Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Tók upp hanskann fyrir lögregluna en hlaut bágt fyrir: „Bara að benda á að löggur eru líka fólk“

Tók upp hanskann fyrir lögregluna en hlaut bágt fyrir: „Bara að benda á að löggur eru líka fólk“
Jón Gnarr Mynd / Facebook

Jón Gnarr sem vart þarf að kynna, tók upp upp hansk­ann fyrir lög­reglu­menn Íslands á Twitter í gær og reyndi þannig að hefja sam­tal. En fylgj­endur hans brugð­ust heldur illa við pæl­ingar grínist­ans, sem ólst upp sem sonur lög­reglu­manns.

„veit að löggan er kannski ekki vin­sælasta starfs­stéttin í dag en það fer alltaf jafn­mikið í taug­arnar á mér þegar póli­tíkusar reyna að klína klúðri á almennt lög­reglu­fólk sem þarf að vinna ömur­leg skít­verk fyrir sömu póli­tíkusa. löggan er armur lag­anna en póli­tíkusar heil­inn,“ skrif­aði Jón og átti þá við þá reiðiöldu sem flætt hefur um sam­fé­lags­miðl­ana eftir að lög­reglan, að beiðni dóms­mála­ráðu­neytis Jóns Gunn­ars­sonar, hand­tók og flutti hæl­is­leit­endur til Grikk­lands í skjóli næt­urs.

„Lög­reglu­fólk hefur frjálst val, en þau kjósa að gera þetta. Já, rík­is­stjórnin er ábyrg en lög­reglan líka,“ skrif­aði Elín nokkur og svar­aði Jón um hæl:

„við erum auð­vitað ekki að finna upp hjólið með það. við erum með ljót og ósann­gjörn lög en þér finnst það í lagi svo fram­ar­lega sem lög­g­tan fram­kvæmir þau af kurt­eisi og fag­mennsku ? mér finnst það ekki“

Sveinn nokkur skrif­aði eft­ir­far­andi svar: „Skv. siða­reglum lög­reglu­manna mega þeir, nei eiga þeir, að hafna að fram­fylgja skip­unum sem stríða gegn sið­ferði þeirra. Lög­reglan er ekki sak­laus og ekki lög­reglu­menn heldur virkir þátt­tak­endur.“

Næsta færsla Gnarrs hljóð­aði eft­ir­far­andi:

„að pönk­ast í lögg­unni fyrir að fram­fylgja lögum, sem er beisikklí starfs­lýs­ingin þeirra, (lög-reglan) er svipað og að hrauna yfir kenn­ara útaf aðal­námskrá eða skamma sjúkra­liða vegna lyfja­gjafar eða hengja bak­ara fyrir smið“

Óli nokkur svar­aði að bragði: „Það hefur eng­inn sjúkra­liði spreyjað piparúða í augun á mér til að koma í veg fyrir að ég gæti tekið upp mynd­band af öðrum sjúkra­liðum að sparka í liggj­andi mann.“

„þetta eru hár­tog­anir. löggan fær ekki piparúða til að spreyja framan í þig á ebay. það er e-r sem tekur þá ákvörðun að ef að lögga metur það svo, að henni stafi hætta af Óla, þá megi hún spreyja ákveð­inni pip­ar­blöndu, sem er sam­þykkt, framan í Óla,“ svar­aði Jón þá.

Einn fylgj­andi Jóns skýtur á grínist­ann:
„Uuuuu þú áttar þig á því að heim­ur­inn ákvað í sam­ein­ingu fyrir að verða 80 árum að Nurem­bergar vörnin væri ekki gild vörn.“

Jón, sem á þessum tíma­punkti virð­ist orð­inn þreyttur, svar­aði: „bara að benda á að löggur eru líka fólk“

Þegar þarna var komið við sögu voru svörin sem bár­ust Jóni farin að hitna heil­mikið:

„Einu sinni varstu en núna veit eng­inn hvað í fjand­anum þú ert. ‘Starfs­mönnum lög­reglu er skylt að hlýða lög­legum fyr­ir­skip­unum yfir­manna um störf sín og fylgja þeim eftir af trú­mennsku, svo fram­ar­lega að þau brjóti ekki alvar­lega gegn sið­ferð­is­kennd hans.’“

Þá birti ein­hver sam­setta ljós­mynd af Jóni sleikja lög­reglu­stíg­vél en Jón hrós­aði við­kom­andi fyrir flotta mynd.

Wilhelm var smekk­legur eða hitt þó heldur en hann birti mynd af her­mönnum í Norður Kóreu og skrif­aði til Jóns: „En þú fílar lög­regl­una í Norður-Kóreu, ekki satt?“

Mun fleiri skrif­uðu athuga­semdir og að lokum skrif­aði Jón nýja færslu:

„Slakiði svo aðeins á krakkar. Bjarni er ennþá for­maður og mun sigla okkur öllum, styrkum höndum og heilum í höfn í Garða­torgi fram­tíð­ar­lands­ins! Þetta redd­ast allt saman“

Bætir hann svo við: „að vera lögga er erf­ið­asta starf á Íslandi. hver vakt er óvissu­ferð og þú þarft að ganga inní aðstæður og sjá hluti sem engin mann­eskja ætti að þurfa að sjá. þung­lyndi og kvíði er hluti af starf­inu, sjálfs­vígs­tíðnin er ein hæsta meðal starfs­stétta. og úrræði eru tak­mörkuð“

Eiríkur Örn Norðdahl rit­höf­undur svar­aði þeirri færslu:

„En er þetta endi­lega ósam­ræm­an­legt hinu að bæði mis­beiti lög­reglan oft valdi sínu og beiti fólk óþarfa ofbeldi, og að hún fram­kvæmi oft fyr­ir­skip­aðan skepnu­skap sem væri kannski ágætt að hún sleppti (og hefur rétt til að sleppa skv. lögum)?“

Því svar­aði Jón að bragð:

„jú, það er hár­rétt. nýaf­staðnar aðgerðir lögg­unnar gegn fötl­uðum manni og skóla­börnum sanna það. en við erum með harka­legt kerfi og ábyrgð­ar­lausa stjórn­endur. það tel ég rót vand­ans. bara sama og CRASS bentu á in the 80’s. vanda­málið er Thatcher en ekki kall í löggu­bún­ingi“

Fleiri leggja orð í belg en að lokum játar Jón sig sigr­aðan með færslu sem hljóð­aði svo:

„hat­rið gegn lögg­unni er svo mikið að ef ein­hver reynir að taka upp hansk­ann fyrir almennar löggur og benda á að þetta er bara fólk sem er að vinna hræði­lega erfitt starf verður við­kom­andi tek­inn niður með öllum ráðum því heiftin skal ráða för“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina