Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skora á íslensk stjórnvöld vegna umhverfsislyss Arnarlax: „Stöndum vörð um íslenska náttúru!“

Skora á íslensk stjórnvöld vegna umhverfsislyss Arnarlax: „Stöndum vörð um íslenska náttúru!“

NASF á Íslandi, Lands­sam­band Veiði­fé­laga, Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands og fleiri sam­tök og fyr­ir­tæki skora á yfir­völd vegna umhverf­isslyss Arnarlax í Arn­ar­firði en þá sluppu 80.000 norskir eld­is­laxar úr opinni sjó­kví Arnarlax á Vest­fjörðum.

Eft­ir­far­andi áskorun var send á stjórn­völd:

Áskorun til stjórn­valda vegna

umhverf­isslyss Arnarlax í Arn­ar­firði 

Villtum stofnum fórnað

Nýverið sluppu um 80.000 frjóir norskir eld­is­laxar úr opinni sjó­kví Arnarlax á Vest­fjörðum. Villti laxa­stofn­inn á  Íslandi telur um 50.000 laxa. Slysa­slepp­ingin er grafal­var­legt umhverf­isslys sem Arnarlax hefur verið  sektað um 120 millj­ónir króna fyrir og mun hafa alvar­leg  erfða­fræði­leg áhrif á villta laxa­stofna á Íslandi.  

Slysa­slepp­ingin er enn fremur stað­fest­ing þess að fögur fyr­ir­heit fyr­ir­tækja í sjó­kvía­eldi eru fölsk og opin­berar hún  einnig skeyt­ing­ar­leysi fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart hags­munum  nátt­úr­unnar þegar ákveðið er að mót­mæla sekt­ar­greiðsl­unni. 

Náttúrunni fórnað

Erfða­mengun villtra stofna í kjöl­far slysa­slepp­inga er óaft­ur­kræft umhverf­isslys. Ekki stendur þó aðeins villtum laxa­stofnum ógn af sjó­kvía­eldi því iðn­að­ur­inn skilur einnig eftir sig mengun á hafs­botni, öðrum villtum stofnum stafar ógn af lúsa­fári og sjúk­dómum og ímynd óspilltrar nátt­úru Íslands er í hættu. 

Byggðum fórnað

Á Íslandi eru rúm­lega 2.250 lög­býli sem treysta á tekjur frá lax­veiðiám og skapar lax­veiðin marg­falt fleiri störf en  sjó­kvía­eldi mun nokkurn tíma gera. Efna­hags­legt virði lax- og sil­ungs­veiða nemur 13,5 millj­örðum króna árlega.  Slysa­slepp­ingar sem þessi rýra verð­mæti þeirra  nátt­úru­legu auð­linda sem fjöl­skyldur á lands­byggð­inni  treysta á. Orðspor Íslands sem upp­runa­lands hrein­leika er líka svert.

Lærum af reynslu annarra

Ætla stjórn­völd að gera sömu mis­tök og aðrar þjóðir sem  ala frjóan og fram­andi lax í opnum sjó­kvíum? Er stefna  stjórn­valda að þurrka út villtan lax á Íslandi og þar með  hlunn­indi og ferða­þjón­ustu í lax­veiðiám fyrir ofsa­gróða  norskra sjó­kvía­eld­is­fyr­ir­tækja? Af hverju eru íslensk stjórn­völd að gefa erlendum stór­fyr­ir­tækjum auð­lindir okkar? 

Áskorun til stjórnvalda

Und­ir­rituð sam­tök og fyr­ir­tæki skora á mat­væla­ráð­herra  að stöðva lax­eldi í opnum sjó­kvíum áður en það verður  um seinan. Kallað er eftir trú­verð­ugri áætlun sem miðar  að því að banna alfarið lax­eldi í sjó­kvíum hér við land. 

Það er ljóst að ef stjórn­völd hafa raun­veru­legan áhuga á  að vernda villta laxa­stofna og nátt­úru Íslands, þá þarf að  stöðva fisk­eldi í opnum sjó­kvíum. Á meðan verið er að  stunda sjó­kvía­eldi á Íslandi þarf að gera það eftir allra  ströng­ustu stöðlum. Þar ber helst að nefna NASCO  staðl­ana sem ítrekað hafa verið sendir á stjórn­völd.  Und­ir­rituð sam­tök og fyr­ir­tæki skora á mat­væla­ráð­herra  að inn­leiða þessa staðla og gefa engan afslátt af þeim á  meðan verið er að stunda þessa meng­andi starf­semi í  fjörðum lands­ins. 

Einnig er skorað á ferða­mála­ráð­herra að vernda þau  2.250 lög­býli sem treysta á lax­veiði­hlunn­indi og eru  ómet­an­legur partur af ferða­þjón­ustu lands­ins.  

Stöndum vörð um íslenska nátt­úru!

NASF á Íslandi, Lands­sam­band Veiði­fé­laga, Icelandic Wildlife Fund, Laxinn Lifi, Land­vernd,  Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Íslands, Ungir Umhverf­is­sinnar, Lax-á, Veiði­fl­ugur, Veiðivön, Höklar, Six Rivers Project,  Stóra-Laxá, Fuss, Laxá á Ásum, Starir, Mið­fjarð­ará, Eleven  Experience, Norðurá, Stanga­veiði­fé­lag Reykja­víkur  (SVFR), Hreggnasi, Vatns­dalsá, Veiði­fé­lagið, Fish Partner og Flugu­búllan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina