Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Næturfrost og Bekkurinn minn – fjölmennt í útgáfuhófi nýrra barnabóka – Myndir

Næturfrost og Bekkurinn minn – fjölmennt í útgáfuhófi nýrra barnabóka – Myndir

Rit­höf­unda­hjónin Gunnar Theodór Egg­erts­son og Yrsa Þöll Gylfa­dóttir, ásamt mynd­höf­und­inum Iðunni Örnu, héldu nýlega stór­skemmti­legt útgáfu­boð. Tilefnið var útgáfa bókanna Næt­ur­frost (úr bóka­flokknum Furðu­fjall) eftir Gunnar Theodór, og bókanna Var­úlf­ur­inn og Jóla­leik­ritið (úr bóka­flokknum Bekk­ur­inn minn) eftir þær Yrsu Þöll og Iðunni Örnu.

Gunnar Theodór hefur haslað sér völl sem einn fremsti fantasíu­höf­undur lands­ins og hefur áður kætt og hrætt börn og ung­menni með ævin­týra­legum sögum sínum um Drauga-Dísu og Stein­dýrin. Nýjasta bók hans, Næt­ur­frost, er fram­hald af bók­inni Norna­seiður, sem kom út í fyrra, og hefur nú þegar fengið frá­bæra dóma.

Yrsa Þöll og Iðunn Arna stimpl­uðu sig ræki­lega inn í barna­bóka­sen­una fyrir tveimur árum, með til­komu bóka­flokks­ins Bekk­ur­inn minn. Bækurnar hafa algjör­lega slegið í gegn og er vand­fundið það barn á yngsta stigi grunn­skóla sem ekki hefur lesið bæk­urnar um Nadiru, Bjarna Frey og öll hin börnin og upp­á­tæki þeirra. Nú voru að koma út fimmta og sjötta bókin í bóka­flokknum, ásamt lauf­léttum útgáfum af bókum 1-4, sem henta enn betur byrj­endum í lestri. Allt í allt komu út sjö bækur eftir þær stöllur í ár!

Það var fjöl­mennt í boð­inu og krökkt af krökkum, sem dund­uðu sér við að lita mynd­irnar eftir Iðunni Örnu og Fífu Finns­dóttur, sem mynd­lýsir nýj­ustu bækur Gunnars.

Andi hrekkja­vök­unnar sveif yfir vötnum og mátti sjá ýmsar furðu­verur á sveimi: nornir, vam­p­írur og var­úlfa, en Lína langsokkur og köngu­ló­ar­mað­ur­inn litu líka við. Yrsa Þöll kink­aði eilítið kolli til var­úlfs­ins í sam­nefndri bók sinni en Gunnar tók þemað aðeins lengra og var sjó­ræn­inga­draugur.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar ljós­myndir af útgáfu­hóf­inu, sem Eva Schram tók.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu