Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Björn fengið nóg af siðleysi Bjarna: „Þjóðin er orðin þreytt þessum línudansi“

Björn fengið nóg af siðleysi Bjarna: „Þjóðin er orðin þreytt þessum línudansi“
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra Mynd: Trausti Hafsteinsson

Sam­fé­lags­rýn­ir­inn úr Grinda­vík, Björn Birg­is­son, sem hefur látið hina ýmsu ráða­menn og póli­tíkusa fá það óþvegið með harð­orðum pistlum á Facebook, hraunar yfir fjár­mála­ráð­herr­ann okkar, Bjarna Bene­dikts­son, í nýjasta pistli sínum. Hann segir ráð­herr­ann ein­fald­lega sið­lausan.

„Bjarni er svo­leiðis. Hann ratar stöðugt í fréttir vegna þess að hann rambar sífellt á mörkum þess sem má og þess sem er bannað með lögum,“ segir Björn sem hefur fengið nóg af Bjarna og skandöl­unum sem honum iðu­lega fylgja.

Eins og frægt er orðið hefur Rík­is­end­ur­skoðun gert alvar­lega athuga­semdir við söl­una á eign­ar­hlut rík­is­ins í Íslands­banka á árinu. Fram til þessa hefur Banka­sýslan fengið mestu skamm­irnar en allt heyrir sölu­ferlið hins vegar undir ráðu­neyti Bjarna. Og Björn segir greini­legt að Bjarni hafi und­ir­búið sig vel undir vörn sína og tönn­list iðu­lega á sömu setn­ing­unni:

„Engin lög brotin! Engin lög brotin! Engin lög brotin! Engin lög brotin! Engin lög brotin! Engin lög brotin! Þetta marg­tyggur Bjarni Bene­dikts­son vegna banka­söl­unnar.

Það er lík­lega nokkuð rétt hjá honum. En sölu­ferl­inu voru settar ýmsar reglur, til dæmis rúm­að­ist faðir hans ekki innan þeirra, en það var ekki skrifað í nein lög. Sumt er lög­legt, en algjör­lega sið­laust. Bjarni er svo­leiðis. Hann ratar stöðugt í fréttir vegna þess að hann rambar sífellt á mörkum þess sem má og þess sem er bannað með lögum. Hann hefur til dæmis ekki sagt eitt styggð­ar­yrði um mútu­mál Samherja því þeir eru hans menn og hugsa á sömu nótum.

Hann var aug­ljós­lega vel und­ir­bú­inn þegar skýrslan loks­ins kom fyrir sjónir almenn­ings.

Hann vissi um allar regl­urnar sem höfðu verið sveigðar og beygðar til að „rétta fólkið“ eign­að­ist hlut í bank­anum.

Hann vissi að strangt til tekið voru engin lög bein­línis brotin.

Þar liggur vörnin hans.

Engin lög brotin!

Engin lög brotin!

Engin lög brotin!

Þetta marg­tyggur hann við hvert tæki­færi sem gefst. Þjóðin er orðin þreytt þessum línu­dansi Bjarna Bene­dikts­sonar á landa­mærum laga og sið­leysis. Meira að segja er hátt í helm­ingur hans flokks­manna orð­inn þreyttur á þessu hátt­ar­lagi. Tími hans er lið­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina