Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Aðstoðarmaður Jóns: „Fyrir tíu árum sóttu 118 einstaklingar um vernd, en í ár 5.000“

Aðstoðarmaður Jóns: „Fyrir tíu árum sóttu 118 einstaklingar um vernd, en í ár 5.000“

Sjálf­stæð­is­mað­ur­inn Ingvar Smári Birg­is­son seg­ist á Facebook ekk­ert botna í umræð­unni á Íslandi hvað varðar útlend­inga­mál. Hann segir Ísland taka á móti fleiri flótta­mönnum en öll Norð­ur­löndin og einnig sé lög­gjöfin opn­ari hér. Þetta þýði meðal ann­ars að á ein­ungis tíu árum hafa umsóknir um vernd farið frá 118 á ári, í nærri fimm þús­und. Ingvar tók nýverið við sem aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­sonar inn­an­rík­is­ráð­herra, en gagn­rýni á útlend­inga­stefnu rík­is­stjórn­ar­innar hefur mikið til beinst að honum.

„Ég er ekki einn um að finn­ast umræðan um útlend­inga­mál hafa verið furðu­leg á Íslandi sl. vikur og mán­uði. Lítil dýpt hefur verið í umræð­unni, hvað þá yfir­vegun. Það er von­andi að við finnum þessum mála­flokki mál­efna­legan far­veg og höfum í huga að upp­lýst umræða í dag kemur í veg fyrir öfga fram­tíð­ar­innar,“ segir Ingvar.

„Fyrir tíu árum sóttu 118 ein­stak­lingar um alþjóð­lega vernd en í ár munu u.þ.b. 5.000 umsóknir ber­ast. Mála­flokk­ur­inn hefur því ekki þró­ast á liðnum ára­tugi heldur bein­línis stökk­breyst. Frá árinu 2019 höfum við tekið hlut­falls­lega á móti fleiri umsækj­endum en öll Norð­ur­löndin og erum með opn­ari lög­gjöf en þau í mála­flokknum. Þannig það er ekki hægt að halda því fram að Ísland sé með frí­spil hvað mála­flokk­inn varðar sökum land­fræði­legrar stöðu. Vernd­ar­kerf­inu, ólíkt inn­flytj­enda­kerf­inu almennt, fylgja alls kyns félags­legar skyldur, svo sem um hús­næði, fram­færslu, heil­brigð­is­þjón­ustu o.s.frv. Það er því alveg eðli­legt og lík­lega nauð­syn­legt að hér eigi sér stað umræða um þol­mörk félags­lega kerf­is­ins og hvernig best sé að takast á við þessa áskorun.“

Ingvar heldur áfram og segir að það yrði engum til góðs ef ráð­herra færi að skipta sér af lög­gæslu- og dóms­málum. „Annað er að þessi mála­flokkur á það sam­eig­in­legt með lög­gæslu- og dóms­málum að vera til­tölu­lega sjálf­stæður frá áhrifum ráð­herra. Ráðherra skiptir sér ekki af ein­stökum málum og í til­viki útlend­inga­mála starfar sjálf­stæð kæru­nefnd útlend­inga­mála sem fer ítar­lega yfir mál hvers og eins umsækj­anda. Ráðherra hvorki hvetur lög­reglu til þess að fram­kvæma ein­stakar brott­vís­anir eða grípur inn í og stöðvar ein­stakar brott­vís­anir. Að sama skapi mælir ráð­herra ekki fyrir um nið­ur­stöður í ein­stökum málum. Það gilda ein­fald­lega lög um mála­flokk­inn sem stofn­anir á sviði útlend­inga­mála fram­kvæma, að teknu til­liti til for­dæma sem kæru­nefnd útlend­inga­mála og dóm­stólar setja með sínum úrlausnum. Ég veit ekki hvort þetta sé eitt­hvað sem fólk vill raun­veru­lega víkja frá,“ segir Ingvar.

Hann segir að lokum að umræðan á Íslandi und­an­farið virð­ist ekki í takt við raun­veru­leik­ann. „Umræðan hjá sumum hérna heima er í slíkum skurði að nær öll ríki Evrópu þykja ómann­úð­leg í mála­flokknum. Norð­ur­löndin eru þar fremst í flokki að mati sumra og það er ómögu­legt að Ísland taki upp sam­bæri­lega lög­gjöf og í nágranna­ríkjum okkar. Þegar allir hafa rangt fyrir sér, nema þú sjálfur, þá þarftu stundum að end­ur­meta þær upp­lýs­ingar sem þú hefur undir höndum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við