Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Helgi Seljan ávíttur af Siðanefnd Blaðamannafélagsins: „En nú tekur steininn úr“

Nýlega vakti úrskurður Siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags Íslands furðu margra er nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að Reynir Trausta­son, rit­stjóri Mannlífs, hefði gerst brot­legur við umfjöllun um Róbert Wessmann, vegna þess að hann hafði þegið laun fyrir bók­ar­skrif um millj­arða­mær­ing­inn. En þetta er ekki í fyrsta skipti og sjálf­sagt ekki í síð­asta skiptið sem Siða­nefndin vekur furðu.

Árið 2007 var hinn þá ungi Helgi Seljan ávíttur fyrir Kast­ljós­við­tal við Jónínu Bjartmarz, þáver­andi umhverf­is­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Viðtalið tók Helgi vegna þess að sam­býl­is­kona sonar Jónínu hafði fengið að því er virt­ist, flýti­með­ferð við umsókn á rík­is­borg­ara­rétti. Helgi gekk hart fram gegn Jónínu í við­tal­inu og lét hana ekki kom­ast upp með neitt múður. Fyrir vikið kærði Jónína Helga til Siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags Íslands sem tók málið fyrir og úrskurð­aði að Helgi og Kastljós hefðu gengið of langt og það rétt fyrir kosn­ingar. Síðan þá hefur Helgi vaxið heldur betur ásmeg­inn og er í dag þekktur sem allra harðasi spyrill og rann­sókn­ar­blaða­maður lands­ins, þótt víða væri leitað.

Ungur Helgi Seljan og efni­legur

Blaðið (það hét bara það, Blaðið) fjall­aði um úrskurð­inn á sínum tíma:

Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags Íslands: Kastljós RÚV braut siða­reglur

Helgi Seljan, einn umsjón­ar­manna Kast­ljóss RÚV, og Rík­is­út­varpið brutu gegn siða­reglum Blaða­manna­fé­lags íslands í umfjöllun um veit­ingu rík­is­borg­ara­rétts til sam­býl­is­konu sonar Jónínu Bjartmarz. Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags­ins segir að brotið hafi verið gegn 3. grein siða­reglna en sam­kvæmt henni ber blaða­manni að vanda upp­lýs­inga­öflun sína, úrvinnslu og fram­setn­ingu svo sem kostur er og sýna fyllstu til­lits­semi í vanda­sömum málum. Þá ber blaða­manni að forð­ast allt sem valdið getur sak­lausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sárs­auka eða van­virðu.“

Blaða­maður Blaðsins flutti Jónínu frétt­irnar í gær og þá hafði hún ekki ákveðið hvert næsta skref hennar yrði í mál­inu. Kastljós sendi í gær frá sér athuga­semdir vegna úrskurðar siða­nefndar. „Ekki verður annað séð en með þessum orðum sé siða­nefnd BÍ að beina því til fjöl­miðla að fjalla eigi öðru­vísi um mál sem tengj­ast kjörnum full­trúum rétt fyrir kosn­ingar. Kastljós notar sömu við­mið í blaða­mennsku í öllum málum óháð árs­tíðum eða því hvort kosn­ingar eru í nánd.“ Og síðar: „Hvers vegna kýs Siða­nefnd að líta fram­hjá kjarn­anum í þess­ari umfjöllun Kast­ljóss?

Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður með meiru tók upp hansk­ann fyrir Helga og Kastljós með pistli í sama blaði, Blaðinu, þremur dögum eftir úrskurð­inn:

Fárán­legur úrskurður um Kastljós

Siða­nefnd Blaða­manna­fé­lags íslands er orðin hættu­leg almenni­legri fjöl­miðlun í land­inu. Endanleg sönnun þess fékkst um dag­inn þegar nefndin úrskurð­aði að Helgi Seljan og Kast­ljósið hefðu framið „alvar­legt brot“ gegn góðum vinnu­reglum með umfjöllun sinni um Jónínu Bjartmarz og rík­is­borg­ara­rétt tengda­dóttur hennar. Þann úrskurð munu þeir helst vilja nota sér til fram­dráttar sem sjá sér hag í að kveða í kút­inn allar til­raunir fjöl­miðla til að rann­saka mál á eigin spýtur og jafn­vel í beinni and­stöðu við mátt­ar­völdin.

Jónína Bjartmarz

Hinn eft­ir­sótti rík­is­borg­ara­réttur

Svo ég rifji málið upp í örstuttu máli, þá sner­ist það um að tengda­dóttir þáver­andi umhverf­is­ráð­herra sótti um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt til alls­herj­ar­nefndar Alþingis. Og alls­herj­ar­nefnd veitti henni rík­is­borg­ara­rétt­inn á met­tíma þótt ekki væri séð að stúlkan hefði betri for­sendur en aðrir til að fá hinn eft­ir­sótta rétt. Spurn­ingin sner­ist altso um hvort ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands hefði beint eða óbeint beitt áhrifum sínum til að fjöl­skyldu­með­limur fengi sér­staka fyr­ir­greiðslu sem fáum öðrum stóð til boða. Slíkt heitir spill­ing, sem kunn­ugt er. Kast­ljósi og Helga Seljan til ævar­andi hróss var ákveðið að fjalla um málið enda þótt aðeins væru fáeinar vikur til kosn­inga. Flestir hinir „virðu­legri“ fjöl­miðlar á íslandi hefðu kannski kosið að geyma málið. Af til­lits­semi við stjórn­mála­menn í kosn­inga­bar­áttu. Og hinn allra „virðu­leg­asti“ hefði vænt­an­lega kosið að fjalla alls ekki um málið. Það ætti ekki „erindi“ til pöp­uls­ins. En Kastljós fór af stað. Þökk sé því.

Samtryggingakerfi

Til að byrja með gekk Kast­ljósi mjög illa að fá nokkrar upp­lýs­ingar um málið. Allar dyr lok­uð­ust undir eins. Ég hugsa að Vil­mundur heit­inn Gylfason hefði dustað rykið af fra­s­anum sínum um „sam­trygg­inga­kerfi“ íslenskra stjórn­mála­manna. Það leiddi aftur á móti til þess að í fyrstu fréttum Helga Seljan af mál­inu voru nokkur atriði óná­kvæm um fram­gangs­mát­ann þegar rík­is­borg­ara­réttur er veittur. Og eitt­hvað mis­sagt eins og gengur. Þessi atriði voru leið­rétt jafn­óðum og tókst að draga upp­lýs­ingar fram í dags­ljósið og breyttu þó engu um grund­vall­ar­spurn­ingu máls­ins: Hafði Jónína Bjartmarz mis­beitt valdi sínu eða aðrir sveigt og togað venju­legar reglur af því hér átti í hlut skjól­stæð­ingur ráð­herra? Því hafn­aði Jónína mjög ein­dregið eins og við munum. Og ekki öll kurl komin til grafar um það enn þá. Koma kannski aldrei. En hitt má aldrei fara milli mála – að umfjöll­un­ar­efni frétta Kast­ljóss­ins var ekki bara gott og gilt, heldur bæði nauð­syn­legt og brýnt. Og því miður ekki algengt að gengið sé jafn sköru­lega á hólm við stjórn­valds­að­gerðir íslenskra ráða­manna og þarna var gert. Það væri samt afnógu að taka. Vinnu­brögð Helga Seljan voru líka svo vönduð og nákvæm sem kostur var miðað við aðstæður – sem sagt þá stað­reynd að hann kom alls staðar að harð­læstum dyrum.

Að gæta sið­prýði – ekki sann­leik­ans

Jónína Bjartmarz kærði til siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags­ins og nú hefur sú nefnd sem sagt fellt sinn úrskurð. Þessi siða­nefnd hefur lengi verið vand­ræða­gripur þar sem hún virð­ist líta svo á að það sé hlut­verk fjöl­miðla að gæta sið­prýði í land­inu en ekki leita sann­leik­ans. Flestir úrskurðir hennar und­an­farin ár eru að engu haf­andi – en nú tekur stein­inn úr. Nánast án rök­stuðn­ings kveður nefndin upp úr með að vinnu­brögð Helga og Kast­ljóss séu „alvar­legt brot“ á siða­reglum af því þar hafi ekki allt verið hár­ná­kvæmt frá byrjun. Gildir einu hvað við var að eiga. Og svo kemur nefndin end­an­lega upp um sig þegar hún nefnir í umfjöllun sinni að stutt hafi verið til kosn­inga þegar málið kom upp. Felst ekki í því að fjöl­miðlar eigi að fara með silki­hönskum um stjórn­mála­menn rétt fyrir kosn­ingar? Svo ekki falli hugs­an­legt kusk á hvít­flibbann? Ég skil satt að segja ekki hversu lengi blaða­menn ætla að sætta sig við að halda sjálfir úti nefnd sem hvað eftir annað leggst eins og mara á eðli­lega og jafn­vel fram­sækna fjöl­miðlun í land­inu – allt í nafni úreltra siða­reglna. Og fyrr­nefndrar sið­prýði. En hefur þær einu afleið­ingar að fjöl­miðlar sem gera til­raun til að fylgj­ast með og veita vald­höfum aðhald fá skömm í hatt­inn. Er það ekki hlut­verk ein­hverra ann­arra en blaða­manna sjálfra að bæla niður opna fjöl­miðlun í land­inu?

Hægt er að hlusta á við­tal Helga við jón­ínu hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina