Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kolbrúnu féllust hendur yfir lesefni sonar: „Kæri skólastjóri, viltu hjálpa mér að skilja þetta?“

Kolbrúnu féllust hendur yfir lesefni sonar: „Kæri skólastjóri, viltu hjálpa mér að skilja þetta?“

Kolbrún Ósk Skafta­dóttir átti varla til orð á dög­unum þegar hún fór að skoða les­efnið sem syni hennar var boðið upp á í grunn­skól­anum. Að hennar mati voru allar bæk­urnar á leslist­anum orðnar alltof gamlar og úreltar því að:„- Engin þess­ara bóka inni­heldur hinsegin for­eldri.– Engin þess­ara bóka inni­heldur mann­eskju af öðrum húð­lit en ferskju­bleikum.– Engin þess­ara bóka inni­heldur hinsegin eða kynsegin per­sónu.– Engin þess­ara bóka inni­heldur stelpu sem aðal­per­sónu.– Engin þess­ara bóka inni­heldur ein­stætt for­eldri.– Engin þess­ara bóka inni­heldur fatl­aðan ein­stak­ling.– Engin þess­ara bóka inni­heldur í raun neitt annað en gamlar, úreltar og í versta falli skað­legar staðalí­myndir um lífið.Fjöl­breyti­leik­inn er eng­inn. Ekki neinn sér fjöl­breytn­inni í les­efni barna sinna eftir að hafa skrifað tölvu­póst til skóla­stjóra um málið,“ segir Kolbrún.Kolbrún ákvað að fjalla bæði um málið í færslu á Facebook og senda skóla­stjór­anum bréf vegna les­efni son­ar­ins.Hér fyrir neðan má finna brot úr bréf­inu:„Í kvöld varð mér aðeins nánar litið á það les­efni sem Róbert hafði komið með heim úr skól­anum. Hann er með eft­ir­far­andi þrjár bækur: Doddi fer í sigl­ingu – gefin út árið 1985 (37 ára gömul bók) Skrýtinn dagur hjá Gunnari – gefin út árið 2003 (19 ára gömul bók) Margt skrýtið hjá Gunnari – gefin út árið 2005 (17 ára gömul bók).– Engin þess­ara bóka inni­heldur hinsegin for­eldri.– Engin þess­ara bóka inni­heldur mann­eskju af öðrum húð­lit en ferskju­bleikum.– Engin þess­ara bóka inni­heldur hinsegin eða kynsegin per­sónu.– Engin þess­ara bóka inni­heldur stelpu sem aðal­per­sónu.– Engin þess­ara bóka inni­heldur ein­stætt for­eldri.– Engin þess­ara bóka inni­heldur fatl­aðan ein­stak­ling.– Engin þess­ara bóka inni­heldur í raun neitt annað en gamlar, úreltar og í versta falli skað­legar staðalí­myndir um lífið.Fjöl­breyti­leik­inn er eng­inn. Ekki neinn.Fram til þessa hef ég satt að segja oft velt því ein­lægt fyrir mér af hverju bæk­urnar sem Róbert fær með sér heim úr skól­anum vekja ekki hjá honum áhuga.Af hverju hann má helst ekki lesa mynda­sögur, þegar hann hefur rosa­legan áhuga á þeim og þar er oftar en ekki mjög flottur texti til lestrar. Sem bók­sali til tæp­lega 30 ára, hef ég líka oft velt því fyrir mér hvers vegna bóka­kostur skóla­safns­ins hefur ekki verið end­ur­nýj­aður oftar en raun ber vitni.Í kvöld sá ég þetta svo allt saman í nýju ljósi.Í kvöld, meðan ég fylgd­ist með mínum litla lestr­ar­hesti þræla sér í gegnum bók sem hann var ein­göngu að lesa af skyldu, en engri ánægju…bók frá Mennta­mála­stofnun sem var gefin út árið 2003 (það eru 19 ár síðan!), þá fór ég að tengja hluti saman, sem ég hefði auð­vitað átt að gera miklu miklu fyrr.Hat­urs­orð­ræða, for­dómar, ein­elti og allt sem um var rætt í fyr­ir­lestr­inum um dag­inn – Hverjir/hvað eru stærstu áhrifa­valdar þess? Hvaða for­dæmi setjum við? Hverju erum við að halda að börn­unum okkar? Á hvað leyfum við þeim að horfa? Hvað erum við að láta þau lesa?Ég leit­aði ein­lægt eftir ein­hverju í þessum þremur bókum sem sýndi ungum les­endum að það er til alls­konar annað en hefð­bundnu staðalí­mynd­irnar. Ég fann ekk­ert. Ekki neitt!Ef við ekki sýnum í gegnum les­efni barna að mann­lífið er fjöl­breytt, fólk er alls­konar og lífið er sann­ar­lega marg­vís­legt, hvernig getum við þá ætl­ast til þess að þau skilji að ekki á að stríða ein­hverjum fyrir að eiga hinsegin for­eldra?Eins og fram kom hér ofar, er ég bók­sali og hef starfað við það í tæp 30 ár. Það voru því hæg heima­tökin þegar ég ákvað að kynna mér þetta aðeins betur. Það gat bara ekki verið að skól­anum byð­ist ekki annað les­efni.Ég setti mig því í sam­band við bæði höf­unda og bóka­út­gáfur og viti menn…það er einmitt alls ekki þannig að annað og fjöl­breytt­ara les­efni sé ekki í boði! Mér er hins vegar tjáð að skól­inn for­gangsraði sínu fjár­magni ekki á þann hátt að rými sé fyrir nokkra end­ur­nýjun les­efnis. Von­brigði mín eru gríð­ar­leg ef þetta er í alvöru raunin.Kæri skóla­stjóri, viltu hjálpa mér að skilja þetta?Ég skoð­aði efni Mennta­mála­stofn­unar í dag og sé að þar er fullt af frá­bærum bókum eftir flotta höf­unda sem hafa einmitt þessa hluti í huga. Er það virki­lega raunin að bóka­kostur skól­ans sé svo aft­ar­lega á for­gangs­lista skóla­stjórnar að sex ára börn hafi nán­ast ekk­ert val um les­efni úr sam­tíma sínum? Ef svo er, þá er kannski ekk­ert skrítið að þegar bekkj­ar­fé­lagar Róberts komu í afmæli til hans í vik­unni, spurðu þau Áslaugu hver hún eig­in­lega væri. Þegar svarið var auð­vitað „Ég er mamma Róberts“ urðu þau mörg hver bara stein­hissa! Sögðu að ég væri sko mamma hans og skildu ekk­ert í því að við gætum báðar verið mömmur hans. Einhver börn spurðu svo hvort pabbi hans væri dáinn!Vissu­lega eru ekki öll þessi börn orðin læs en þó ætla ég að leyfa mér að full­yrða að fjöl­breytt­ara og nútíma­legra les­efni í grunn­skólum hefði hik­laust haft þau áhrif að okkar fjöl­skyldu­form ætti ekki að koma neinu þess­ara barna á óvart, eins og það gerði þarna.Mörg þess­ara barna eiga til dæmis eldri systk­ini í sama skóla og umræða á heim­ilum, sem spinnst upp úr les­efni barna, fræðir ekki bara börnin sjálf, heldur heilu fjöl­skyld­urnar og sam­fé­lagið allt.Ábyrgð og áhrif grunn­skól­anna eru því gríð­ar­lega mikil og ef taka á því alvar­lega að upp­ræta for­dóma og fáfræði, þá verður seint klórað yfir metn­að­ar­leysi í úrvali les­efnis með stöku for­eldra­fyr­ir­lestri um for­dóma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina