Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Leikskólastarfsmaður skrifar Katrínu: „Þú móðgaðist og sagðist aldrei biðja um leyfi til að tala“

Leikskólastarfsmaður skrifar Katrínu: „Þú móðgaðist og sagðist aldrei biðja um leyfi til að tala“
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Zahra Hussaini er starfs­maður á leik­skóla, og hún skrifar opið bréf til for­sæt­is­ráð­herra, Katrínar Jak­obs­dóttur:

„Sæl Katrín Jak­obs­dóttir, Ég heiti Zahra Hussaini og er 33 ára kona frá Afganistan. Ég hef búið á fjöl­mörgum stöðum, til að mynda í Íran, Afganistan, Pakistan, Tadjikistan, Þýska­landi og á Íslandi. Ef þú spyrð mig hvað ég hafi verið að gera í þessum löndum eða hvernig ég ferð­að­ist til þeirra, get ég sagt þér að ástæðan var hvorki frí né skemmti­ferð.“

Hún bætir við:

„Ástæð­urnar fyrir því að ég og fjöl­skylda mín þurftum að flytja til þess­ara landa voru margar; ótti, stríð, kerf­is­bundin mis­munun, órétt­læti, von­leysi, mögu­leiki á betri menntun og ein­hverri atvinnu, mögu­leiki á stöð­ug­leika í líf­inu. Ég var ekki ein­ungis inn­flytj­andi og flótta­maður í öðrum löndum, heldur einnig í mínu eigin landi þar sem við þurftum að flýja frá einum stað á annan innan Afganist­ans. Ég man ekki eftir neinum af vinum mínum úr barn­æsku og er ekki í neinu sam­bandi við þau vegna stöðugra flutn­inga.“

Zahra segir að „í hvert sinn sem ég byrj­aði að mynda vin­áttu­sam­bönd, neydd­umst við til að flytja enn á ný. Ég missti af mörgum dýr­mætum stundum og fólki í lífi mínu vegna þessa. Þrátt fyrir alla erf­ið­leik­ana hélt ég áfram í öll þessi ár að berj­ast og læra nýja hluti, byggja upp ný sam­bönd og nýtt líf.

Hvert sem ég fór lærði ég tung­málið og kynnti mér menn­ing­una.

Þegar fólk gefur mér eitt­hvað, gef ég alltaf eitt­hvað til baka líka.“

Hún nefnir að „í þar­síð­ustu viku, þegar ég las frétt­irnar um fólkið sem var brott­vísað frá Íslandi til Grikk­lands, varð ég fyrir áfalli. Ég end­ur­upp­lifði allar þær erf­iðu stundir sem ég og fjöl­skylda mín höfum þurft að ganga í gegnum. Það er jafn­hættu­legt að vera flótta­maður í landi þar sem þú hefur engin rétt­indi, ekk­ert öryggi og engan aðgang að menntun eða heil­brigð­is­þjón­ustu, og að vera í sínu eigin landi þar sem er stríð. Munurinn er sá að í stríði deyrðu snögg­lega, en í aðstæðum þar sem þú nýtur engra rétt­inda og lifir við stöðuga óvissu mæt­irðu löngum og kvala­fullum dauða.

Ég hef misst mikið af nánum fjöl­skyldu­með­limum í stríði. Ég hef horft upp á frændsystk­ini og föður- og móð­ur­bræður vera myrt af Tali­bönum vegna þess eins að við til­heyrum etnískum og trú­ar­legum minni­hluta­hóp í Afghanistan og vegna þess að við tölum annað tungu­mál.

Þegar ég og fjöl­skylda mín bjuggum í Íran gat faðir minn ekki fengið atvinnu­leyfi. Hann vann þó á bygg­ing­ar­svæðum í sífelldum ótta við að lög­reglan myndi birt­ast á hverri stundu og brott­vísa honum til Afganistan án þess að láta fjöl­skyld­una vita. Skóla­ganga mín og systk­ina minna í Íran var slitr­ótt af því að í hvert sinn sem póli­tískt ástand á milli Afganistan og Íran breytt­ist, hafði það áhrif á hvort írönsk stjórn­völd leyfðu okkur að fara í skól­ann eða ekki.“

Hún nefnir afar sorg­legt dæmi:

„Mamma mín fæddi dóttur á spít­ala í Íran, hún gaf henni af brjósti einu sinni, en dag­inn eftir sögðu lækn­arnir henni að barnið hefði dáið. For­eldrar mínir fengu aldrei að sjá líkið. Þau gátu ekk­ert gert til að leita réttar síns, ein­ungis vegna þess að þau voru flótta­fólk og höfðu engin laga­leg rétt­indi. Hvers vegna er ég að segja þér þetta allt saman? Vegna þess að sama ástand blasir við flótta­fólki í Grikk­landi. Ég er ekki að biðja þig um að hjálpa öllu flótta­fólki í Grikk­landi, heldur bið ég þig um að hjálpa flótta­fólki sem hefur nú þegar tekið áhætt­una að kom­ast alla leið til Íslands.

Ég sam­gleðst þér og Íslend­ingum – þið hafið aldrei þurft að upp­lifa stríð og ótt­ann við að missa ein­hvern nákom­inn í stríðs­á­tökum. En ver­andi mann­eskjur þekkjum við öll hvernig það er að ganga í gegnum streitu­vald­andi tíma­bil, eins og til dæmis að byrja í grunn­skóla. Krakk­arnir eru nýir, umhverfið er ókunn­ugt, þú þekkir hvorki regl­urnar né hlut­verkin. Það tekur tíma til að kynn­ast öllum og öllu. Ef við erum heppin höfum við fólk í kringum okkur sem að styður okkur og hvetur okkur áfram, líkt og for­eldra, kenn­arar og vinir, svo að við getum eflst, þroskast og lært nýja hluti. Flótta­fólk er eins og þessi börn, þau þekkja engan og ekk­ert í nýju umhverfi, en í ofan álag eru engir vinir, for­eldrar eða kenn­arar til að hjálpa þeim og leið­beina, heldur ein­ungis fullt af hindr­unum.“

Zahra grát­biður Katrínu for­sæt­is­ráð­herra um hjálp:

„Gerðu það Katrín, hjálpum því flótta­fólki sem kemur til lands­ins að finna fyrir stöð­ug­leika, vin­áttu og öryggi á meðan þau fóta sig í nýju umhverfi og hættum að brott­vísa fólki til Grikk­lands. Í síð­ustu viku, aðeins nokkrum dögum eftir brott­vís­an­irnar hræði­legu, hélt ég ræðu í gjall­ar­horn þegar þú áttir að tala á mál­þingi um raddir og tungu­mál etnískra minni­hluta­hópa. Þú móðg­að­ist og sagð­ist aldrei biðja um leyfi til að tala, hvorki nú né nokkurn tíman, og hlaust lófa­klapp fyrir frá salnum. Um leið hugs­aði ég: auð­vitað þarftu ekki að biðja um leyfi að tala þú ert for­sæt­is­ráð­herra, þér er boðið út um allt. Ég þarf hins­vegar að berj­ast fyrir því í hvert ein­asta sinn að fá að tala, að rödd mín fái að heyr­ast, hvort sem það er á Íslandi, í Afganistan eða á mál­þingi um hópa sem ég til­heyri sjálf. Það er bein afleið­ing þess að til­heyra minni­hluta­hópi.

Ég vona að þetta bréf nái til þín Katrín Jak­obs­dóttir, en einnig til allra hinna sem fara með póli­tísk völd á Íslandi. Síðast en ekki síst vona ég að þetta nái til almenn­ings á Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina