Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Inga var um borð í Goðafossi þegar kviknaði í: „Eldurinn stóð nokkra metra upp“

Inga var um borð í Goðafossi þegar kviknaði í: „Eldurinn stóð nokkra metra upp“
Inga Fanney Egils­dóttir

„Það kvikn­aði í skor­stein­inum. Það var svipað og gerð­ist nokkrum árum áður,“ segir Inga Fanney Egils­dóttir stýri­maður í við­tali við Reyni Trausta­son um það þegar hún var að vinna um borð í Goða­fossi og það kvikn­aði í. Hún var þá annar stýri­maður. „Það var skíta­bræla eins og alltaf þegar eitt­hvað leið­in­legt ger­ist. Við vorum á leið­inni til Íslands og það var búið að losa stærstan hluta af farm­inum; við los­uðum mest í Færeyjum. Þá var skiptið stíft og leið­in­legt. Ég átti vakt­ina frá mið­nætti og fljót­lega upp úr mið­nætti hringdi vél­stjór­inn upp og bað um að hægt yrði aðeins á ferð­inni af því að það væri eitt­hvað vesen hjá honum. Svo hringdi hann aftur og bað um að það yrði slegið meira af og þá hringdi ég í skip­stjór­ann, Ægi Jónsson, og hann kom upp. Það sem var oft á Goða­fossi þegar maður var búinn að vera á „slowinu“ eins og í gegnum Kíl­ar­skurð­inn að þegar var sett í gang þá komu eld­glæur upp úr. Það var mjög algengt. Við vorum orðin svo­lítið leið á að bíða og það var farið að ganga hægt. Við vorum á þessum árum á svartolíu milli Íslands og Færeyja; fórum á betri olíu þegar var farið til Evrópu. Það voru bara stíf­ari reglur í Evrópu og við máttum ekki vera á svartolíu sem er miklu ódýr­ari. Svo var allt í einu eins og það væri kveikt á þús­und ljósastaurum allt í kringum okkur. Það varð bara app­el­sínugult allt í kringum mann og eld­ur­inn stóð nokkra metra upp úr skor­stein­inum. Ægir hand­stýrði á minnstu ferð upp í veðrið og gerði þetta allan tím­ann á meðan við vorum að þessu. Það var nátt­úr­lega bara ræs og allir út og reyna að slökkva. Við köll­uðum ekki SOS heldur hringdum beint í Land­helg­is­gæsl­una. Þá sáu þeir um okkar mál.“

Það var bara að kveikja á dæl­unni og þá vorum við fljót­ari að slökkva.

Það gekk erf­ið­lega að ráða nið­ur­lögum elds­ins. Skipið var látið ganga á hægri ferð á díselolíu og segir Inga Fanney að um leið og skipt var yfir í svartolíu þá hafi kviknað aftur í. „Þá vorum við með allar slöngur til­búnar og tengdar. Það var bara að kveikja á dæl­unni og þá vorum við fljót­ari að slökkva. Þá ákvað skip­stjór­inn að sigla bara til baka til Færeyja. Fara ekk­ert heim. Og Fær­ey­ingar tóku mjög vel á móti okkur.“

Var þetta mikið tjón?

„Já.“

Hellings tjón?

„Hellings tjón. En það var ekki tjón á farm­inum. Og það var hægt að gera við þetta.“

Að hraðsjóða hrísgrjónagraut

Inga Fanny seg­ist ekki hafa vitað hvað sjó­mennska var þegar hún var barn.

„Við vorum í blokk í Reykja­vík og ég vissi ekki af sjó­manna­deg­inum fyrr en við fluttum til Hafn­ar­fjarðar þegar ég var níu ára. Pabbi vin­konu minnar var skip­stjóri, Jörundur hjá Samskip, og mér fannst það voða­lega merki­legt.“

Hún segir að hún hafi á ung­lings­árum ekki vitað hvað hún ætl­aði að gera. „En ég vissi hvað ég ætl­aði ekki að gera; ég ætl­aði ekki að vinna í búð og ég ætl­aði ekki að vinna í banka. Svo ætl­aði ég að læra útvarps- og sjón­varps­virkjun og fór í Iðn­skól­ann. Það var gott nám að því leyti að það var bók­legt aðra vik­una eða annan hvorn dag og hitt verk­legt. Þá skipt­ist maður á. Maður lærði sitt lítið í hverju; logsuðu, rafsuðu, járn­smíði og renni­smíði og þá sá ég að útvarps- og sjón­varps­virkjun væri ekki mitt fag. Skóla­bróðir minn, sem hét Sæmundur, sagði að ég ætti að fara á sjó­inn og fá almenni­lega pen­inga. Og ári seinna fór ég eftir því.“

Það var aug­lýst í útvarp­inu eftir kokki á bát frá Stokks­eyri. Og Inga Fanney sótti um.

„Kona skip­stjórnas vann hjá útgerð­inni og hún hafði með manna­ráðn­ingar að gera og hún réði mig af því að ég væri vön á sjó. Hún spurði mig hvort ég væri vön á sjó og hvort ég væri sjó­veik og ég sagði bara eins og var að ég hefði farið út um allan flóa með pabba að veiða sem var alveg rétt en það var fjög­urra metra plast­bátur með utan­borðs­vél.“

Inga Fanney fékk starfið. Og hún seg­ist ekki hafa verið sjó­veik.

Ég hafði ekki upp­skrift­ina en flot­inn skemmti sér vel þegar stelpan hringdi í mömmu og bað um upp­skrift að hjóna­bands­sælu.

Inga Fanney hafði með sér um borð bók­ina Unga stúlkan og heim­il­is­störfin. Kunni Inga Fanney að elda?

„Ekki mikið. Mamma var mjög flinkur kokkur og ég gerði eins og hún sagði. Svo kom stundum fyrir að það vant­aði eitt­hvað og ég þurfti að fara að baka. Það eina sem ég kunni að baka með hönd­unum var hjóna­bands­sæla. Ég hafði ekki upp­skrift­ina en flot­inn skemmti sér vel þegar stelpan hringdi í mömmu og bað um upp­skrift að hjóna­bands­sælu.“

Það var í gegnum tal­stöð og allir hlust­uðu.

„Já. Þeir skemmtu sér vel yfir því. Ég frétti það seinna. Ég var ekk­ert að spá í það.“

Þetta var rosa­legur pen­ingur. Ég hef aldrei þénað svona vel síðan.

Það var verið að veiða humar og vann Inga Fanney líka á dekk­inu. Og launin voru góð. „Þetta var rosa­legur pen­ingur. Ég hef aldrei þénað svona vel síðan.“

Hún er spurði hvernig karl­arnir um borð hafi tekið henni og segir hún að þeir hafi verið mjög góðir og þægi­legir.

„Ég hraðsauð hrís­grjóna­graut. Þeir orð­uðu þetta þannig að það þyrfti að salta hann; hann væri eitt­hvað skrýt­inn. Svo spurði ég mömmu hvað ætti að gera og hún sagði að ég þyrfti að sjóða graut­inn að lág­marki í klukku­tíma.“

Sturtaði yfir hann

Svo bil­aði vélin í bátnum og Inga Fanney fór á annan bát. Og svo þann þriðja. „Svo fór ég til útlanda með hýruna og eyddi öllu. Ég fór til Englands og var á flakki.

Svo komst ég á vetr­ar­ver­tíð í Vest­manna­eyjum árið eftir. Það var ekki jafn­gaman því þá voru fleiri í áhöfn. Við vorum að fara á nót á loðnu og þá var ég bara í eld­hús­inu. Það var ekki eins gaman og þá var maður ekki eins tengdur áhöfn­inni.“

Hann ætl­aði að slást við mig en honum var kippt niður af hinum.

Hún segir að það hafi gengið á ýmsu á þessum báti. „Þetta hafði verið tog­bátur sem hafði verið breytt í nóta­bóat og skip­stjór­inn var mjög flinkur tog­veiði­skip­stjóri en hann var ekki alveg búinn að þjálfa sig í nót­inni þannig að það lá mis­vel á mönnum. Það var einn karl sem var frekar leið­in­legur við alla og var að skamma mig sem kokk­inn. Ég sagði að ef hann hætti ekki að röfla þá myndi ég hella yfir hann vatni. Hann hélt áfram og ég kom með stóra vatns­könnu sem var á borð­inu og sturt­aði yfir hann. Hann ætl­aði að slást við mig en honum var kippt niður af hinum.“

Þarna var Inga Fanney um tví­tugt.

Hún sigldi um tíma á Hvalvík sem var frakt­ari. Var kokkur um borð.

„Hval­víkin kom til Vest­manna­eyja. Hún var gul­máluð og stór og þeir voru að losa salt. Ég fór um borð í skipið og sá gröfur ofan í lest­inni í salt­fjall­inu. Mér leist æðis­lega vel á þetta og ákvað að fá þarna pláss. Ég held þetta hafi verið í fyrsta skipti í tvö ár sem skipið kom til Íslands. Það var alltaf í sigl­ingum úti. Ég hitti þá Guðmund Arason sem var skip­stjóri. Við spjöll­uðum saman og ég sótti um þetta pláss sem kokkur en þá hafði kokk­ur­inn hætt við að hætta. Það var dönsk kona sem var þar kokkur. Ég spurði hann þá hvort ég gæti ekki farið sem háseti.“ Inga Fanney fékk síðar vinnu um borð  þegar það kom aftur til Íslands. „Við fórum í trampið sem var æðis­lega gaman; það eru leigu­skip og maður veit aldrei á hvaða rútínu maður er að fara. Þetta var skemmti­legur tími og það var oft langur tími í höfnum.“

Var ekk­ert sukk?

„Jú, jú.“

Þarna var Inga Fanney 24 – 25 ára.

Allt étur loðnu

Ferill Ingu Fann­eyjar á sjónum er far­sæll en þess má geta að hún fór svo í Stýri­manna­skól­ann og fékk stýri­manna­rétt­indi og útskrif­að­ist hún fyrir 40 árum.

Á sjó­mennskan við konur?

„Þetta er þægi­leg vinna. Allavega oft­ast nær.“

Þetta getur verið hark á köflum eins og á frysti­tog­urum og línu­bátum.

„Ég held að það sé miklu meiri harka núna á þessum litlu línu­bátum heldur en var. Þetta er rosa­legt úthald. Langar sigl­ingar og þröng aðstaða. Og hrað­skreiðir bátar.“

Veistu hvað eru margar konur í dag sem eru stýri­menn eða skip­stjórar?

„Ætli ég sé ekki síð­asti móhík­an­inn.“

Inga Fanney segir að ára­tug eftir að hún útskrif­að­ist hafi engin kona bæst við sem hún segir að sé frekar lélegt.

Strák­ur­inn fædd­ist 31. mars og ég fór í land 8. eða 9. mars.

Inga Fanney á mann. Sjómann. „Við vorum á sama skip­inu og svo lentum við bæði á löngu fríi. Og þá varð sonur okkar til.“ Hún var þá 35 ára.  „Þegar mig var farið að gruna að ég væri ófrísk þá var komið að því að fara að sigla aftur og ég fór út á sjó. Strák­ur­inn fædd­ist 31. mars og ég fór í land 8. eða 9. mars.“

Var ekk­ert strembið að vera á steyp­irnum á sjónum?

„Nei, síð­asta mán­uð­inn var skipið í hálfan mánuð í slipp í Danmörku.“ Hún var þá stýri­maður.

Inga Fanney er spurð hvort menn hafi ekki verið hissa á því að hún væri ófrísk og að vinna sem stýri­maður.

„Ég sagði ekki mörgum frá því. Hann var frekar nettur þannig að kúlan var lítil. Ég gat skoðað alla tanka eins og þurfti að gera í slippnum. Það var ekki málið.“

Hún fór í land þegar hún varð móðir. Hún leit­aði síðar að vinnu og segir að hún hafi verið í sömu sporum og sjó­menn sem koma í land: Hvað gat hún gert? Hvað kunni hún?

„Ég var svo heppin að fá vinnu hjá Haf­rann­sókn­ar­stofnun. Á hvala­deild­inni. Það vant­aði rann­sókn­ar­mann­eskju,“ segir hún en það þurfti meðal ann­ars að taka sýni af og til og svo var verið próf­arka­lesa texta.

„Svo kom upp verk­efni, fjöl­stofna­verk­efni, og var verið að rann­saka hver étur hvern.“

Hver var merki­leg­asta upp­götv­unin?

„Allt étur loðnu.“

Hún tók sér stundum launa­laust leyfi til að fara einn og einn túr á sjó­inn. Svo fór hún á sjó­inn á vegum Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar.

Flóttamenn á fleka

Svo fékk Inga Fanney leyfi til að sækja rann­sókn­ar­skipið Feng sem hafði verið við Græn­höfða­eyjar og átti að lána það til Mið-Ameríku í tvö ár. Sonur hennar var þá tveggja til þriggja ára og fór hún í þetta verk­efni í tvo mán­uði. „Pabbi og mamma voru með strák­inn stóran hluta tím­ans og ég var svo heppin að njóta þess.

Fengur var gott sjó­skip þótt hann liti hræði­lega út og væri fullur af kakkalökkum. Þegar við vorum að sigla norður Florida-sundið þá sá skip­verji eitt­hvað á sjónum og við fórum að skoða þetta. Þá voru það kúbverskir flótta­menn á fleka; það voru fimm upp­blásin dekk bundin saman með bambusprikum og þeir héngu á þessu.“

Máttuð þið bjarga þeim?

„Við gáfum þeim að borða og drekka og köll­uðum á banda­rísku strand­gæsluan og létum þá vita. Við vildum ekki taka þá um borð. Í fyrsta lagi vorum við bara fimm og þeir voru fimm.“

Þú veist aldrei hvað getur gerst.

„Ég hefði alveg treyst mönn­unum en ég hefði ekki treyst banda­rískum yfir­völdum til að taka olíu með þá um borð.“

Það er ekk­ert sjálf­gefið; það má ekki bjarga fólki í þessum aðstæðum. Þá ertu búin að taka ábyrgð og þá situr útgerðin uppi með ákveð­inn skell.

„Já. Það var málið. En við vorum með spænsku­mæl­andi fólk þannig að þeir gátu talað saman.“

Látið fólk og mæður sem voru búnar að missa börnin sín sem voru dáin.

Inga Fanney segir að banda­ríska strand­gæslan hafi sent flug­vél af stað sem flaug yfir svæðið. „Svo komu þyrlur og hrað­bátar frá Banda­ríkj­unum því það var allt Florida-sundið fullt af svona flekum. Við vorum heppin en þetta voru fimm karlar á lífi og á besta aldri. En lýs­ing­arnar; það var verið að taka upp suma flek­ana og ástandið var stundum skelfi­legt. Látið fólk og mæður sem voru búnar að missa börnin sín sem voru dáin. Ég heyrði að á einum flek­anum hafi verið kona sem vildi ekki fara vegna þess að ein­hvers staðar í sjónum voru tveir synir hennar. Mér líður enn illa þegar ég hugsa um þetta. En Kaninn bað okkur að bíða hjá þeim á meðan þeir væru að sópa upp hitt liðið þannig að við vorum þarna í all­margar klukku­stundir við hlið­ina á þeim. Þeir sóttu þá sein­ast af því að við vorum til­búin að vera hjá þeim. Þeir vildu bjarga öðrum áður.“

Dallurinn lélegur

Inga Fanney seg­ist bara hafa verið annar stýri­maður hjá Eimskip.

Af hverju er það?

„Þeir geta notað mig sem yfir­stýri­mann þegar þarf að flytja fólk eins og á Herjólfi og Baldri.“

Þú færð að vera yfir­stýri­maður hjá Eimskip á svona skipum. Er það ekki svo­lítið súrt? Ættir þú ekki að vera orðin skip­stjóri?

„Ég veit það ekki. Það er þeirra. Þeir eiga þetta og stjórna þessu.“

Hún leysti af á Herjólfi þear Eimskip rak ferj­una og hún seg­ist hafa verið í afleys­ingum á Baldri í nokkur ár. Hún er búin að vera í fríi und­an­farna mán­uði. „Það var afskap­lega skemmti­legt að hitta skemmti­legt fólk; fraktin talar við mann. Er ekki dauðir gámar.“

Hún talar um feg­urð­ina á Breiða­firð­inum. „Það er fal­legt á Breiða­firð­inum en þegar maður er búnn að vera lengi þá getur maður ekki lokað aug­unum fyrir því hvað dall­ur­inn er lélegur.“

Þetta er bátur sem ég treysti ekki.

Af hverju gera menn ekk­ert í því?

„Eimskip er vor­kunn að einu leyti. Þeir fá alltaf skamm­tíma­samn­ing fyrir að reka þetta og þú ert ekk­ert að fjár­festa í ein­hverju sem þú veist ekki hvað verður. Heima­menn eru þakk­látir fyrir góða vinnu og vilja hafa þetta. Vega­gerðin með öll sín fjár­hags­mál í ólestri á að sjá um hluta af þessu. Þetta er sam­bland af mörgu. En þetta er bátur sem ég treysti ekki. Og annað: Þetta er erfið sigl­inga­leið í slæmu veðri. Það má lítið út af bregða. Þú mátt ekki vera vél­ar­vana lengi.“

Það eru eyjar og sker og alla­vega.

„Já, skip­stjórar eru mjög flinkir og þekkja út og inn hvernig straum­arnir eru. Það má engu muna og þetta hefur verið að bila inn á milli. Það er meira en að segja það að koma fólki í annan bát ef það þarf að losa skipið. Bara til að kom­ast í björg­un­ar­bát­ana þá þarf að fara upp á þil­far og upp brattan stiga. Þarna er fólk sem er kannski hreyfi­hamlað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina