Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sjálfstæðismenn vilja ekki borga: „Íbúar Fjarðabyggðar geta vel borgað máltíðir ofan í börnin sín“

Sjálfstæðismenn vilja ekki borga: „Íbúar Fjarðabyggðar geta vel borgað máltíðir ofan í börnin sín“
Ragnar Sig­urðs­son.

Í Fjarða­byggð vilja sjálf­stæð­is­menn að sveit­ar­fé­lagið hætti að gefa börnum frían mat í skólum byggð­ar­innar.

Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins er Ragnar Sig­urðs­son, og hann segir flestar fjöl­skyldur hafa efni á því að borga mál­tíðir; hægt sé að hjálpa hinum með öðrum ráðum:

„Við teljum þetta ein­fald­lega ranga for­gangs­röðun. Rekstur sveit­ar­fé­lags­ins er ekki sjálf­bær. Við erum ekki að ná endum saman eins og staðan er núna. Og við teljum ein­fald­lega rangt gefið með því að halda fast við þá braut að ætla að halda áfram að vera með gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir þegar við getum ekki sinnt við­haldi mann­virkja nægj­an­lega vel.

Þetta var bara mjög vel leyst hér á árum áður og við viljum algjör­lega taka utan um þá sem að eiga erfitt fjár­hags­lega. Við teljum ein­fald­lega að við getum gripið þær fjöl­skyldur. Þannig að eng­inn þurfi að svelta og ekk­ert barn þurfi að vera und­an­skilið. Við erum á hæsta með­al­at­vinnu­tekju­svæði lands­ins. Hér er fólk sem hefur það bara ansi gott. Og lang flestir íbúar Fjarða­byggðar geta vel borgað skóla­mál­tíðir ofan í börnin sín,“ segir Ragnar í sam­tali við ruv.is.

Bæj­ar­stjóri Fjarð­ar­byggðar, Jón Björn Hákon­ar­son, telur hins vegar að meiri­hlut­inn vilji halda mál­tíð­unum gjald­frjálsum:

Jón Björn Hákon­ar­son bæj­ar­stjóri Fjalla­byggðar.

„Þetta er líka spurn­ing um jafna aðstöðu barna. Það getur verið óháð tekjum for­eldra. Við viljum að sveit­ar­fé­lagið sé meira en sam­keppn­is­hæft í þessu efnum og sam­kvæmt könn­una ASÍ erum við með lægstu skóla­þjón­ustu á land­inu. Einn liður í því eru gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir til að koma til móts við fólk með börn sem er nú kannski þá fólk sem svona efna­hags­á­stand eins og núna þar sem vextir og annað er hækk­andi kemur harð­ast niður á,“ sagði Jón Björn.

Á Twitter er þetta gagn­rýnt af sumum. Einn segir Sjálf­stæð­is­menn ætla að trompa barna­hatur Margret Thatcher, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, en margir Bretar hafa ekki enn fyr­ir­gefið henni að hætta bjóða börnum upp á mjólk í skólum. Annar not­andi hæð­ist að Sjálf­stæð­is­mönnum og segir ein­fald­lega: „Frelsi (til að svelta)“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina