Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kaupfélagsstjórinn sem hvarf í hafið: „Vélin var að missa hæð og neyðarblysi var kastað út“

Kaupfélagsstjórinn sem hvarf í hafið: „Vélin var að missa hæð og neyðarblysi var kastað út“
Hafþór Helgason við flug­vél­ina sína.

Það var í morg­unsárið að skip­verjar á Þrym BA 7 urðu varir við litla flug­vél sem flaug lágt yfir þeim. Svo virt­ist sem flug­mað­ur­inn væri í vand­ræðum því vélin var að missa hæð. Skyndi­lega var tveimur neyð­ar­blysum kastað út úr flug­vél­inni. Stuttu síðar hvarf vélin í sort­ann. Flug­mað­ur­inn, kaup­fé­lags­stjór­inn Hafþór Helgason fannst aldrei en brak af vél­inni fannst fjórum mán­uðum síðar.

Morg­un­blaðið ræddi við vitni að slys­inu á sínum tíma:

„Vélin hvarf í sort­ann og við sáum ekki hvar hún lenti“



„FLUGVÉLIN birt­ist okkur úr norðri — flaug lágt þvert yfir okkur. Vélin var að missa hæð og neyð­ar­blysi var kastað út. Vélin hvarf í sort­ann og við sáum ekki hvar hún lenti á sjónum,“ sagði Þor­steinn Jónsson, skip­stjóri á Þrym BA 7, í sam­tali við Mbl. í gær, en skipið var á neta­veiðum um 28 sjó­mílur vest­norð­vestur af Kópanesi. „Við hófum strax leit en aðstæður voru erf­iðar, 6—7 vind­stig og leið­inda­sjór. Ásamt okkur leit­uðu þrír bátar og tog­ar­inn Vestri frá Pat­reks­firði. Flug­vélar komu fljót­lega á stað­inn en við urðum einskis varir, — fundum ekk­ert brak og hættum leit upp úr klukkan ell­efu og tókum til við að draga netin, en þá var veð­ur­hæðin 10—11 vind­stig og kom­inn hauga­sjór,“ sagði Þor­steinn. „Eg var að koma úr róðri laust eftir klukkan sex þegar ég sá flug­vél hring­sóla yfir bænum. Hún flaug þrjá hringi yfir þorp­inu, hækk­aði svo flugið og hvarf út fjörð­inn,“ sagði Guðni Ein­ars­son, skip­stjóri, á Suð­ur­eyri við Súg­anda­fjörð í sam­tali við Mbl. „Ég fór upp á flug­völl þar sem mér þótti und­ar­legt að flug­vél skyldi vera á sveimi yfir bænum þegar völl­ur­inn var lok­aður, veður að ganga upp og myrkrið grúfði sig yfir bæinn. Ég hélt jafn­vel að um sjúkra­flug væri að ræða og hringdi til flug­um­sjónar í Reykja­vík en þeir vissu ekk­ert um ferðir vél­ar­innar,“ sagði Guðni Ein­ars­son.

Tíminn sagði einnig nánar frá mál­inu:

Árang­urs­laus leit að tveggja hreyfla einka­flug­vél frá Ísafirði í gær:

SENDI UPP TVÖ NEYÐARBLYS OG HVARF SÍÐAN
Leit verður haldið áfram í dag 

Mikil leit var gerð á sjó og úr lofti að tveggja hreyfla einka­flug­vél, TF MAO frá Ísafirði, í allan gær­dag. Flug­mað­ur­inn Hafþór Helgason, kaup­fé­lags­stjóri á Ísafirði, var einn í vél­inni þegar síð­ast var vitað um hana. Hann var jafn­framt eig­andi vél­ar­innar. Það var laust eftir klukkan sex í gær­morgun að Guðni Ein­ars­son, skip­stjóri á mót­or­bátnum Sigurvon ÍS 500 gerði flug­stjórn­ar­mið­stöð­inni í Reykja­vík vaft um óvenju­lega ferð flug­vélar inn á Súg­anda­firði. „Það var í sjálfu sér ekk­ert óvenju­legt við flug vél­ar­innar annað en það hversu snemma hún var á ferð­inni. Hún klifraði upp yfir þorp­inu og flaug síðan inn fjörð­inn í átt­ina til Ísa­fjarðar,“ sagði Guðni í sam­tali við Tímann í gær.“ Það var svo laust fyrir klukkan 07.40 í gær­morgun að loft­skeyta­stöðin í Gufunesi til­kynnir að skip­verjar á vél­bátnum Þrym BA 7 hefðu orðið flug­vél­ar­innar varir. „Við vorum að draga línu um 25 sjó­mílur N-V af Bakkanum þegar flug­vélin kom á mik­illi ferð úr norðri og flaug mjög lágt rétt hjá okkur. Þegar hún var þvert á okkur sendi hún frá sér tvö rauð neyð­ar­blys. Síðan hélt hún áfram í suður þar til hún hvarf sjónum okkar. Bátar sem staddir voru sunnan við okkur urðu einskis varir svo ég býst við að vélin hafi hafnað í sjónum,“ sagði Þor­steinn Jónsson, skip­stjóri á Þrym í sam­tali við Tímann í gær. Strax og fyrri til­kynn­ingin barst til flug­stjórnar þótti ástæða til að grennsl­ast um eftir vél­inni þar sem ekki var vitað um neina flug­um­ferð í grennd við Súg­anda­fjörð. Margir bátar sem voru á næstu grösum tóku þátt í leit­inni. Á vett­vang fóru flug­vél flug­mála­stjórnar, Herculesvél og þyrla frá varn­ar­lið­inu á Kefla­vík­ur­flug­velli. Leitin bar engan árangur og var henni hætt um klukkan 17 í gær. Verður henni haldið áfram í birt­ingu.

Fjórum mán­uðum síðar, í febr­úar árið 1983 fékk tog­ar­inn Harð­bakur brak úr flug­vél­inni í vörpuna. Tíminn sagði svo frá:

Brak finnst úr TF MAO

S.l. fimmtu­dag þegar tog­ar­inn Harð­bakur var á veiðum ulþ.b. 30 sjó­mílur út af Kóp fékk hann brak úr flug­vél í vörpuna og var það síðan rann­sakað þegar tog­ar­inn kom til hafnar. Á Akureyri var brakið rann­sakað af loft­ferða­eft­ir­litið og að sögn Skúla Jóns Sig­urðs­sonar yfir­manns þess er sannað að um er að ræða væng­hluta af vél­inni TF MAO, sem fórst seint í októ­ber s.l. og með henni einn maður, Hafþór Helgason kaup­fé­lags­stjóri á Ísafirði. Að sögn Skúla Jóns var stað­ur­inn þar sem brakið fannst einmitt á þeim slóðum sem talið er að skip­verjar á mb Þrym hafi síð­ast orðið varir við vél­ina. Brakið sem fannst var úr hægra væng vél­ar­innar, væn­gend­inn að hreyfli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við