

Verðlaunahöfundur

Kona/Spendýr er þriðja bók Ragn­heiðar. Fyrsta bókin hennar, ljóða­bókin 1900 og eitt­hvað, kom út árið 2020 og fyrir hand­ritið fékk hún Bómennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar og hún var einnig til­nefnd til Maí­stjörn­unnar. Næsta bók kom út í fyrra og heitir Gler­flísakliður.

Ég var á sama tíma að glíma við þennan skilnað og hugsa um mömmu mína sem var með Alzheimer.

Ljóðin í 1900 og eitt­hvað fjalla um minn­ingar Ragn­heiðar allt frá bernsku og fram á full­orð­insár. Þar kemur einnig inn í erf­iður skil­aður sem hún gekk í gegnum. „Gler­flísakliður er saga tveggja kvenna; saga mín, sem var að ganga í gengum sorg vegna skiln­að­ar­ins, og saga mömmu minnar sem fékk Alzheimer. Ég var á sama tíma að glíma við þennan skilnað og hugsa um mömmu mína sem var með Alzheimer. Mér batnar eftir því sem líður á bók­ina en mömmu versnar og svo deyr hún í lokin.

Þetta eru hvers­dagssorgir sem margir ganga í gegnum.“

Alls konar afleiðingar

Ragn­heiður hafði gengið í gegnum áföll áður en hún skildi og missti móður sína. Hún fékk krabba­mein og svo fékk sonur hennar hjarta­á­fall þegar hann var 15 ára. Hann náði sér að fullu.

„Ég fékk mjög erfitt krabba­mein. Ég var lengi veik og þurfti að gang­ast undir margar aðgerðir,“ segir Ragn­heiður sem seg­ist alveg vera laus við krabba­meinið sem var í tungu­rót og greind­ist hún árið 2004. „Ég fékk svo miklar geisla­skemmdir þannig að það er búið að skera mig þvers og kruss og úrbeina mig og allt mögu­legt. Ég fékk drep í kjálk­ann og þurfti að fá nýjan kjálka. Ég fór sein­ast í aðgerð árið 2018.“

Áhrif þess að grein­ast með krabba­mein og ganga í gegnum veik­indin eru eitt. Svo eru það áhrif alls þessa á sál­ina.

Ég hugs­aði aldrei um að ég gæti verið dauð­vona.

„Það er sann­ar­lega sjokk að fá lífs­hættu­legan sjúk­dóm; ég átti þrjú lítil börn þegar þetta kom upp á. Þetta var erfitt fyrir alla fjöl­skyld­una. Í mínum huga kom aldrei annað til greina en að berj­ast og hafa þetta af. Ég hugs­aði aldrei um að ég gæti verið dauð­vona. Ég var ekk­ert að pæla í því. Ég reyndi að úti­loka það.“

Ég er lömuð í vör­inni og munn­ur­inn á mér er skakkur.

Afleið­ingar krabba­meins­með­ferð­ar­innar voru miklar og ekki síður erf­iðar. „Ég er enn þann dag í dag að eiga við afleið­ingar þess að hafa fengið þetta krabba­mein. Ég á erfitt með að borða og ég er afskræmd í framan. Það eru alls konar afleið­ingar. Ég er farin að venj­ast þessu svo­lítið en lengi framan af gat ég ekki horft á myndir af sjálfri mér. Ég eig­in­lega fór að gráta. Mér fannst þetta vera svo leið­in­legt. Fjöl­skylda mín og vinir segja að ég líti ekki illa út en ég passa ekki við mína eigin sjálfs­mynd. Og það er svo óþægi­legt. En auð­vitað er ég farin að venj­ast þessu. Ég er lömuð í vör­inni og munn­ur­inn á mér er skakkur en að öðru leyti sést þetta ekki mikið. Þetta háir mér stundum í tali af því að maður verður ekki eins skýr­mæltur með lamaða vör. Svo glímdi ég við mik­inn tann­missi eftir geisla­með­ferð­ina; allur harður og mjúkur vefur er í raun og veru dauður þannig að tenn­urnar bara fara. Það voru miklar rót­ar­skemmdir og þetta var mjög kvala­fullt. En þetta eru afleið­ingar af geisla­með­ferð­inni. Þetta hefur verið vesen og stundum mjög þreyt­andi.“

Að læra að lifa á nýjan hátt

Hvað hefur Ragn­heiður lært af því að ganga í gegnum öll þessi áföll?

„Mér finnst ég hafa fundið mik­inn styrk í sjálfri mér. Ég hélt alltaf áður að krabba­mein væri hræði­legt og svaka­legt en svo þegar maður fær þetta sjálfur þá er þetta verk­efni sem maður er að eiga við. Þetta er erfitt en maður bara gerir þetta. Ég varð ekk­ert skelf­ingu lostin en það er þreyt­andi að standa alltaf í ein­hverju svona ves­eni. Mig langar bara að hafa það skemmti­legt og nota­legt.“

Sorgin kemur til tals. Fyrst gekk Ragn­heiður í gegnum skilnað.

Ég þurfti að læra að lifa á nýjan hátt.

„Það er erfitt að missa maka sinn í skiln­aði. Maður er ekki bara að missa hann heldur alla tengda­fjöl­skyld­una sína í leið­inni. Við vorum bara börn þegar við fórum að vera saman – 17 og 18 ára – og vorum saman í 36 ár þannig að ég þurfti að læra að lifa upp á nýtt. Það breytt­ist allt. Það breytt­ist allur manns lífs­gangur, fjár­hagur og fjöl­skyldu­mynstur og ég þurfti að selja heim­ilið og finna nýtt. Ég þurfti að læra að lifa á nýjan hátt. Það er mjög mikið álag. Ég held að það sé mjög van­metin sorg í sam­fé­lag­inu þegar fólk missir maka sinn á þennan hátt.“

Móðir Ragn­heiðar greind­ist með Alzheimer 10 árum áður en hún lést og var það mikið sorg­ar­tíma­bil.

„Mamma mín var ein­stak­lega klár og vel gefin kona og með stálminni; það var áfall þegar hún var farin að gleyma og gat ekki lengur séð um sig sjálf og var orðin ósjálf­bjarga.“

Hvað er dauð­inn í huga Ragn­heiðar?

„Dauðinn er kveðju­stund. Þegar maður er náinn for­eldrum sínum þá er þetta svo mikið rof.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una