Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Lenti í sjávarháska ásamt föður sínum og bróður: „Hann var orðinn marinn og blár og allur blóðugur“

Lenti í sjávarháska ásamt föður sínum og bróður: „Hann var orðinn marinn og blár og allur blóðugur“

Gestur Sjóarans að þessu sinni er Guð­mundur Guð­munds­son sjó­maður sem fæddur er og upp­al­inn í Ólafsvík en árið 1990 flutti hann til Hafn­ar­fjarðar.

Í við­tal­inu rifjar Guð­mundur upp sjó­slys sem hann lenti í með föður sínum og bróður. „Þar lentum við í sjó­slysi. Við fórum út á sjó 18. nóv­em­ber 1983 og það var haldið bara beint suður á miðin, við Önd­verða­nes. Það var hel­vítis vest­an­átt og élja­gangur. Og við erum að sigla í land. Ég var þá kokkur, bróðir minn var stýri­maður, pabbi skips­stjóri og svo vinur minn. Og þegar við erum á leið í land þá keyrum við að sker við Hell­issand. Og það er alveg magnað að við höfum bara sloppið. Það var svo­leiðis að ég var að vaska upp en á þessum litlu pungum þá var maður bara í galla niðri í mess­anum og fram í og ég var að vaska upp. bróðir minn og Ómar að spila. Svo kemur bara höggið og vask­ur­inn hvarf. Og ég skil ekki enn þann dag­inn í dag hvernig ég slapp því ég náði að skutla mér upp stig­ann og komst upp á dekk og bát­ur­inn var nátt­úr­lega möl­brot­inn að framan. Og þegar ég er kom­inn upp á dekkið reyni ég að fara úr gall­anum en það tók, að mér fannst langan tíma. Ég sá að brúin var komin í kaf og ég hljóp að lunn­ing­inni en það var alveg ótrú­legt að maður hafi ekki dottið í sjó­inn þá. Ég reyndi að kíkja til pabba en sá hann hvergi. Ég hljóp til baka og var þá kom­inn aftur fram eftir. Þá kemur bróðir minn upp og Ómar. En þetta var svo skrítið því maður vissi ekki hvernig maður ætti að kom­ast upp á skerið, það var mik­ill öldu­gangur þarna og mikið sog. Ég fór að telja þegar bát­ur­inn small á skerið, með mastrið. Svo taldi ég og tók svo bara sjens­inn og hljóp á mastr­inu og komst upp á skerið. Þetta var alveg með ólík­indum og ég blotn­aði ekki. Svo dettur bróðir minn í sjó­inn. Hann dettur réttu meg­inn sem betur fer þvi ef hann hefði farið í sjó­inn bak­borðs­meg­inn, maður veit ekk­ert hvað hefði gerst þá, þá hefði hann verið fjær sker­inu. Nema hvað, hann er hraustur og klifrar upp skerið, bara á þar­anum. Og kemst upp. Þá dettur félagi minn í sjó­inn en bróðir minn nær í hárið á honum og dró hann bara upp. Og þá var bara einn eftir og það var pabbi. Loksins þegar hann kemst út úr stýr­is­hús­inu þá er hann orð­inn örmagna og dettur beint í sjó­inn. Og netið í skip­inu flæk­ist í mastr­inu og pabbi flæk­ist í net­inu. Og það var alveg ótrú­legt að horfa upp á þetta. Hann skall svona að ég held 10 sinnum í klett­inn. Hann var orð­inn mar­inn og blár og allur blóð­ugur þegar slitnar allt í einu frá nót­inni og hann fer með sog­inu undir hann og fer hinum megin við skipið. Og við héldum bara að hann væri far­inn. En þá allt í einu kemur hann þar sem stefnið er og bróðir minn sér hann, nær taki á honum og dregur hann upp. Sirka 10 mín­útum síðar þá kemur björg­un­ar­bát­ur­inn fljúg­andi upp skerið. Og ég held að það hafi bjargað okkur því þegar björg­un­ar­sveit­ar­menn­irnir komu og skutu til okkar línu, gátum við blásið upp bát­inn og þeir drógu okkur einn og einn yfir. Þetta var algjört krafta­verk, að eng­inn hafi farist því þarna var kolniða­myrkur og hríða­veður.“

Hægt er að hlusta á allt við­talið hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við