Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dæmdur fyrir morðið á ungri eiginkonu sinni – „Er hún ekki falleg?“

Dæmdur fyrir morðið á ungri eiginkonu sinni – „Er hún ekki falleg?“
Klapp­ar­stígur 11

Að kvöldi sunnu­dags­ins 10. jan­úar 1988 hringdi Bragi Ólafsson í lög­regl­una í Reykja­vík og bað hana að koma á heim­ili sitt að Klapp­ar­stíg 11. Í sam­tali við lög­reglu taldi Bragi að eig­in­kona sín, Gréta Birg­is­dóttir, hefði hengt sig. Þegar lög­regla kom á vett­vang sagði hann þau hafa drukkið mikið dag­ana á undan sem varð til þess að hann hafi sofnað ölv­un­ar­svefni. Þegar hann vakn­aði hafi hann séð Grétu hanga í „kað­al­spottum í svefn­her­berg­is­dyr­unum“, sem hann leysti hana úr og lagði á gólfið. Bragi end­ur­tók í sífellu að Gréta hafi haft orð á því að hún ætl­aði að fyr­ir­fara sér. Bragi Ólafsson var hand­tek­inn á staðnum og úrskurð­aður í gæslu­varð­hald.

Í dómi saka­dóms Reykja­víkur, í júní 1988, kemur fram að skýr­ingar Braga hafi ekki verið teknar trú­an­legar. Bragi hafi verið mjög ölv­aður þegar lög­regla kom á vett­vang og frá­sögn hans óljós. Í fyrstu var fram­burður Braga sá að hann hafi fundið eig­in­konu sína hang­andi í böndum. Tveimur dögum síðar sagði hann Grétu hafa skvett á sig vatni og sagst ætla að kasta sér fram af svöl­unum þar sem þau bjuggu. Tíu dögum síðar breytt­ist fram­burður Braga aftur þegar hann sagði við yfir­heyrslu hjá lög­reglu að átök hefðu orðið með þeim um nótt­ina. Sagði hann Grétu hafa ráð­ist á sig sem end­aði með því að hann hafi gripið böndin, snúið þeim um háls hennar og höfuð svo að hert­ist. Sagðist hann síðan hafa sofnað. Frammi fyrir saka­dómi Reykja­víkur 3. febr­úar lýsti Bragi því loks yfir að hann axli ábyrgð á láti eig­in­konu sinnar, en bætti því svo við að hún hafi samt stytt sér aldur, því að hann hafi ein­ungis vafið bönd­unum um höfuð hennar og háls og skilið hana eftir á þann hátt. Bragi Ólafsson varð að lokum dæmdur í átta ára fang­elsi og þótti sannað að ákærði hefði „gerst brot­legur við 211. grein almennra hegn­ing­ar­laga“, en sá dómur var þyngdur um tvö ár í Hæsta­rétti í apríl árið 1989.

Tæpum tíu árum síðar tók Gerður Kristný við­tal við Braga sem þá var laus úr fang­elsi. Bragi hélt sig fast við sjálfs­vígs­frá­sögn­ina. Þar sagð­ist hann hafa kynnst Grétu þegar hún var aðeins 17 ára gömul en sjálfur var hann þá 42 ára. Hann sagð­ist hafa komið henni til bjargar þar sem hann sá þrjá menn abb­ast upp á hana í mið­bænum og sam­band þeirra hafi þró­ast frá og með þeim degi. Undir lok við­tals­ins kemur fram að Bragi hafði mynd af Grétu við rúmið sitt í hjarta­laga ramma. „Ég býð henni góðan dag­inn á hverjum morgni og góða nótt á kvöldin,“ sagði Bragi í við­tal­inu. Hann skoð­aði mynd­ina alvar­legur á svip, leit svo upp og spurði: „Er hún ekki fal­leg?“.

Heim­ildir: „Ég veit hvað höfuð þitt vó en þekki ekki síð­ustu hugs­un­ina“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina