Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðlaugur Þór og kaupin á Swiss Life: „Einn versti díll sem nokkur maður hefur gert“

Guðlaugur Þór og kaupin á Swiss Life: „Einn versti díll sem nokkur maður hefur gert“
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son. Mynd / EPA

Þann 11. júní árið 2003 stofn­aði Guð­laugur Þór Þórð­ars­son eign­ar­halds­fé­lagið Bog­mað­ur­inn. Tveimur dögum síðar, 13. júní fékk félagið greiddar tæpar 33. millj­ónir króna frá Lands­banka Íslands en var greiðslan sögð vera vegna sölu Guðlaugs Þórs á umboði fyrir Swiss Life trygg­inga­miðl­un­ina sviss­nesku.„

Árið 2012 birt­ist eft­ir­far­andi brot úr frétt á DV en hana skrif­aði Ingi Freyr Vil­hjálms­son:

Eign­ar­halds­fé­lag í eigu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar fékk greiddar tæpar 33 millj­ónir króna frá Lands­banka Íslands í júní 2003. Greiðslan var vegna sölu Guðlaugs Þórs á umboði fyrir trygg­inga­miðlun sviss­neska trygg­inga­fé­lags­ins Swiss Life sem hann seldi til Lands­bank­ans á þessum tíma. Pen­ing­arnir voru lagðir inn á reikn­ing eign­ar­halds­fé­lags­ins Bog­manns­ins ehf., sem Guð­laugur Þór átti ásamt eig­in­konu sinni, Ágústu Johnson. Þetta kemur fram á reikn­ings­yf­ir­liti frá Lands­bank­anum sem DV hefur undir höndum. Guð­laugur stað­festir, í sam­tali við DV, að við­skiptin hafi átt sér stað. Milli­færslan frá Lands­bank­anum til eign­ar­halds­fé­lags Guðlaugs Þórs var fram­kvæmd þann 13. júní 2003. Bog­mað­ur­inn var stofn­aður þann 11. júní 2003, sam­kvæmt sam­þykktum félags­ins frá þeim degi, og virð­ist því hafa verið komið á lagg­irnar gagn­gert til að taka við greiðsl­unni frá Lands­bank­anum. Til­gangur félags­ins er sagður vera aug­lýs­inga­miðlun.

Er sjálfur með Swiss Life

Mánuði áður, í kosn­ing­unum til Alþingis í maí 2003, komst Guð­laugur Þór inn á þing fyrir hönd Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Áður en Guð­laugur Þór fór inn á þing hafði hann verið starfs­maður Bún­að­ar­bank­ans þar sem hann starf­aði í trygg­inga­deild­inni. Guð­laugur Þór var auk þess einnig borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins á árunum 1998 til 2006. Hann hætti í Bún­að­ar­bank­anum um það leyti sem bank­inn sam­ein­að­ist Kaup­þingi og fór skömmu síðar inn á Alþingi Íslend­inga þar sem hann hefur setið síðan. Guð­laugur Þór segir að við­skiptin með íslenska umboðið fyrir Swiss Life teng­ist starfs­lokum hans í Bún­að­ar­bank­anum. Hann seg­ist hafa varið í það miklum tíma, einu til tveimur árum, að tryggja Bún­að­ar­bank­anum umboðið fyrir Swiss Life hér á landi í gegnum skrif­stofur félags­ins í Liverpool á Englandi. Bún­að­ar­bank­inn keypti svo þetta umboð fyrir til­stilli Guðlaugs Þórs. „Við erum með fyrstu Swiss Life-trygg­ing­una sjálf, ég og Ágústa. Þessar trygg­ingar voru miklu hag­stæð­ari og veittu miklu meiri trygg­inga­vernd,“ segir Guð­laugur Þór sem varð í kjöl­farið tengiliður Bún­að­ar­bank­ans við Swiss Life. „Ég stýrði þessu og seldi þessar vörur.“

Keypt með láni frá bank­anum

Þegar Guð­laugur Þór hætti í Bún­að­ar­bank­anum við sam­ein­ing­una við Kaupþing varð nið­ur­staðan sú að hinn sam­ein­aði banki vildi ekki halda umboð­inu fyrir Swiss Life. „Nið­ur­staðan varð sú að ég keypti Swiss Life því ég hafði unnið mjög hart að því að ná þessum samn­ingum og vildi að þetta héldi áfram hér á landi.“ Guð­laugur Þór seg­ist aðspurður hafa keypt Swiss Life-umboðið með skamm­tíma­láni frá Bún­að­ar­bank­anum. „Ég man það ekki alveg en ég held að ég hafi fengið skamm­tíma­lán, vænt­an­lega frá Bún­að­ar­bank­anum. Það leið mjög skammur tími frá því ég keypti umboðið þar til ég seldi það þannig að vaxta­gjöldin hafa ekki verið mjög mikil.“ Hann seg­ist hafa selt umboðið til Lands­bank­ans á nokkurn veg­inn kostn­að­ar­verði. „Þetta er vænt­an­lega einn versti díll sem nokkur maður hefur gert,“ segir Guð­laugur og bætir því við að sölu­verðið hafi rétt dugað til að greiða lánið til baka til Bún­að­ar­bank­ans og fyrir útlögðum kostn­aði. Guð­laugur Þór seg­ist því ekki hafa grætt mikið per­sónu­lega á við­skipt­unum. Aðspurður hvort hann hafi grætt millj­ónir á við­skipt­unum segir hann að svo hafi ekki verið.

Ekkert um greiðsl­una í árs­reikn­ingnum

Í árs­reikn­ingi Bog­manns­ins fyrir árið 2003 kemur ekk­ert fram um þessa greiðslu frá Lands­bank­anum. Eigið fé félags­ins nam ein­ungis rúm­lega 2 millj­ónum króna og var hagn­aður þess rúm­lega 1.200 þús­und. Engar upp­hæðir eins og umræddar tæpu 33 millj­ónir virð­ast hafa runnið í gegnum Bog­mann­inum. Samt sýnir greiðslu­kvitt­unin fram á það að félagið tók við umræddri greiðslu frá Lands­bank­anum. Sömu sögu er að segja um árs­reikn­ing félags­ins árið á eftir: Ekkert í bók­haldi félags­ins sýnir þetta tæp­lega 33 millj­óna króna inn­legg á reikn­ing félags­ins. Guð­laugur Þór seg­ist ekki geta útskýrt af hverju sölu­verð umboðs­ins komi ekki fram í sjóð­streym­is­yf­ir­lit­inu í árs­reikn­ingi Bog­manns­ins. „Ég bara hef ekki hug­mynd um það. Var þetta ekki 2003. Er árs­reikn­ing­ur­inn ekki und­ir­rit­aður af end­ur­skoð­anda? Ég man ekki nákvæm­lega allt sem ég gerði árið 2003. Ég kann ekki að segja frá þessu. En við vorum í góðri trú í þessum við­skiptum.“

Kominn á þing og vildi út

Guð­laugur segir að hann hafi ein­fald­lega viljað hætta öllum við­skiptum áður en hann færi á þing: „Í örstuttu máli er þetta svona: Þetta var mál sem ég var búinn að vinna að ógeðs­lega lengi og loks­ins kom­inn með í land. Ég grát­bað Kaupþing um að taka þessa vöru, þar sem Kaupþing faktískt tók yfir Bún­að­ar­bank­ann. Þeir skildu mín rök en vildu ekki halda þessu umboði. Ég tók því bara umboðið yfir. Aftur á móti hafði ég enga mögu­leika á því að fara að reka þetta, ég var kom­inn inn á þing og vildi bara koma mér út úr þessu og sel þetta nokkurn veg­inn á kostn­að­ar­verði inn í Lands­bank­ann. Ég bara tók þetta yfir og hafði ekki tíma eða tæki­færi til að leika ein­hvern póker­leik með fjár­fest­ingu upp á 30 millj­ónir og var því ekk­ert að bjóða þetta út eða bíða. Ég vildi bara vera „on the safe side“ og bara lok­aði þessu dæmi,“ segir Guð­laugur Þór. Aðspurður af hverju hann seldi umboðið til Lands­bank­ans segir Guð­laugur Þór enga sér­staka ástæðu hafa verið fyrir því: „Ég vildi bara hreinsa borðið mitt. […] Lands­bank­inn var algjör­lega „sure thing“. Þeir bara borg­uðu og ekk­ert vesen.“

Fyrr­ver­andi sam­starfs­menn Guðlaugs

Þegar milli­færslan til eign­ar­halds­fé­lags­ins átti sér stað var Sigurjón Árnason, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs Bún­að­ar­bank­ans, nýorð­inn banka­stjóri Lands­bank­ans. Á þriðja tug starfs­manna Bún­að­ar­bank­ans hætti í bank­anum í apríl 2003 vegna fyr­ir­hug­aðrar sam­ein­ingar bank­ans og Kaup­þings. Bæði Lands­bank­inn og Bún­að­ar­bank­inn höfðu verið einka­væddir í lok árs 2002 eða byrjun árs 2003 og var sam­ein­ing Bún­að­ar­bank­ans og Kaup­þings kynnt í apríl þetta ár. Meðal ann­arra starfs­manna Bún­að­ar­bank­ans sem hættu um þetta leyti og fóru yfir til Lands­bank­ans voru Ingvi Örn Krist­ins­son, Elín Sig­fús­dóttir og Steinþór Gunn­ars­son. Segja má að eig­in­lega allt yfir­mannateymi Lands­bank­ans við hrun hafi komið úr Bún­að­ar­bank­anum á þessum tíma. Guð­laugur þekkti því ágæt­lega til þeirra starfs­manna Bún­að­ar­bank­ans sem nú voru komnir til Lands­bank­ans. Miðað við svör Guðlaugs Þórs skiptu tengsl hans við þáver­andi starfs­menn Lands­bank­ans þó ekki máli í þessu til­felli. „Þetta er ekk­ert leynd­ar­mál,“ segir Guð­laugur Þór um við­skiptin með trygg­inga­um­boðið.

Í annarri frétt um málið sem skrifað var af sama blaða­manni á DV er talað við Sigurjón Árnason varð­andi við­skiptin.

Hrær­ingar eftir einka­væð­ing­una

Sigurjón seg­ist aðspurður ekki hafa komið að því að selja Guðlaugi Þór umboðið út úr Bún­að­ar­bank­anum, þetta hafi verið gert eftir að hann hætti þar. „Swiss Life er búið til inni í Bún­að­ar­bank­anum. Þegar bank­inn er tek­inn yfir af Kaup­þingi vildu þeir ekki lengur vera með þessa þjón­ustu af því þeir voru með sitt eigið trygg­inga­fé­lag. Á sama tíma er Lands­bank­inn að selja helm­ing­inn úr LÍFÍS út úr bank­anum og til VÍS. Þar af leið­andi vant­aði Lands­bank­ann trygg­inga­starf­semi og þess vegna verða við­skiptin. Þetta er fram­hald af einka­væð­ing­unni. Þú manst að hluti af einka­væð­ing­unni var að VÍS var selt út úr Lands­bank­anum. Eftir sat hins vegar þessi hlutur í LÍFÍS sem VÍS vildi svo eign­ast, á sama tíma vildi Kaupþing losna við þessa trygg­inga­starf­semi sem hafði verið í Bún­að­ar­bank­anum.“ Sigurjón segir að sölu­verðið á LÍFÍS hafi verið marg­falt hærra en kaup­verðið á Swiss Life.

Selt í stuttan tíma

Sigurjón segir að trygg­inga­um­boðið hafi verið rekið áfram inni í Lands­bank­anum eftir þetta. Það hafi hins vegar ekki verið mjög lengi, eitt til tvö ár, þar sem Swiss Life í Sviss rifti samn­ingum við milli­lið Lands­bank­ans í við­skipt­unum, skrif­stofur Swiss Life í Bret­landi. „Þeir vildu loka bresku ein­ing­unni. Eftir það var ekki hægt að selja trygg­ingar þessa félags. Sá kúnna­grunnur sem var kom­inn var svo bara þjón­u­staður áfram. Það er ennþá fullt af fólki með þessar trygg­ingar. Okkur gekk mjög vel að selja þessar trygg­ingar. Þetta var ágætis bis­ness enda voru þetta frá­bærar trygg­ingar, frá­bærar trygg­ingar.“ Lands­bank­inn var því aðeins sölu­að­ili Swiss Life í skamman tíma eftir að Guð­laugur Þór seldi bank­anum umboðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við